Fréttablaðið - 24.09.2022, Page 20
aron@frettabladid.is
PÍLA Matthías Örn Friðriksson hefur
undanfarin ár verið besti pílukast-
ari landsins. Auk þess er hann for-
seti Íslenska pílukastsambandsins
og hann segir það hafa verið magn-
að að fylgjast með frammistöðu
Arnars Geirs og fyrsta undankvöldi
íslensku úrvalsdeildarinnar.
„Það var eins og hann ætti bara
heima þarna á sviðinu. Fyrsta pílan
í fyrsta kasti, í fyrsta leik hjá honum,
fór beint í þrefaldan tuttugu og þá
sá maður um leið að hann er með
þetta.
Ég kalla hann bara nýliða því það
er ekki langt síðan að hann fór að
reyna fyrir sér í pílukasti en þarna
sjáum við bara hvað er hægt að gera
ef maður leggur bara nógu mikið á
sig.“
Matthías segir fróðlegt að sjá í
framhaldinu hvað sigur Arnars
Geirs gerir fyrir pílukastið á lands-
byggðinni, Arnar kemur frá Sauðár-
króki. „Flest öll félögin eru hér á suð-
vesturhorni landsins en það er verið
að vinna gott starf fyrir norðan og
að sjá Arnar Geir plumma sig svona
vel á stóra sviðinu yljar manni bara
um hjartarætur.“
Pílukastið hefur verið í mikilli
sókn hér á landi og nú var í fyrsta
skipti sýnt frá íslensku úrvalsdeild-
inni í beinni útsendingu á sjón-
varpsstöðinni Stöð 2 Sport.
„Þetta tókst svakalega vel, við
höfum átt í góðu samstarfi við Stöð
2 Sport upp á síðkastið. Þau hafa
verið að sýna páska- og jólamótin
hjá okkur og nú í fyrsta skipti er
verið að gera úrvalsdeildinni skil
með beinum útsendingum. Þetta
er mögnuð þróun og hjálpar íþrótt-
inni að taka næstu skref fram á við
hér heima.
Vonandi er þetta komið til að
vera. Það er ekkert fast í hendi en
ég væri svo til í að þetta yrði árlegur
viðburður. Við klárum þessi undan-
kvöld núna og síðan í byrjun des-
ember má búast við flottri keppni á
sjálfu úrslitakvöldinu. Þar fáum við
tvo undanúrslitaleiki og svo úrslita-
leikinn sjálfan.“
Keppt er við framúrskarandi
aðstæður á pílukaststað Bullseye.
„Það er erfitt að koma því frá sér
í orðum hvað Bullseye hefur gert
fyrir pílukastið í heild sinni hér á
landi. Fólkið þar er boðið og búið til
að aðstoða okkur og þessi aðstaða
sem boðið er upp á þar er á heims-
mælikvarða. Maður finnur ekkert
betri aðstöðu en þetta í Evrópu,
hvað þá heiminum.
Stóra sviðið hjá þeim er bara á
pari við það sem við sjáum á stærri
mótum úti í heimi. Þessi reynsla
sem er verið að bjóða upp á núna í
íslensku úrvalsdeildinni er að fara
gefa okkur gríðarlega mikið.“ n
Frammistaða Arnars Geirs yljar forsetanum um hjartarætur
Sauðkrækingurinn Arnar
Geir Hjartarson kom, sá og
sigraði á fyrsta kvöldi íslensku
úrvalsdeildarinnar í pílukasti.
Arnar kom inn í íþróttina
fyrir tæpum tveimur árum og
hefur á skömmum tíma vakið
mikla athygli.
PÍLA Þetta er í fyrsta skipti sem
Arnar Geir tekur þátt í íslensku
úrvalsdeildinni sem er nú í fyrsta
skipti sýnd í beinni útsendingu á
sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport.
Arnar vann öll einvígi sín á fyrsta
undankvöldinu sem fór fram á
Bulls eye á dögunum, lagði þar af
velli landsliðskempur og tryggði sér
sæti á úrslitakvöldinu sem fer fram
í desember.
„Þetta var nú bara ólýsanleg til-
finning,“ segir Arnar Geir við Frétta-
blaðið um sigurinn. „Ég kom inn
í mótið með hófsamar væntingar,
svona tiltölulega nýbyrjaður í píl-
unni og átti alls ekki von á þessu. Ég
var búinn að sjá þennan sterka riðil
sem ég var að fara keppa í og gerði
mér vonir um kannski einn sigur
í honum. Þetta gekk bara vonum
framar.“
Stressið var mikið
Frumraun Arnars Geirs á sviði
þeirra bestu vakti mikla athygli.
Hann viðurkennir að stressið hafi
verið mikið dagana fyrir keppnis-
kvöldið.
„Fyrir kvöldið var ég orðinn mjög
stressaður. Dagarnir fyrir keppnis-
kvöldið einkenndust af fiðringi í
maganum en þegar að ég gekk inn
í salinn á Bullseye leið mér bara
um leið mjög vel, það var eins og
spennufallið kæmi þá.
Þá leið mér mjög vel uppi á svið-
inu sjálfu, fann lítið fyrir stressi. Það
kom mér á óvart því ég átti allt eins
von á miklu stressi þá fyrir framan
helling af myndavélum og í beinni
útsendingu. Ég var bara furðu
rólegur.“
Stuttur ferill
Tæp tvö ár eru síðan Arnar Geir fjár-
festi í sínu fyrsta píluspjaldi, sínum
fyrstu pílum. Hann hefur ekki litið
til baka síðan þá.
„Áhuginn á pílu kom með áhorfi
á heimsmeistaramótið í íþróttinni
um þar síðustu jól. Það var þá sem ég
dreif í því að kaupa mér píluspjald
og pílur. Ég byrjaði að leika mér að
kasta og þetta náði mér um leið, mér
fannst þetta svo ótrúlega gaman.
Þetta var eitthvað sem átti vel við
mig. Með þessu fór ég að æfa mig og
spila meira eftir því sem vikurnar
og mánuðirnir liðu.
Það var síðan í janúar fyrr á þessu
ári sem ég fór að keppa á mótum.
Reynsla mín frá þeim mótum er
mjög góð, það hefur gengið vel hjá
mér og ég hef unnið mig tiltölulega
hratt upp stigann. Boðið um að taka
þátt í úrvalsdeildinni kom síðan í
kjölfarið.“
Æfir í bílskúrnum heima
Það er vaxandi áhugi innan sam-
félagsins á Sauðárkróki fyrir
pílukasti og vonir standa til að
í náinni framtíð verði komin
almennileg aðstaða til að
stunda íþróttina.
„Við erum að reyna koma á
laggirnar almennilegum hóp
í kringum píluna hér á Sauðár-
króki. Pílukastið er deild innan
Tindastóls, lítill hópur eins og
staðan er í dag en við erum núna
að vinna í að koma okkur upp
almennilegri aðstöðu.
Sjálfur hef ég bara verið að æfa
mig heima í bílskúrnum, þar fara
f lest allar æfingar mínar fram en
aðstaðan stendur vonandi til bóta
hjá okkur, þá opnast dyrnar fyrir
f leiri til að æfa sig í pílukasti á
Sauðárkróki.“
Þá þykir líklegt að nýjustu afrek
Arnars Geirs á stóra sviðinu kveiki
neista.
„Ég hef fundið fyrir gríðarlega
miklum stuðningi hér heima og sér
í lagi eftir sigurinn á dögunum. Það
er fullt af fólki sem hefur sett sig í
samband við mig og óskað mér til
hamingju en einnig fólk sem hefur
lýst yfir áhuga á því að reyna fyrir
sér í pílukasti. Ég held að það sé klár-
Úr bílskúrnum heima yfir í beina útsendingu
Arnar Geir
Hjartarsson
pílukastari bar
sigur úr býtum á
fyrsta undan-
kvöldi íslensku
úrvalsdeildar-
innar.
MYND/AÐSEND
Aron
Guðmundsson
aron
@frettabladid.is
Sjálfur hef ég bara
verið að æfa mig í
bílskúrnum heima. Þar
fara flest allar mínar
æfingar fram.
Arnar Geir Hjartarson, pílukastari
Þarna sjáum við bara
hvað er hægt að gera ef
maður leggur bara
nógu mikið á sig.
Matthías Örn Friðriksson, forseti
Íslenska pílukastsambandsins
Matthías Örn Friðriksson, forseti Íslenska pílukastsambandsins
lega aukakraftur fyrir samfélagið
okkar hér fyrir norðan að fá þetta
inn.“
Frambærilegur kylfingur
Arnar Geir er með bakgrunn úr
íþróttaheiminum. Hann er afar
frambærilegur kylfingur og hefur
meðal annars reynt
fyrir sér í banda-
rísku háskóla-
golfi.
„Ég hef spil-
að golf síðan
ég var pínu-
lítill, mikið
af keppnis-
golfi og mér
f innst það
hafa skilað mér töluvert meiru en
ég átti von á þegar ég hellti mér út
í pílukastið.“
Það er hins vegar ekki sveif lan
sem gagnast Arnari Geir í pílunni
heldur hin andlega hlið íþróttaiðk-
unar.
„Það er ekki mikið sem flyst yfir
úr golfíþróttinni sjálfri en klárlega
bara þessi andlega hlið þess að vera
íþróttamaður, hausinn umtalaði,
keppnisumhverfið. Hvernig maður
heldur taugunum niðri þegar mest
á reynir. Ég get alveg staðfest að það
er ekki erfitt fyrir mig að fara að
keppa í pílukasti þrátt fyrir að það
sé allt önnur íþrótt en ég er vanur
að keppa í.
En þýða nýjustu vendingar fyrir
Arnar Geir í pílukasti að keppnis-
golfið sé nú komið í annað sæti?
„Já ég get alveg sagt það. Ég spila
alveg golf áfram og mun kannski
keppa eitthvað aðeins áfram en
ekkert eins og ég gerði áður. Pílu-
kastið er núna í forgangi hjá manni.“
Úrslitakvöldið bíður
Úrslitakvöld úrvalsdeildarinnar
mun fara fram á Bullseye í byrjun
desembermánaðar. Þar munu fjórir
bestu pílukastarar landsins berjast
um Íslandsmeistaratitilinn.
„Ég hlakka mikið til að fá tækifæri
til þess að spila aftur. Þetta var alveg
ógeðslega gaman og spennan er
mikil fyrir úrslitakvöldinu. Þangað
til það rennur upp mun ég halda
áfram að æfa eins og ég hef verið að
gera hingað til. Ég æfi yfirleitt eina
klukkustund til tvær á dag, það
hefur skilað sér hingað til þannig
að ég fer ekki að breyta því núna.“ n
Ekki erfitt fyrir mig
að fara að keppa í
pílukasti þrátt fyrir
að það sé allt önnur
íþrótt en ég er vanur
að keppa í.
Arnar Geir Hjartarson, pílu-
kastari
20 Fréttir 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