Fréttablaðið - 22.09.2022, Síða 27

Fréttablaðið - 22.09.2022, Síða 27
Hann er klár. UFC veit af því og það lítur út fyrir að allt hafi gengið að óskum. Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars Nelson Stærsta bardaga- kvöld í Evrópu hingað til og það er eitthvað sem við viljum taka þátt í. Eftir tvöfalda aðgerð á nefi er UFC bardagakappinn Gunnar Nelson klár í slaginn á nýjan leik. Hann er með augun á fyrirhuguðu stærsta bardagakvöldi UFC í Evrópu og sambandið veit af því. aron@frettabladid.is MMAEftir y f irburðasigur gegn Takashi Sato á bardagakvöldi UFC í Lundúnum í mars á þessu ári áttu margir von á því að ekki liði á löngu þar til Gunnar myndi snúa aftur í bardagabúrið. Sú var tilfinningin í herbúðum Gunnars einnig, en eitt högg sem hann fékk á sig í bardaganum varð til þess að önnur nösin á honum lokaðist, vandamál sem var viðbú- ið. Gunnar þurfti því að fara í tvö- falda aðgerð á nefi í sumar og hefur endurhæfingin síðan þá gengið vel. Gunnar er nú klár í slaginn á nýjan leik. Haraldur Dean Nelson, umboðsmaður og faðir Gunnars, sendi UFC tilkynningu þess efnis fyrr í vikunni. Vill á risakvöldið „Staðan er sú að bara núna í vik- unni sendi ég UFC stöðuna á Gunn- ari, hann væri byrjaður að æfa á nýjan leik eftir þessa nefaðgerð og vesenið sem fylgdi því. Hann er semsagt tilbúinn í baráttuna á nýjan leik en mun þó líkt og áður þurfa sinn tíma í undirbúning fyrir bardaga,“ segir Haraldur við Frétta- blaðið. En það voru ekki einu upplýsing- arnar sem Haraldur sendi UFC. „Við tilkynntum UFC einnig þá afstöðu okkar að vilja sjá Gunnar berjast á bardagakvöldinu sem verður sniðið í kringum titilbardaga Leon Edwards og Kamaru Usman í velti- vigtardeildinni.“ Ekki er komin endanleg dag- setning á það bardagakvöld en það mun fara fram á Bretlandi og aðal- bardagi þess verður titilbardagi veltivigtardeildarinnar, þriðji bar- daginn milli ríkjandi meistarans, Bretans Leon Edwards og Kamaru Usman, fyrrum meistara deildar- innar. Dana White forseti UFC hefur áður sagt að verið sé að skoða alla stærstu leikvanga Bretlands til að hýsa bardagakvöldið. „Það verður stærsta bardaga- kvöld í Evrópu hingað til og það er eitthvað sem við höfum áhuga á að taka þátt í,“ segir Haraldur. „Sennilega verður það ekki fyrr en einhvern tímann á næsta ári og vonir okkar standa til að ná jafnvel einum bardaga fyrir það bardaga- kvöld, það yrði þó að vera vel fyrir bardagakvöldið á Bretlandi. Ég fékk þau viðbrögð frá UFC að tilkynningar okkar væru allar saman mótteknar og nú bíðum við bara og sjáum hvað verður. Við Gunnar Nelson setur stefnuna á risakvöld UFC á Bretlandi Gunnar Nelson er fyrsti og eini Íslendingurinn til þess að reyna fyrir sér í UFC til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY höfum mikinn áhuga á þessu fyrir- hugaða bardagakvöldi á Bretlandi en það sama gildir líka um alla aðra bardagamenn í UFC. Þetta verður risakvöld.“ Vinsæll í Evrópu Gunnar hefur notið, og nýtur enn, mikillar hylli innan UFC áhuga- fólks á Bretlandseyjum og Evr- ópu. Þá er sambandið milli hans og Edwards, ríkjandi meistarans, mjög gott. „Ég vona að þetta vinni með okkur. Sambandið við Edwards er gott þrátt fyrir að hann og Gunnar hafi mæst í bardagabúrinu á sínum tíma.“ Vinsældir Gunnars gætu hins vegar unnið á móti honum í þess- um efnum. „UFC setur Gunnar iðulega á ákveðin bardagakvöld til þess að auka miðasölu sökum vinsælda hans, sér í lagi í Evrópu. Kannski sér sambandið ekki þörf á því á þessu stóra bardagakvöldi sem er í smíðum á Bretlandi. UFC gæti þess vegna séð hag sinn í því að setja hann á annað bardagakvöld því það mun seljast upp á þetta kvöld mjög f ljótt.“ Hann er klár Haraldur segir endurhæf ingu Gunnars síðastliðna mánuði hafa gengið mjög vel. „Hann fór í seinni aðgerðina í lok júní og þurfti að taka því rólega fyrst um sinn, fara varlega í að minnsta kosti tvo til þrjá mánuði. Það eru ekki liðnir þrír mánuðir en hann er byrjaður að æfa á fullu. Auðvitað tökum við varfærnisleg skref fyrst enda viljum við að þetta sé hundrað prósent, það er betra að taka tveimur vikum lengur en skemur til að tryggja þetta. Hann er hins vegar klár, UFC veit af því og það lítur út fyrir að allt hafi gengið að óskum.“ n ÍÞRÓTTAVIKAN MEÐ BENNA BÓ FÖSTUDAGA KL. 21.00 Benedikt Bóas fær til sín góða gesti til að ræða íþróttavikuna sem leið og skoðar það helsta sem gerðist á léttu nótunum. FIMMTUDAGUR 22. september 2022 Íþróttir 19FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.