Fréttablaðið - 17.09.2022, Síða 88
Í sumum verkanna
renna fortíð og
nútíð saman í einn
hræring á meðan
önnur sýna skáld-
aðan liðinn tíma.
Listmálarinn Þrándur
Þórarinsson var enn að sýna
málverk sín af Hólavalla-
kirkjugarði þegar honum
bauðst sýningarrými í því
fornfræga húsi sem áður
hýsti steikhúsið Argentínu.
Hann bretti því upp ermar og
afraksturinn, draumkenndar
borgarlandslagsmyndir, lítur
dagsins ljós í dag þegar hann
opnar sýninguna Hin rétta
Reykjavík á Barónsstíg 11.
toti@frettabladid.is
Skammt er líf legra pensilstroka á
milli hjá listmálaranum lúsiðna
Þrándi Þórarinssyni sem opnar
í dag sína aðra málverkasýningu
á skömmum tíma. Eftir að hafa
staldrað við í Hólavallakirkjugarði
fyrr á þessu ári sneri hann sér að
draumkenndum borgarlandslags-
myndum í næsta nágrenni þar sem
hann blandar saman fortíð og nútíð
í verkunum á sýningunni Hin rétta
Reykjavík.
„Sýningin samanstendur mikið
til af borgarlandslagsmyndum;
götum, torgum byggingum, kenni-
leitum og útilistaverkum í Reykja-
vík,“ segir Þrándur um ný og nýleg
olíumálverkin á sölusýningunni.
Þrándur fór ekki langt y f ir
skammt frá kirkjugarðinum eftir
innblæstri þar sem hann sækir
f lest myndefnin í miðbæinn. „Þó
ekki öll og í sumum verkanna
renna fortíð og nútíð saman í einn
hræring á meðan önnur sýna skáld-
aðan liðinn tíma.“ Þrándur segir að
í stuttu máli sé hann að leitast við
að gera myndirnar að tímalausum
staðleysum sem minni um margt á
Reykjavík.
Verkin enda á bók
Þrándur vinnur einnig um þessar
mundir að bók með Forlaginu þar
sem þessum og öðrum Reykja-
víkurverkum hans verða gerð
sérstök skil. „Hönnunin er
svipuð og á Andspænis,“
segir Þrándur og vísar í
bókina sem hann gerði
með Hugleiki frænda sínum
2020 þar sem þeir öttu saman
frægustu vættum og óvættum
íslenskra þjóðsagna, hvor
á sinn hátt.
„Þessi bók verður
samt stíluð á ferða-
fólk til jafns við
Íslendinga og
m y n d e f n i n
taka að ein-
hverju leyti mið
af því. Það er til
að mynda verk
Hinn rétta Reykjavík er tímalaus staðleysa
Opnun á Kjarvalsstöðum.
Sá dáði háhyrningur Keikó er alveg á heimavelli og réttum stað við Sólfarið en þessi tvenna er líkleg til að kæta er-
lenda ferðamenn jafnvel meira en Íslendinga. Myndir/Þrándur
Mæðragarðurinn rennur kannski upp í staðleysu en
notaleg er stemningin í hinni réttu Reykjavík.
Hallærisplanið eða Ingólfstorg eða öfugt.
þarna af Sólfarinu, sem er jú í sér-
stöku eftirlæti hjá erlendum gestum
í höfuðborginni,“ segir Þrándur sem
gerir ráð fyrir að bókin komi út á
fyrri hluta næsta árs.
Líf eftir dauða
„Ég fór beint í borgarlandslags-
myndirnar eftir Hólavallagarð.
Sigurður Sævar, kollegi minn, sem
á sýningarrýmið bauð mér að sýna
þarna en hann hugðist leigja húsið
út frá og með 1. október svo það var
ekki um annað að ræða en að bretta
upp ermarnar og hafa hraðar hend-
ur með pensilinn,“ segir Þrándur um
sýningarrýmið á Barónsstíg 11A og
B sem flestir kannast líklega helst
við sem hina fornfrægu Argentínu
steikhús.
Sigurður Sævar Magnúsarson
myndlistarmaður keypti húsnæðið
ekki alls fyrir löngu og er þar með
nýja vinnustofu og sýningarsal
þar sem Þrándur opnar Hina réttu
Reykjavík í dag milli klukkan 16
og 18. Hann áréttar að allir séu
velkomnir og drykkir verði í boði.
Sýningin verður síðan opin dagana
18. til 25. september milli klukkan
14 og 18. n
toti@frettabladid.is
Konungssinnaða jafnaðarmann-
inum Þórarni Snorra Sigurgeirssyni
tókst í gærmorgun það ætlunar-
verk sitt að votta Elísabetu II. Breta-
drottningu virðingu sína í West-
minster Hall.
Þórarinn tók ákvörðunina um
að leggja í þessa pílagrímsför yfir
enskum morgunverði síðasta sunnu-
dag og flaug til London á þriðjudags-
morgun. Hann var við því búinn að
virðingarvotturinn myndi kosta
blóð, svita og tár. Sem vitaskuld varð
raunin.
„Ég stóð í röðinni síðustu nótt og
komst að undir gærmorgun,“ sagði
Þórarinn Snorri þegar Fréttablaðið
náði sambandi við hann í London í
gær, úrvinda en ánægðan.
„Og mér tókst því sumsé að votta
hennar hátign mína virðingu í
eigin persónu,“ segir hinn einbeitti
íslenski royalisti og bætir hlæjandi
við að hann hafi lagt að baki tæp
65.000 skref á þremur dögum. „Og
tveggja tíma svefn í tveimur lotum á
36 klukkustunda tímabili.“
Þórarinn lagði bjartsýnn í sína
hátíðlegu för, eða eins og hann orð-
aði það þegar Fréttablaðið talaði við
hann áður en hann flaug út: „Síðan
er þetta, burtséð frá manns eigin
nördaskap og áhuga á þessu, náttúr-
lega líka heimsviðburður.“ Hann
reiknaði þannig með einstakri
stemningu á götum borgarinnar og
hana er hann núna búinn að fá að
upplifa milliliðalaust.
Búist er við að allt að 750 þúsund
manns leggi leið sína í Westminster
Hall og almenningur hefur enn tæki-
færi til þess votta drottningunni
virðingu þar sem kistan verður á
sínum stað næstu þrjá sólarhringa
en jarðarför Elísabetar fer fram á
mánudag. n
Komst svefnvana eftir 65.000 skref að kistu drottningar
Stöðugur og langur straumur fólks liggur að kistu Elísabetar II. í Westminster
Hall og þangað komst Þórarinn Snorri þreyttur en andaktugur eftir að hafa
gengið um 65.000 skref á þremur dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ég stóð í röðinni síð-
ustu nótt og komst að
undir gærmorgun.
Þórarinn Snorri
Sigurgeirsson
48 Lífið 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 17. september 2022 LAUGARDAGUR