Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 92
Samkvæmt frétt bílatímarits-
ins Autocar mun væntanlegur
rafbíll Toyota, sem fá mun
nafni bZ3, fara fyrst á markað
í Kína þar sem slíkir bílar eru
enn mjög vinsælir. Líklegt má
teljast að stutt sé í að bíllinn
komi á markað í Evrópu en
talað hefur verið um 2024 í
því sambandi.
njall@frettabladid.is
Athyglisvert er að Toyota gerði
nýlega samstarfssamning við kín-
verska bílarisann BYD um notkun
á nýju Blade-raf hlöðunni sem að
getur tekið við meiri orku en aðrar
raf hlöður af sömu stærð. Er nýju
raf hlöðunni ætlað að vera í bZ3
líkt og hinum áhugaverða Seal frá
BYD, en báðir þessir bílar munu þá
keppa beint við Tesla Model 3.
Samkvæmt tækniupplýsingum
um bílinn frá iðnaðarráðuneyti
Kína verður bZ3 með annað hvort
178 eða 238 hestaf la rafmótor og
mun eigin þyngd vera á bilinu
1.710-1.840 kíló. Ef bZ3 mun nota
sömu 64,5 kWst raf hlöðu og nýr
BYD Atto 3, sem hefur 420 km
drægi, mun bZ3 hafa aðeins meira
þar sem hann er með minni loft-
mótstöðu. n
bZ3 fyrst á Kínamarkað
Stutt er síðan myndum af Toyota bZ3 var lekið á netið en hann er svipaður að stærð og Tesla Model 3.
njall@frettabladid.is
Með tilkomu nýs Kia Niro á mark-
að var þess stutt að bíða að önnur
kynslóð Hyundai Kona kæmi á
markað. Samkvæmt veftímaritinu
Auto Express verður bíllinn frum-
sýndur snemma á næsta ári, en
verið er að prófa frumgerðir hans
um þessar mundir. Búast má við að
bíllinn verði á sama K3-undirvagni
og Niro EV og mun því líklega koma
sem tvinnbíll, tengiltvinnbíll og
raf bíll, eins og hann. Tvinnbíllinn
mun fá 1,6 lítra bensínvél og 1,32
kWst rafhlöðu svo að hann fær um
140 hestöf l. Hyundai Kona hefur
hingað til ekki verið boðinn sem
tengil tvinnbíll og ekki er víst að
svo verði. Raf bíllinn mun fá 64,8
kWst rafhlöðuna ásamt 201 hestafla
mótor á framdrifið. n
Ný Kona á markað á næsta ári
Með betra loftflæði er líklegt að bíllinn nái 500 km drægi. MYND/AUTO EXPRESS
njall@frettabladid.is
Kominn var tími til þess að Subaru
XV fengi andlitslyftingu, en önnur
kynslóð bílsins kom á markað árið
2018. Von er á þeirri útgáfu áður en
langt um líður en tilkynnt hefur
verið um bílinn fyrir Japansmarkað.
Má því búast við að bíllinn komi til
Evrópu seint á næsta ári, en um leið
fær bíllinn nafnið Crosstrek.
Að sögn Subaru er í raun um þriðju
kynslóð bílsins að ræða, en Cros-
strek-nafnið mun ekki leysa XV af
hólmi alls staðar. Eins og sjá má af
myndum er framendinn alveg nýr
hvar sem á er litið en að aftan minnir
bíllinn nokkuð á Outback. Það er líka
ný hönnun innandyra, en kominn er
11,6 tommu lóðréttur skjár í miðju-
stokkinn sem inniheldur meðal ann-
ars stjórnborð fyrir miðstöð. Mæl-
arnir í mælaborði fá þó að halda sér
áfram. Bíllinn mun fá tvinnútfærslu
tveggja lítra Boxer-vélarinnar. n
Subaru XV fær nýtt andlit og nafn
Framendinn er með þynnri ljósum, stærra grilli og endurhönnuðum stuðara
og þokuljósum en að öðru leyti er bíllinn svipaður og áður. MYND/SUBARU
Toyota gerði samstarfs-
samning við kínverska
bílarisann BYD um
notkun á nýju Blade
rafhlöðunni í Toyota
bZ3.
44 Bílar 24. september 2022 FRÉTTABLAÐIÐ
Barónsstígur 8-24
Akureyri 24/7
Reykjanesbær 24/7
*0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni
Gló skál og gos 500ml*
Gló pasta og gos 500ml*
1.599 kr.
Gló vefja og gos 500ml*
Gló to go!
1.299 kr.
999 kr.
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR