Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 18
Þeir vilja vinna allar
keppnir hvort sem þeir
eru 34 ára eða 19 ára.
Það er skemmtileg
blanda í hópnum.
Arnar Þór Viðarsson
Ég var ekki hissa á því
hversu vel Davíð stóð
sig því þetta hefur
hann verið að gera í
Svíþjóð.
Arnar Þór Viðarsson
18 Íþróttir 24. september 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Arnar Þór Viðarsson, lands-
liðsþjálfari karlalandsliðsins
í knattspyrnu, stefnir á að
vera með tilbúna vöru sem
er klár í hvaða verkefni sem
er á næsta ári. Íslenska liðið
vann 1-0 sigur á Venesúela í
vináttulandsleik á þriðjudag
og mætir Albaníu í Tirana í
Þjóðadeildinni á þriðjudag.
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason, Aron
Einar Gunnarsson og Guðlaugur
Victor Pálsson snéru allir til baka í
sigri íslenska liðsins á fimmtudag.
Andstæðingarnir frá Suður-Amer-
íku voru fastir fyrir og spörkuðu í
nokkur skipti hressilega í íslensku
drengina. Arnór Sigurðsson fór
verst út úr því og fór meiddur af
velli snemma leiks. „Arnór er bara
ágætur, hann fékk högg rétt fyrir
ofan ökklann. Hann snéri sig ekk-
ert, það er bólga sem þarf að fá sinn
tíma. Við erum þokkalega jákvæðir
með að hann verði í lagi á þriðju-
daginn,“ sagði Arnar Þór tæpum
sólarhring eftir leikinn sem fram
fór í Austurríki.
„Þeir voru fastir fyrir sem er
kannski týpískt fyrir lið frá Suður-
Ameríku, landslið þaðan eru oft
föst fyrir. Það er mikil tækni, hraði
og ákefð í öllu sem þeir gera og þeir
voru farnir að pirra sig meira en við
í gær. Við vorum með stjórn á leikn-
um og þeir komust ekki í sinn takt,
ekki í þau svæði og á þá leikmenn
sem þeir vildu komast á. Þá kemur
pirringur og tæklingar, æfingaleikir
eru ekkert sem er til í landsleikjum.
Menn vilja bara vinna alla leiki.“
Það góða og það slæma
Arnar Þór og Jóhannes Karl Guð-
jónsson hafa farið yfir leikinn og
það sem var vel gert og það sem
betur hefði mátt fara. „Við fórum
í það eftir leik og svo í gærmorgun
að skoða leikinn og við vorum mjög
ánægðir með varnarleikinn í heild
sinni. Þeir voru ekki að skapa sér
neitt, þeir skapa sér eitt erfitt færi
í seinni hálf leik en að öðru leyti
sköpuðu þeir ekki neitt nema þegar
við gáfum þeim nokkur augna-
blik í fyrri hálf leik. Við vorum
mjög ánægðir með pressuna okkar
og færslurnar. Við vorum að vinna
boltann ofarlega á vellinum, heilt
yfir var stjórnunin á leiknum góð.
Arnar vill hafa tilbúna vöru á næsta ári
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
Við réðum ferðinni og hraðanum á
leiknum. Það sem við viljum bæta
og það sem mér fannst við bæta í
seinni hálfleik var sóknarleikurinn,
koma boltanum inn í hættusvæðin.
Við gerðum það betur í seinni hálf-
leik. Við viljum skapa meira og
skora meira.“
Arnar vonast til þess að íslenska
liðið sé að læra betur að stýra leikj-
um. „Við viljum ekki missa leikina
í borðtennisleik. Að það sé fram og
til baka og upp og niður, það hefur
með reynslu að gera. Að við stjórn-
um leiknum betur, við þurfum ekki
að leita lengi að því af hverju það er
að ganga betur núna. Við höfum
betri blöndu í hópnum og liðinu
okkar, reynslu og yngri leikmenn.“
Lofsyngur Davíð Kristján
Vinstr i bak vörður inn, Dav íð
Kristján Ólafsson, kom mörgum á
óvart með frammistöðu sinni gegn
Venesúela en undanfarna mánuði
hefur hann fengið mikið traust
frá Arnari. Davíð Kristján hefur
bætt leik sinn mikið undanfarið
og þá sérstaklega eftir að hann hóf
að spila með Kalmar FF í sænsku
úrvalsdeildinni. „Við vorum mjög
ánægðir með Davíð í sumar og
það sem við höfum verið að sjá frá
honum í sínu félagsliði er einfald-
lega mjög gott. Í júní er Davíð að
spila sína fyrstu alvöru A-lands-
leiki, það tekur tíma fyrir menn
að ná ró í leiknum. Hann er með
frábærar varnarfærslur og er virki-
lega góður sóknarlega, hann getur
haldið í boltann. Við höfum unnið í
því að þegar við vinnum boltann að
við höldum betur í hann. Ég var ekki
hissa á því hversu vel Davíð stóð sig
því þetta hefur hann verið að gera
í Svíþjóð.“
Aukin breidd fyrir Arnar
Með komu eldri leikmanna hefur
breiddin í landsliðshópi Arnars
aukist og von er á því að Jóhann
Berg Guðmundsson og Sverrir Ingi
Ingason komi aftur inn í hópinn
í næstu verkefnum. „Það er ekki
bara komin meiri breidd, það er líka
komin reynsla í yngri leikmennina.
