Fréttablaðið - 24.09.2022, Side 32
Við heyrum æ oftar
af ungmennum
sem nýta sér Sefitude til
að komast yfir tíma-
bundinn kvíða, en börn
niður í tólf ára mega nota
Sefitude.
Karl Guðmundsson
Matarbloggið Elisabets food
corner er tileinkað móður
Elísabetar Óskar Sigurðar-
dóttur sem lést árið 2019. Þar
birtir hún uppskriftir sem
sameina það að vera ódýrar,
hollar og auðveldar.
starri@frettabladid.is
Matarbloggið Elisabets food
corner fór í loftið á Instagram í
sumar.
Það er Elísabet Ósk Sigurðar-
dóttir sem stendur á bak við það
en hún hefur búið í Danmörku
síðan 1996 og er síðan því á
dönsku. „Ég hef lengi haft áhuga
á matargerð og breyti til dæmis
öllum uppskriftum sem ég nota.
Áhugi minn á matargerð jókst
enn frekar þegar ég hóf að elda
fyrir móður mína og stjúpföður
daglega í tvö ár. Á þeim tíma
glímdi móður mín oft við mikla
ógleði vegna lyfjameðferðar. Það
hjálpaði henni stundum að koma
smá mat niður ef ég gerði matinn
litríkari og girnilegri á diskinum.“
Elisabets food corner er til-
einkuð móður hennar sem lést
2019. „Hún hefði svo sannarlega
elskað að fylgjast með mér halda
áfram að þróa mig í matargerð
og þróa síðuna mína enn frekar á
Insta gram.“
Á þessum tíma hóf hún líka
meiri tilraunastarfsemi í eld-
húsinu. „Þær tilraunir enduðu oft
með öðruvísi hugmyndum, eins
og að búa til rasp úr kartöflu- og
gulrótarskræli ásamt brauði.
Raspið notaði ég svo til að elda
hrísgrjónakúlur úr afgöngum af
hrísgrjónum sem ég átti, en þá
uppskrift má finna á síðunni.“
Alltaf vinsæl í eldhúsinu
Hún segist enga menntun hafa
Elskar að gefa öðrum innblástur og hugmyndir
Elísabet Ósk Sigurðardóttir setti
matarbloggið Elisabets food corner
í loftið í sumar. Í dag er hún með yfir
fimm þúsund fylgjendur.
Spínatvaffla með reyktum laxi og kavíar-dressingu
hljómar spennandi.
Gulrótarsúpa er frábær og ódýr kostur þegar taka þarf til
í grænmetisskúffunni. MYNDIR/AÐSENDAR
eða starfsreynslu þegar kemur að
matargerð. „En maturinn minn
hefur alltaf verið vinsæll hjá öllum
sem hafa borðað hjá mér, bæði
ættingjum og vinum. Undanfarin
ár hafa ættingjar, vinir og jafnvel
fólk sem ég þekki ekki, en hefur
séð matinn minn á matarsíðum á
Facebook, verið að þrýsta á mig að
setja upp einhvers konar matar-
síðu á Instagram.“
Einn daginn nennti sonur
hennar ekki að bíða lengur eftir
frumkvæði frá henni. Hann fékk
símann lánaðan hjá henni, bjó til
síðuna og þannig byrjaði þetta
allt saman. „Þau sem þekkja mig
vita að ég elska þegar ég get gefið
öðrum innblástur og hugmyndir
í sambandi við mat og sparnað.
Instagram og Facebook eru full-
kominn vettvangur til að dreifa
því meira en bara á meðal minna
nánustu.“
Elísabet segist aldrei hafa átt von
á miklum vinsældum síðunnar
en í dag hefur hún rúmlega fimm
þúsund fylgjendur eftir að hafa
verið í loftinu í nokkra mánuði.
Stuttur eldunartími
Inn á Elisabets food corner reynir
hún að birta uppskriftir sem sam-
eina það að vera ódýrar, hollar og
auðveldar. „Stundum lauma ég
inn uppskriftum sem eru aðeins
í dýrari kantinum. Ég nota mikið
grænmeti, bæði til að drýgja
Sefitude frá Florealis er eina
lyfið við kvíða og svefn-
truflunum sem fæst án lyf-
seðils á Íslandi.
Nú þegar haustar og skammdegið
hellist yfir okkur finna fjölmargir
fyrir auknum kvíða með tilheyr-
andi svefnleysi.
„Þessi árstími getur reynst fólki
erfiður og oft er aukið álag. Við
ætlum okkur að klára allt og græja
það sem sat á hakanum í sumar-
fríinu, en samhliða auknum
verkefnum getur kvíði og svefn-
leysi læðst að okkur,“ segir Karl
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Florealis.
Hann segir kvíða og svefnleysi
nátengd fyrirbæri sem geta haft
lamandi áhrif á daglegt líf.
„Ef við missum tökin á kvíða í
lengri tíma getur verið erfitt að
vinda ofan af vandamálinu. Það
er því mikilvægt að grípa sem
fyrst inn í áður en málin f lækjast,“
heldur Karl áfram.
Hefur hjálpað þúsundum
Íslendinga
Sefitude frá Florealis hefur
hjálpað þúsundum Íslendinga við
að bæta svefn og draga úr kvíða.
Lyfið er unnið úr garðabrúðurót
(Valeriana) en fjölmargar rann-
sóknir staðfesta róandi virkni
jurtarinnar.
„Sefitude er tekið inn að kvöldi
til að ná ró og sofna. Það getur
dregið úr því að maður vakni oft
á nóttunni og stuðlað að sam-
Förum útsofin og áhyggjulaus í gegnum daginn
Karl Guð-
mundsson er
framkvæmda-
stjóri Florealis.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
felldum svefni. Sefitude er hvorki
sljóvgandi né ávanabindandi, sem
er lykilatriði til að maður vakni
hress og vel úthvíldur,“ bætir Karl
við.
„Við heyrum æ oftar af ung-
mennum sem nýta sér Sefitude
til að komast yfir tímabundinn
kvíða, en börn niður í tólf ára
mega nota Sefitude,“ segir Karl að
lokum. n
Vissirðu þetta um Sefitude?
n Sefitude er róandi og
kvíðastillandi lyf.
n Viðurkennt lyf sem fæst
án lyfseðils í öllum apó-
tekum.
n Unnið úr garðabrúðurót
(Valeriana).
n Fjölmargar klínískar rann-
sóknir staðfesta virkni
jurtarinnar.
Gagnlegar upplýsingar
Sefitude fæst án lyfseðils í
öllum apótekum.
n Notkun við svefntrufl-
unum:
1 tafla ½-1 klst. fyrir svefn
fyrir fullorðna og ung-
menni eldri en 12 ára.
n Notkun við vægum kvíða:
1 tafla 1-3 sinnum á dag
fyrir fullorðna og 1 tafla
1-2 á dag fyrir ungmenni
12-18 ára.
Sefitude er tekið inn að
kvöldi til að ná ró og sofna.
Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.
kjötið og gera uppskriftirnar
hollari. Margar þessara uppskrifta
þarfnast lítils undirbúnings og
eldunartíminn er stuttur, jafnvel
bara fimmtán mínútur, sem hentar
til dæmis barnafjölskyldum vel og
tímabundnu fólki. Einnig birti ég
talsvert af uppskriftum þar sem ég
nota Airfryer sem er mjög vinsælt
núna.“
Mjög hagsýn í matargerð
Utan Elisabets food corner heldur
Elísabet líka úti Facebook-síðunni
Ódýrar mataruppskriftir og sparn-
aðarráð. „Ég hef alltaf verið þekkt
fyrir að vera ótrúlega hagsýn þegar
kemur að matargerð og öllu öðru.
Í mörg ár hef ég tekið út ákveðna
upphæð vikulega sem þarf að duga
fyrir mat og öðrum innkaupum
þá vikuna, sem endar oft í keppni
hjá mér að spara meira en vikuna
á undan. Á þessari Facebook-síðu
deili ég sparnaðarhugmyndum
mínum og ódýrum uppskriftum.“
Matarverð hefur farið hækkandi
víða í heiminum undanfarin ár og
er Danmörk engin undantekning.
„Á þessum tímum, með hækkandi
verði á flestöllu, mun ég fókusa
enn meira á sparnað og hagsýni í
matargerð og um leið í hversdags-
lífinu. Á næstu mánuðum stefni
ég á að setja inn fleiri baksturs-,
haust- og vetraruppskriftir. Súpur
eru til dæmis frábær möguleiki
þegar taka þarf til í grænmetis-
skúffunni og elda mat sem er bæði
hollur og ódýr og auk þess með
fáum hráefnum.“
Hægt er skoða ódýrar og hollar
uppskriftir á Instagram (elisa-
betsfoodcorner) en þar er hægt að
þýða uppskriftir úr dönsku yfir
á ensku. Inn á Facebook (Ódýrar
mataruppskriftir og sparnaðar-
ráð) má jafnframt finna gagnleg
sparnaðarráð. n
4 kynningarblað A L LT 24. september 2022 LAUGARDAGUR