Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 11
Í dag eru sjö mánuðir
liðnir frá því að innrás
Rússa í Úkraínu hófst.
Áminning um
framtalsskil lögaðila
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa ekki
staðið skil á skattframtali 2022 ásamt ársreikningi,
eru hvattir til að annast skil hið allra fyrsta.
Skráður lögaðili skal ætíð skila skattframtali vegna
undangengins reikningsárs, jafnvel þó að engin eiginleg
starfsemi eða rekstur hafi átt sér stað á reikningsárinu.
Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi
til ársreikningaskrár.
Skattframtali og ársreikningi ber að skila rafrænt
á skattur.is
Álagning opinberra gjalda á lögaðila árið 2022
vegna rekstrarársins 2021 fer fram 31. október.
Lokaskiladagur
skattframtals
lögaðila er
30. september
kristinnpall@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Rannsók narnefnd á
vegum Sameinuðu þjóðanna hefur
komist að þeirri niðurstöðu að það
hafi ýmsir stríðsglæpir átt sér stað í
stríðinu í Úkraínu. Talsmenn rúss-
nesku ríkisstjórnarinnar fullyrða
að um sé að ræða rógsherferð.
„Byggt á þeim sönnunargögnum
sem rannsóknarnefndin hefur
undir höndum er hægt að fullyrða
að stríðsglæpir hafa átt sér stað í
Úkraínu,“ sagði Erik Mose, formað-
ur rannsóknarnefndarinnar þegar
hann kynnti niðurstöðurnar.
Mose vildi ekki nefna hvaða aðilar
hafa verið að verki en sagði að rann-
sóknin beindist að atvikum sem
áttu sér stað í nánd við Kænugarð,
Tsjerníhív, Kharkív og Súmíj.
Hann bætti við að ríkisstjórn
Úkraínu hefði verið liðleg í aðstoð
sinni og veitt þeim upplýsingar, en að
yfirvöld í Moskvu hefðu ekki svarað
fyrirspurnum þeirra.
Í rannsókn sinni fór rannsóknar-
nefndin í 27 mismunandi bæjar-
félög og ræddi við 150 einstaklinga
sem voru ýmist þolendur ofbeldisins
eða gátu veitt vitnisburð. Þá skoðaði
nefndin svæði sem urðu fyrir gjör-
eyðileggingu, fjöldagrafir og hús-
næði sem voru nýtt til fangavistunar
og pyntinga. Út frá vettvangsferðinni
var hægt að álykta að það hefðu
stríðsglæpir átt sér stað.
Að sögn nefndarinnar blöskraði
henni að sjá hversu margar aftökur
hefðu átt sér stað og hún væri að afla
sér gagna eftir að hafa heyrt af fleiri
ólöglegum aftökum. Þá lýstu ein-
staklingar sem voru teknir í gíslingu
í Rússlandi ýmsum pyntingum og
að það hefðu ekki allir skilað sér
aftur.
Að lokum fundust dæmi um mis-
munandi kynferðislegt ofbeldi þar
sem aldursbil þolenda var á bilinu
fjögurra ára til 82 ára og að í ein-
hverjum tilvikum hefði aðstand-
endur verið vitni að glæpunum. n
Staðfestu að stríðsglæpir hefðu átt sér stað í Úkraínu
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 Stjórnvöld í Hong Kong
samþykktu í gær að falla frá kröfum
um dvöl á sóttkvíarhóteli við kom-
una til landsins, um tveimur og
hálfu ári eftir að henni var komið á.
Gerð verður krafa um að einstakl-
ingar sem komi til landsins fylgist
með eigin heilsu fyrstu dagana og
verður þeim bannað að sækja veit-
ingastaði heim fyrstu dagana.
Um leið var fallið frá kröfu um
PCR-próf áður en farið er um borð
í f lugvél á leiðinni til Hong Kong en
þess í stað þurfa allir einstaklingar
að taka hraðpróf. Um tíma var þess
krafist að einstaklingar sem kæmu
til landsins færu í þriggja vikna
sóttkví á hóteli en aðgerðirnar hafa
haft áhrif á efnahagslíf Hong Kong.
Um 113 þúsund einstaklingar
hafa f lutt frá Hong Kong á rúmu
ári og fjölmörg flugfélög hafa hætt
við áætlunarflug til landsins vegna
aðgerðanna á landamærunum. n
Falla frá kröfu um
sóttkvíarhóteldvöl
kristinnpall@frettabladid.is
BRETLAND Á sama degi og ný ríkis-
stjórn Liz Truss kynnti aðgerðir
til að rétta af efnahag Bretlands,
hrundi gengi sterlingspundsins um
tvö prósent.
Pundið hefur átt undir högg að
sækja undanfarnar vikur og hrundi
gengið fljótlega eftir að aðgerðirnar
voru kynntar. Gengið hefur ekki
verið lægra miðað við dollarann í
tæp fjörutíu ár.
Kwasi Kwarteng, fjármálaráð-
herra Breta, boðaði nýjar áherslur
á breyttum tímum með áherslu á
hagvöxt, þegar kom að aðgerðum
bresku ríkisstjórnarinnar í gær.
Kwasi boðaði skattalækkanir sem
ná helst til tekjuhæstu hópanna,
lækkun gjalda við fasteignakaup
og hætti við fyrirhugaða hækkun á
fyrirtækjaskatti.
Með þessu afskrifar ríkisstjórnin
um 45 milljarða punda til næstu
fimm ára.
Þá lofaði Kwasi efnahagsaðstoð
upp á 60 milljarða punda þegar
kemur að því að greiða rafmagns-
reikninga heimilanna næstu sex
mánuði, en féll frá tillögu um að
hækka skatta á olíufyrirtækin. n
Gengi pundsins í
sögulegri lægð
Yfirvöld í Hong Kong eru búin að
gefa eftir á landamærunum.
LAUGARDAGUR 24. september 2022 Fréttir 11FRÉTTABLAÐIÐ