Fréttablaðið - 17.09.2022, Page 93
Enn liggur leiðin
fram á við
Veröld - hús Vigdísar
Miðvikudaginn 21. september
Kl. 17:30-20:00
Krabbameinsfélagið og Samtök um krabbameinsrannsóknir á Íslandi (SKÍ) standa fyrir málþingi tileinkað
Vigdísi Finnbogadóttur, verndara Krabbameinsfélagsins, miðvikudaginn 21. september kl. 17:30-20:00
í Veröld – húsi Vigdísar. Léttar veitingar í boði frá kl. 17:00.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
Skráning er á vef Krabbameinsfélagsins (krabb.is).
Dagskrá:
• Setning - Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins
• Laufey Tryggvadóttir - Nýgengi krabbameina í Reykjanesbæ
• Valgerður J. Hjaltalín - Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7
• Álfheiður Haraldsdóttir - Brjóstakrabbamein á Íslandi árin 2000 – 2020: Samanburður á gæðum skimunar
og meinafræðilegum forspárþáttum milli kvenna á aldrinum 40 – 49 ára og 50 – 69 ára
• Berglind Ósk Einarsdóttir - Hlutverk MITF í ónæmisforðun sortuæxla
• Hrefna Stefánsdóttir - Faraldsfræði krabbameina og þátttaka í skimun meðal kvenkyns innflytjenda
á Norðurlöndum
• Stefán Sigurðsson - Stökkbreytingar og sviperfðabreytingar í eggjastokkakrabbameini á Íslandi
• Ásta B. Pétursdóttir - Aðlögun einstaklinga með krabbamein og fjölskyldna þeirra að krabbameins-
sjúkdómi: Langtímarannsókn
• Stamatia-Maria Rapti - BLIMP1 mediated Cell Cycle Control in Waldenström Macroglobulinaemia
• Hafsteinn Örn Guðjónsson - Greining, uppvinnsla og meðferð við krabbameini í blöðruhálskirtli
á Íslandi
• Jón Þórir Óskarsson - Notagildi frumuflæðisjárrannsókna í eftirfylgni einstaklinga með forstig mergæxlis
• Rannís: Bylgja Valtýsdóttir - Áherslur á fjármögnun krabbameinsrannsókna innan Horizon
Europe (Cancer mission)
• Lokaorð - Ragnheiður Haraldsdóttir, formaður Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins
Fundarstjóri: Gunnhildur Ásta Traustadóttir, formaður Samtaka um krabbameinsrannsóknir á Íslandi (SKÍ)
Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna gefur okkur tækifæri til að fræðast um krabbameinsrannsóknir og
gleðjast yfir þeim framförum sem hafa átt sér stað fyrir tilstilli þeirra. Dagurinn er líka gott tækifæri til að
undirstrika mikilvægi rannsóknanna, vísindamannanna sem stunda þær og styrktaraðila.
Málþing í tilefni Alþjóðadags
krabbameinsrannsókna: