Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 30
Kristján hljóp síðasta hringinn einn. Þá var byrjað að rigna all hressilega en það skemmdi ekki stemning- una. MYND/ AÐSEND hlaupið fjöldann allan af mara- þonum hérlendis og erlendis frá því að ég man eftir mér. Ég byrjaði snemma að æfa fótbolta og þol var ávallt minn helsti styrkleiki. Það hlakkaði í mér þegar það voru píp- test í skólanum eða Cooper-test í fótboltanum. Frá og með sumrinu 2018 fór ég að hlaupa markvisst með fram fótboltanum, með það í huga að hlaupa mitt fyrsta maraþon um haustið. Ég gerði það í Frankfurt og lét annan draum verða að veruleika þar sem að móðir mín hljóp í sama hlaupi. Við höfum því klárað sama maraþon.“ Árið 2019 tók hann sér hvíld frá fótboltanum og lagði áherslu á hlaupin, með það að markmiði að bæta tíma sinn frá því árinu áður í maraþoni. „Það tókst í Reykja- víkurmaraþoninu í lok sumars. Árið 2020 sneri ég aftur í fótbolt- ann en fann að hlaupin kölluðu miklu meira á mig. Eftir tímabilið það árið setti ég því alla áherslu á hlaupin. Í fyrra færði ég alla mína áherslu yfir í utanvegahlaup. Áður hafði ég einblínt á götuhlaup en fann hversu mikið náttúran heill- aði. Því hef ég síðustu tvö sumur einbeitt mér að því að standa mig vel í utanvegahlaupum.“ Allir í sömu baráttunni Það er fyrst og fremst hlaupa- samfélagið sem gerir hlaupin svo heillandi, að sögn Kristjáns. „Það að sameina hreyfingu við það að vera úti í náttúrunni er ómetan- legt. Ég hef kynnst ótrúlega mikið af góðu fólki í gegnum hlaupin og fengið að vera í mismunandi hlaupahópum eins og Vængjum Júpíters, HHHC og Fjallahlaupa- þjálfun Tobba og Evu. Á sama tíma og þetta er einstaklingsíþrótt að þá eru allir í sömu baráttunni, að ná því besta út úr sjálfum sér.“ Hann segist stefna langt og að hann vilji ná sem bestum árangri í hlaupum, en eigi um leið mjög auð- velt með að samgleðjast þeim sem standa sig vel. „Það lýsir hlaupa- samfélaginu í hnotskurn. Hlaupin passa einnig mjög vel inn í mín gildi og venjur hvað varðar heilsu- samlegan lífsstíl.“ Lítill undirbúningur Þrátt fyrir sigurinn segir Kristján að undirbúningurinn fyrir Bak- garðinn hafi viljandi verið lítill sem enginn. „Ég var að æfa fyrir allt annað í ár heldur en að taka þátt í Bakgarðinum um síðustu helgi. Ég var með markmið um að bæta tíma minn í Laugaveginum og fleiri keppnum hérlendis ásamt því að fara í eitt til tvö keppnis- hlaup erlendis.“ Eftir að hafa lent í erfiðleikum í byrjun júní breyttist keppnistíma- bilið og viðhorf Kristjáns til þess. „Ég fór frekar að einbeita mér að því að fara aftur í að taka „spont- ant“ ákvarðanir varðandi keppnis- hlaup sem ég vildi taka þátt í og þetta var eitt af þeim.“ Varðandi markmið fyrir hlaupið segist hann oft hafa fengið spurninguna hvað hann ætlaði marga hringi. „Ég var ekki búinn að ákveða það sjálfur og svaraði, eins kokhraust og það getur hljómað, að ég ætlaði mér að sigra keppnina. Með því að setja sér ákveðinn fjölda hringja þá tel ég að þú gerir þér erfiðara fyrir þegar það markmið hefur náðst. Því var þetta spurning um að berjast, hafa gaman og taka eitt skref í einu.“ Það að sameina hreyfingu við það að vera úti í náttúrunni er ómetanlegt. Ég hef kynnst ótrúlega mikið af góðu fólki í gegnum hlaupin. Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is Ávaxtasýrur vinna á andlitslínum, slappri húð, litabreytingum, þurri líflausri húð og örum. Einnig er hægt að bóka tíma í persónulega ráðgjöf. Hjartanlega velkomin. *gildir til 30. september 2022 30% afsláttur af öllum ávaxtasýrumeðferðum * Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Áhugavert að hlaupa inn í nóttina Upplifun hans af hlaupinu var frábær. „Ég fékk að vera í samfloti með mínum mönnum í hlaupa- hópi Vængja Júpíters, en þeim Ásgeiri Daða og Sveini Atla tókst að fara 15 hringi, 100km, og Gunn- ari Marteinssyni 16 hringi eða tæplega 107 km. Það var ómetan- legt að hlaupa þetta með þeim þar sem að við gátum spjallað um allt og ekkert. Einnig munaði um það að ég fékk aðstoð og stuðning frá mínum besta vini, Gunnari Smára, en hann hefur aðstoðað mig og stutt mig í mitt fyrsta maraþon, tvo Laugavegi og utanvegahlaup á Madeira í apríl.“ Þegar samflotinu lauk eftir 16 hringi fór Kristján að hraða hringjunum og hljóp einn með sjálfum sér það sem eftir lifði hlaups. „Það var mjög áhugavert að hlaupa inn í nóttina en ég hef ekki gert það áður. Einnig var skrítið að brjóta upp svefninn þar sem ég legg mikla áherslu á góðan svefn. Nóttin var mér nokkuð ljúf, ég setti tónlist í símann og hlustaði á rólega tóna til þess að byrja með.“ Hann lenti í smá erfiðleikum um þrjú leytið um nóttina þegar hann skipti um höfuðljós sem hann hafði fengið lánað hjá móður sinni. „Það var ekki næg rafhlaða á því og eftir fimm mínútur breytt- ist góður hringur sem lýsti veginn í lítinn kassa þannig að erfitt var fyrir mig að sjá með vissu hvað fram undan væri á stígnum.“ Líkamsklukkan fór í gang Þegar fór að birta um klukkan sex segir Kristján eins og líkamsklukk- an hafi farið að segja til sín og sagt sér að vakna. „Ég fékk mjög mikla orku við það. Ég hljóp hvern hring frá og með miðnætti á talsvert hraðari tímum en það sem margir telja æskilegt, eða kringum 35-38 mínútum sem hentaði mér og minni rútínu mjög vel því þá hafði ég meiri hvíld á milli hringja.“ Hann segist hafa nefnt það við félaga sína snemma í hlaupinu að sá keppandi sem hann endaði á að keppa við í síðustu hringjunum, Marlena Radziszewska, liti mjög vel út og væri líkleg til árangurs. „Því kom mér ekkert á óvart þegar við vorum tvö eftir. Ég var búinn að ímynda mér augnablikið þegar ég myndi sigra þetta og ætlaði ekki að láta taka það af mér. Það var því ólýsanleg tilfinning á 32. hring þegar Hlynur Guðmundsson, góð- vinur minn úr hlaupunum, keyrði upp að mér eftir nokkur hundruð metra og tilkynnti mér að hún væri hætt.“ Það var ógleymanleg tilfinning að taka sprettinn í mark í síðasta sinn með allt fólkið sitt sem tók á móti honum. „Ef það er eitt orð sem ætti að halda utan um þessa helgi þá er það þakklæti. Fyrir aðstoðarfólkið, stuðninginn, til Gumma ljósmyndara fyrir að standa vaktina allan tímann en það var ótrúlega gaman að sjá hann á hinum og þessum stöðum í brautinni, allra þeirra sem lögðu fram hjálparhönd og þeirra sem sendu mér hlýja strauma.“ Stefnir á bætingu í Laugavegshlaupinu Í vetur er markmiðið hjá Kristjáni að viðhalda góðu formi hlaupa- lega en setja einnig smá áherslu á jóga, styrk, heita og kalda potta og gufur. „Eins og ég hafði nefnt að þá hef ég verið að glíma við smá meiðsli og langar að ná mér hundrað prósent góðum af þeim. Síðan er ég með sama markmið á næsta ári og ég var með fyrir þetta ár, að bæta tíma minn í Lauga- veginum. Finnst ég skulda mér það. Annars er það bara að ná sem flestum æfingum í samfloti með hlaupavinum og hafa gaman af þessu.“ n 2 kynningarblað A L LT 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.