Fréttablaðið - 17.09.2022, Síða 92
Þetta er
mjög
gaman og
ég er
þakklát að
fá svona
viðurkenn-
ingu.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
„Alþingi samankomið. Útgjöld
hækka,“ segir Björn Teitsson, þegar
hann byrjar hraðspól sitt í gegnum
fréttir vikunnar. „Pawel benti á að
við gætum fengið lestarkerfi, nas-
istar unnu kosningasigur í Svíþjóð
og í yndislegri frétt um bangsaspít-
ala gaf unglæknir hugrakkri stúlku
lyfseðil um lækningu handa slasaðri
dúkku: „Mundu að knúsa fimm
sinnum á dag, þá batnar henni.“
Íbúar Hlíða vilja borgargötu fyrir
fólk, íbúar Fossvogs vilja hraðbraut
fyrir bíla. Íbúar Laugardals vilja
íþróttahús. Strax! Spóaungar flugu
þráðbeint til Vestur-Afríku á fjórum
dögum.
Margt skemmtilegt. Sumt fúlt.
En í fréttum vikunnar var áberandi
skortur á fréttum af hinstu kveðju
kóngafólks. Fréttir af tímamótunum
sem því fylgja þegar konungborið
fólk sem hefur fylgt manni hálfa
eða heila ævi, er skyndilega horfið
á brott. Bandaríski rithöfundurinn
David Foster Wallace, hinn mikli
„dudebro“ bókmenntanna, skrifaði
einn sinn besta texta í grein sem
birtist í New York Times árið 2006.
Þar var honum tíðrætt um „Federer-
augnablik.“ Við sem höfum fylgst
með svissneska tennisspilaranum
og jafnaldra mínum Roger
Federer höfum öll orðið vitni
að augnablikum sem færa
okkur nær trúnni, nær Guði.
Því aðeins guðlegar verur eru
færar um þau kraftaverk sem
hann gat framkvæmt.
Og nú er kóngurinn
farinn, hann er
hættur. Og það
var ekkert skrifað
um það. Hvað er
að?“ n
Margt skemmtilegt og sumt fúlt
n Fréttir vikunnar
Björn Teitsson
Björn Teitsson, sér-
fræðingur hjá
Skipulags-
stofnun.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu tvöföldu
pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri og þægilegri yfirdýnu.
Gormakerfinu er skipt upp eftir svæðum þannig að það er með meiri
stuðning þar sem við erum þyngri eins og öxlum og mjöðmum. Lítil sem
engin hreyfing finnst milli rekkjunauta. Yfirdýnan (topperinn) er samsett
úr fjórum lögum og þar á meðal er gel lag (gel infused memory foam)
sem lagast algjörlega að líkamanum og heldur honum í réttri stellingu alla
nóttina. Áklæðið utan um dýnuna er silki og bómullarblanda sem andar
einstaklega vel sem og gefur extra mýkt. Millistíf dýna.
Sealy HYATT heilsurúm með botni
Sealy Hyatt heilsudýnan er framleidd fyrir Hyatt lúxus hótelkeðjuna.
Hún er gerð úr Posturpedic gormakerfi sem Sealy hefur þróað í mörg á
með það að leiðarljósi að veita stuðning og þægindi og góða endingu.
Hyatt dýnan veitir fullkominn stuðning með 6 laga svamplögum,
náttúrlegum trefjum og þykkum toppi svo þú hvílist fullkomlega.
Dýnan er með Oek-Tex vottun um að engin skaðleg efni eru í dýnunni.
Fæst í: 120/140/160/180/200 x 200
Sealy WASHINGTON
heilsurúm með botni
Hyatt heilsurúm.
160 x 200 cm – Fullt verð: 275.900 kr.
Nú 220.720 kr.
Washington heilsurúm.
160 x 200 cm – Fullt verð: 279.900 kr.
Nú 223.920 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
Gagnrýnandi breska blaðsins
The Guardian fór í gær fögr-
um orðum um Xiuxiuejar,
nýja plötu tónlistarkonunnar
Heklu Magnúsdóttur, og sagði
hana meðal annars endur-
heimta hið einstaka aðdrátt-
arafl rafmagnshljóðfærisins
þeremíns.
toti@frettabladid.is
„Það er bara gaman að fá góðar við-
tökur,“ segir tónlistarkonan Hekla
Magnúsdóttir, um mjög
svo jákvæðan dóm The
Guardian um nýju plöt-
una hennar, Xiuxiuejar.
