Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 32
Við heyrum æ oftar af ungmennum sem nýta sér Sefitude til að komast yfir tíma- bundinn kvíða, en börn niður í tólf ára mega nota Sefitude. Karl Guðmundsson Matarbloggið Elisabets food corner er tileinkað móður Elísabetar Óskar Sigurðar- dóttur sem lést árið 2019. Þar birtir hún uppskriftir sem sameina það að vera ódýrar, hollar og auðveldar. starri@frettabladid.is Matarbloggið Elisabets food corner fór í loftið á Instagram í sumar. Það er Elísabet Ósk Sigurðar- dóttir sem stendur á bak við það en hún hefur búið í Danmörku síðan 1996 og er síðan því á dönsku. „Ég hef lengi haft áhuga á matargerð og breyti til dæmis öllum uppskriftum sem ég nota. Áhugi minn á matargerð jókst enn frekar þegar ég hóf að elda fyrir móður mína og stjúpföður daglega í tvö ár. Á þeim tíma glímdi móður mín oft við mikla ógleði vegna lyfjameðferðar. Það hjálpaði henni stundum að koma smá mat niður ef ég gerði matinn litríkari og girnilegri á diskinum.“ Elisabets food corner er til- einkuð móður hennar sem lést 2019. „Hún hefði svo sannarlega elskað að fylgjast með mér halda áfram að þróa mig í matargerð og þróa síðuna mína enn frekar á Insta gram.“ Á þessum tíma hóf hún líka meiri tilraunastarfsemi í eld- húsinu. „Þær tilraunir enduðu oft með öðruvísi hugmyndum, eins og að búa til rasp úr kartöflu- og gulrótarskræli ásamt brauði. Raspið notaði ég svo til að elda hrísgrjónakúlur úr afgöngum af hrísgrjónum sem ég átti, en þá uppskrift má finna á síðunni.“ Alltaf vinsæl í eldhúsinu Hún segist enga menntun hafa Elskar að gefa öðrum innblástur og hugmyndir Elísabet Ósk Sigurðardóttir setti matarbloggið Elisabets food corner í loftið í sumar. Í dag er hún með yfir fimm þúsund fylgjendur. Spínatvaffla með reyktum laxi og kavíar-dressingu hljómar spennandi. Gulrótarsúpa er frábær og ódýr kostur þegar taka þarf til í grænmetisskúffunni. MYNDIR/AÐSENDAR eða starfsreynslu þegar kemur að matargerð. „En maturinn minn hefur alltaf verið vinsæll hjá öllum sem hafa borðað hjá mér, bæði ættingjum og vinum. Undanfarin ár hafa ættingjar, vinir og jafnvel fólk sem ég þekki ekki, en hefur séð matinn minn á matarsíðum á Facebook, verið að þrýsta á mig að setja upp einhvers konar matar- síðu á Instagram.“ Einn daginn nennti sonur hennar ekki að bíða lengur eftir frumkvæði frá henni. Hann fékk símann lánaðan hjá henni, bjó til síðuna og þannig byrjaði þetta allt saman. „Þau sem þekkja mig vita að ég elska þegar ég get gefið öðrum innblástur og hugmyndir í sambandi við mat og sparnað. Instagram og Facebook eru full- kominn vettvangur til að dreifa því meira en bara á meðal minna nánustu.“ Elísabet segist aldrei hafa átt von á miklum vinsældum síðunnar en í dag hefur hún rúmlega fimm þúsund fylgjendur eftir að hafa verið í loftinu í nokkra mánuði. Stuttur eldunartími Inn á Elisabets food corner reynir hún að birta uppskriftir sem sam- eina það að vera ódýrar, hollar og auðveldar. „Stundum lauma ég inn uppskriftum sem eru aðeins í dýrari kantinum. Ég nota mikið grænmeti, bæði til að drýgja Sefitude frá Florealis er eina lyfið við kvíða og svefn- truflunum sem fæst án lyf- seðils á Íslandi. Nú þegar haustar og skammdegið hellist yfir okkur finna fjölmargir fyrir auknum kvíða með tilheyr- andi svefnleysi. „Þessi árstími getur reynst fólki erfiður og oft er aukið álag. Við ætlum okkur að klára allt og græja það sem sat á hakanum í sumar- fríinu, en samhliða auknum