Því meiri reynsla sem við fáum þar
inn því betri verða þeir. Við eigum
enn þá nokkra leikmenn inni fyrir
framtíðina. Við höfum talað um
það mjög lengi og við erum nær
því núna að vera með fullkomna
blöndu í hópnum. Það er ekki hollt
að vera með mjög gamalt lið en það
er heldur ekki hollt að vera með
mjög ungt lið, við viljum hafa breidd
í hópnum. Við eigum nokkra leik-
menn inni til góða sem er frábært.
Það er góður stígandi í liðinu, það
er rosalega gott að fá þessa reynslu-
miklu leikmenn inn til að hjálpa
þeim ungu. Það er auðveldara að
stjórna leik með betri blöndu.“
Ísland þarf að bíða og vona eftir
því að Ísrael vinni ekki Alban-
íu í Þjóðadeildinni í kvöld. Verði
úrslitin hagstæð getur íslenska liðið
unnið riðilinn með sigri í Albaníu.
„Við töluðum um það eftir 2021 að
á þessu ári vildum við ekki vera að
spila á svona rosalega mörgum leik-
mönnum eins og við vorum að gera
þá. Við erum á góðri leið með ná
utan um það. Leikurinn á þriðjudag
gæti orðið mjög stór, vonandi eigum
við möguleika á að vinna riðilinn.
Það er risa leikur fyrir ungu leik-
mennina sem gætu verið að spila
landsleik með mikið undir, ef við
getum unnið riðilinn þá erum við
að setja okkur í þá stöðu að vera
komnir í umspil,“ segir Arnar og á
þar við um umspil fyrir laust sæti á
Evrópumótinu árið 2024 en undan-
keppnin fer öll fram á næsta ári.
„Þessi leikur á þriðjudag og leik-
irnir í nóvember eru lokaundirbún-
ingur fyrir 2023, þá þarf liðið að vera
tilbúið. Það er ekki hægt að byggja
upp lið í mörg ár, við höfum efnivið
til að ná langt. Ég er mjög jákvæður
á að við séum á mjög góðri leið að
búa til mjög gott lið aftur.“
Aukin gæði á æfingum
Arnar segir að gæðin á æfingum sé
meiri með endurkomu eldri leik-
manna, þeir hafi náð langt á sínum
ferli. Hann segir að yngri leikmenn-
irnir ýti svo við þeim gömlu. „Það er
mjög mikið hungur í hópnum. Við
vorum með Birkir Bjarnason sem
hefur hjálpað yngri leikmönnum
undanfarna mánuði, þegar þeir eru
fjórir eða fimm þá sérðu mun. Þessir
eldri leikmenn hafa náð langt af því
að þeir hafa hæfileika, þeir lyfta
upp gæðum og hraða á æfingum.
Það er allt þetta, þetta er ekki bara
utan vallar heldur líka innan vallar.
Það verður allt betra og þessir eldri
sækja orku til þeirra yngri, hungrið
er svo mikið. Þeir vilja vinna allar
keppnir, hvort sem þeir eru 34
ára eða 19 ára. Það er skemmtileg
blanda í hópnum,“ segir Arnar
brattur rétt áður en hann skellti
í sig hádegismatnum á hótelinu í
Austurríki. n
Arnar Þór Viðarsson á hliðarlínunni í Austurríki á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð
ve
rð
ge
tu
r b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
60+ TIL KANARÍ
14. NÓVEMBER Í 22 NÆTUR
með Bróa
595 1000 www.heimsferdir.is
316.350
Flug & hótel frá
22 nætur
Fararstjóri:
Brói
HÁLFT FÆÐI INNIFALIÐ