Platan er samtímatón-
listarplata mánaðarins,
„contemporary album
of the month“, hjá The
Guardian þar sem gagn-
rýnandinn John Lewis
gaf henni fjórar stjörn-
ur af fimm mögulegum
í gær.
Hekla segir aðspurð
að þetta hafi óneitan-
lega komið henni nokkuð
í opna skjöldu þótt hún hafi nú
þegar fengið talsvert af jákvæðum
umsögnum erlendis.
„Þetta er mjög gaman og ég er
þakklát að fá svona viðurkenningu
fyrir þetta,“ segir Hekla og hlær hóg-
vær.
Þeremínið leyst úr læðingi
Hekla hefur verið virk í íslensku
tónlistarlífi frá 2007 og lék meðal
annars á þeremín með hljómsveit-
inni Bárujárni. Hún hóf sólóferil
sinn sumarið 2014 með plötunni
Hekla sem vann til Kraumsverð-
launanna það sama ár.
Þá var tónlist hennar lýst sem dul-
úðugri blöndu marglaga þeremíns
og söngs, sem kallaði fram hughrif
allt frá angist til angurværðar.
Hekla fer áfram mikinn á þerem-
íninu sem Lewis bendir á að sé oft
teflt fram sem framandi nýjung, en
Hekla leysi hins vegar raunverulega
möguleika þess úr læðingi.
Greitt úr garnaflækjum
„Guardian með puttann á púls-
inum. Þessi plata læknar öll mein
og gleður geð. Góða ferð!“ sagði
Óttarr Proppé, tónlistarmaður og
fyrrverandi ráðherra, þegar hann
deildi umsögn The Guardian í gær.
Óttarr leggur til rödd sína á
plötunni sem hann fær ekki nóg
af, ef marka má fyrri yfirlýsingu á
samfélagsmiðlinum: „Er að spá í
að hætta að sofa til að geta hlustað
oftar á þessa plötu. Nú er þetta
stóra, viðkvæma, hráa og fallega
stórvirki Heklu loksins komið út,“
skrifaði hann á sunnudaginn og
bætti við, áður en hann þakkaði
Guardian lofar Heklu fyrir
að virkja afl þeremínsins
Hekla kynntist þeremíninu fyrir margt löngu eftir að
hafa hlustað á plötu með Clara Rockmore sem ruddi
hljóðfærinu braut upp úr 1930. MYND/AÐSEND
Heklu fyrir, að þessi plata sé góð
fyrir hjartað. „Ítrekuð hlustun
kemur í veg fyrir garnaflækjur og
ferköntun.“
Snertilaus tónlist
Þeremínið er fyrsta rafmagnshljóð-
færið sem sögur fara af og heiðurinn
af því er eignaður rússneska vís-
indamanninum Léon Theremin
sem fann það upp 1919 þegar hann
var, samkvæmt Wikipedia, að rann-
saka útvörp og útvarpsbylgjur á
mismunandi tíðnum.
Hljóðfærið er það eina sem krefst
ekki snertingar hljóðfæraleikarans
sem breytir tónhæðinni með því að
hreyfa aðra höndina nær eða fjær
loftneti og hljóðstyrknum með
handahreyfingum ýmist upp eða
niður.
Að hvísla
Hekla segist þó ekki aðeins þreifa
fyrir sér við tónsmíðarnar þar sem
hún setji einnig mikið traust á selló-
ið. „Þetta eru svona þau tvö hljóð-
færi sem er oftast líkt við manns-
röddina.“
Titill plötunnar er ekki síður
framandi þeim sem ekki þekkja til
en þeremínið er þó ekki mjög lang-
sótt þegar betur er að gáð.
„Ég bjó lengi á Spáni og þetta er
katalónska,“ segir hún um nafn
plötunnar, sem er ígildi íslensku
sagnarinnar „að hvísla.“
Hafsteinn Ársælsson hannaði
umslag Xiuxiuejar sem er aðgengi-
leg á Spotify og öðrum streymisveit-
um auk þess sem hægt er að panta
hana á vínyl hjá útgefandanum
Phantom Limb á Bandcamp. n
Hekla fær 4 stjörnur fyrir töfrum slungna samtímaplötu
mánaðarins hjá The Guardian. SKJÁSKOT/THE GUARDIAN
52 Lífið 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