verkefnum getur kvíði og svefn- leysi læðst að okkur,“ segir Karl Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Florealis. Hann segir kvíða og svefnleysi nátengd fyrirbæri sem geta haft lamandi áhrif á daglegt líf. „Ef við missum tökin á kvíða í lengri tíma getur verið erfitt að vinda ofan af vandamálinu. Það er því mikilvægt að grípa sem fyrst inn í áður en málin f lækjast,“ heldur Karl áfram. Hefur hjálpað þúsundum Íslendinga Sefitude frá Florealis hefur hjálpað þúsundum Íslendinga við að bæta svefn og draga úr kvíða. Lyfið er unnið úr garðabrúðurót (Valeriana) en fjölmargar rann- sóknir staðfesta róandi virkni jurtarinnar. „Sefitude er tekið inn að kvöldi til að ná ró og sofna. Það getur dregið úr því að maður vakni oft á nóttunni og stuðlað að sam- Förum útsofin og áhyggjulaus í gegnum daginn Karl Guð- mundsson er framkvæmda- stjóri Florealis. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON felldum svefni. Sefitude er hvorki sljóvgandi né ávanabindandi, sem er lykilatriði til að maður vakni hress og vel úthvíldur,“ bætir Karl við. „Við heyrum æ oftar af ung- mennum sem nýta sér Sefitude til að komast yfir tímabundinn kvíða, en börn niður í tólf ára mega nota Sefitude,“ segir Karl að lokum. n Vissirðu þetta um Sefitude? n Sefitude er róandi og kvíðastillandi lyf. n Viðurkennt lyf sem fæst án lyfseðils í öllum apó- tekum. n Unnið úr garðabrúðurót (Valeriana). n Fjölmargar klínískar rann- sóknir staðfesta virkni jurtarinnar. Gagnlegar upplýsingar Sefitude fæst án lyfseðils í öllum apótekum. n Notkun við svefntrufl- unum: 1 tafla ½-1 klst. fyrir svefn fyrir fullorðna og ung- menni eldri en 12 ára. n Notkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 á dag fyrir ungmenni 12-18 ára. Sefitude er tekið inn að kvöldi til að ná ró og sofna. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is. kjötið og gera uppskriftirnar hollari. Margar þessara uppskrifta þarfnast lítils undirbúnings og eldunartíminn er stuttur, jafnvel bara fimmtán mínútur, sem hentar til dæmis barnafjölskyldum vel og tímabundnu fólki. Einnig birti ég talsvert af uppskriftum þar sem ég nota Airfryer sem er mjög vinsælt núna.“ Mjög hagsýn í matargerð Utan Elisabets food corner heldur Elísabet líka úti Facebook-síðunni Ódýrar mataruppskriftir og sparn- aðarráð. „Ég hef alltaf verið þekkt fyrir að vera ótrúlega hagsýn þegar kemur að matargerð og öllu öðru. Í mörg ár hef ég tekið út ákveðna upphæð vikulega sem þarf að duga fyrir mat og öðrum innkaupum þá vikuna, sem endar oft í keppni hjá mér að spara meira en vikuna á undan. Á þessari Facebook-síðu deili ég sparnaðarhugmyndum mínum og ódýrum uppskriftum.“ Matarverð hefur farið hækkandi víða í heiminum undanfarin ár og er Danmörk engin undantekning. „Á þessum tímum, með hækkandi verði á flestöllu, mun ég fókusa enn meira á sparnað og hagsýni í matargerð og um leið í hversdags- lífinu. Á næstu mánuðum stefni ég á að setja inn fleiri baksturs-, haust- og vetraruppskriftir. Súpur eru til dæmis frábær möguleiki þegar taka þarf til í grænmetis- skúffunni og elda mat sem er bæði hollur og ódýr og auk þess með fáum hráefnum.“ Hægt er skoða ódýrar og hollar uppskriftir á Instagram (elisa- betsfoodcorner) en þar er hægt að þýða uppskriftir úr dönsku yfir á ensku. Inn á Facebook (Ódýrar mataruppskriftir og sparnaðar- ráð) má jafnframt finna gagnleg sparnaðarráð. n 4 kynningarblað A L LT 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.