Fréttablaðið - 22.09.2022, Side 20

Fréttablaðið - 22.09.2022, Side 20
Á Spáni, þann 17.  september klæddist Olivia Wilde öðru grænu dressi. S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS NÝTT FRÁ Olivia Wilde, leikkona og leikstjóri, stígur sjaldan feil- spor þegar kemur að tísku eins og sjá má á flíkunum sem hún hefur skartað undanfarið við kynningu á kvikmyndinni Don’t Worry Darling, sem er jafnfrant annað leikstjórnarverk hennar. jme@frettabladid.is Þegar hæfileikabúntið Olivia Wilde er ekki að rokka jakka­ fatalúkkið með hvítri skyrtu og svörtum jakka, þá er hún óhrædd við að klæðast sterkum litum sem fara henni einstaklega vel allan ársins hring. Wilde þekkja mörg úr sjónvarpinu þar sem hún lék Remy „Thirteen“ Hadley í spítaladrama­ seríunni House sem var í loftinu á árunum 2007–2012. Virtur leikstjóri Olivia Wilde var glæsileg á rauða dreglingum i Feneyjum við for­ sýningu kvikmyndarinnar Don’t Worry Darling, sem hún leikstýrði. Don’t Worry Darling er önnur kvikmyndin sem Olivia leikstýrir en áður leikstýrði hún kvikmynd­ inni Booksmart, sem hún hlaut virt verðlaun fyrir. Don’t Worry Darling er sálfræði­ tryllir byggður á sögu eftir Carey Van Dyke, Shane Van Dyke og Sil­ berman. Í myndinni leika Florence Pugh og Harry Styles að því er virðist nokkuð hamingjusöm hjón á sjötta áratugnum, sem búa í sér­ stöku tilraunasamfélagi þar sem ýmislegt grunsamlegt er á seyði. Aðrir leikarar eru Gemma Chan, Kiki Layne, Nick Kroll og Chris Pine. Einnig kemur Olivia Wilde fram í kvikmyndinni í aukahlut­ verki. Don’t Worry Darling kemur í kvikmyndahúsin 23. september. Græn Olivia Hin 38 ára leikstýra klæddist glæsilegri smaragðsgrænni Cha­ nel­dragt á forsýningunni. Undir jakkanum var hún í einföldum svörtum brjóstahaldara. Svört kúrekastígvelin sem hún klæddist gáfu annars fínlegu jakkasettinu nútímalegt yfirbragð. Á Spáni, þann 17. september, klæddist Olivia Wilde öðru grænu dressi við kynningu á kvikmynd­ inni á Alþjóðlegu kvikmynda­ hátíðinni í San Sebastian. Þar kom hún fram í glæsilegum þröngum blágrænum pallíettukjól úr haust­ línu Valentino sem fangaði athygli viðstaddra. n Grænt og glæsilegt Græna Chanel dragtin sem Wilde klæddist á forsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar, vakti mikla athygli tískusam- félagsins. Það hvernig haldarinn kíkir út um opið þótti einstak- lega smart. Olivia er glæsileg í nær hvaða lit sem er. Þessi gula dragt er úr smiðju Kwaidan Edi- tions. Þessi græni kjóll úr smiðju Valent- ino hefur réttilega verið nefndur haf- meyjukjóllinn. Hér má sjá Wilde í gullfal- legum ferskju- bleikum kjól úr smiðju Valent- ino. 4 kynningarblað A L LT 22. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.