Fréttablaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 45
Sölufulltrúi í
heimilistækjadeild
Við leitum að sölufulltrúa til
starfa í heimilistækjaverslun
okkar í Nóatúni 4.
Starfið felst einkum í afgreiðslu og sölu heimilistækja sem og
almennri ráðgjöf.
Leitað er að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum
starfsmanni sem hefur ánægju af sölustörfum og mannlegum
samskiptum. Góð framkoma, þjónustulipurð, snyrtimennska og
reglusemi eru skilyrði.
Gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Umsóknarfrestur er til og með 7. október.
Sótt er um starfið á alfred.is.
Nánari upplýsingar veitir Jón Norland, jonn@sminor.is.
Við leiðum
fólk saman
hagvangur.is
Umsóknarfrestur um bæði störfin er til og með 26. september. Allar
nánari upplýsingar um störfin, menntunar- og hæfniskröfur er að finna
á starfatorg.is. Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll
áhugasöm til að sækja um. Ráðuneytið er jákvætt fyrir störfum óháð
staðsetningu.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Harvey Specter eða Ally McBeal? Viltu vera númer?
» Lögfræðingur á skrifstofu framkvæmdar og eftirfylgni
Það skiptir okkur engu máli hvort eða hvaða sjónvarpssería kveikti áhuga
þinn á lögfræði. Það eina sem við viljum vera viss um er að við fáum í hópinn
frábæran lögfræðing sem langar að verða hluti af öflugri liðsheild í nýju
ráðuneyti. Við leitum að manneskju sem býr yfir þeim eiginleikum að vera
hvoru tveggja í senn; hugmyndarík og nákvæm — lausnamiðuð en um leið
föst fyrir. Nokkurs konar stálhnefi í silkihanska.
Hér munu gefast ótal tækifæri til að móta og skapa framtíðina í ráðuneyti
sem ætlar sér að vera leiðandi í verkefnamiðuðu og árangursdrifnu vinnulagi.
» Sérfræðingur í fjármálum á skrifstofu framkvæmdar og eftirfylgni
Það er eins gott að þeim tæplega 88 milljörðum sem háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið ber ábyrgð á sé vel varið. Þess vegna leitum við að
manneskju sem elskar að liggja yfir tölum, grúska í stórum sem smáum
upphæðum og á sér þann draum heitastan að vera númer.
Viðkomandi þarf að hafa eiginleika til að bregða sér í ýmis gervi en stærsta
hlutverkið ár hvert er uppsetningin á fjárlögunum og greining á afkomu
þeirra ríkisaðila sem undir ráðuneytið heyra.
Ef þú hefur áhuga á að sérhæfa þig í gangverki opinberra fjármála þá
hvetjum við þig til að senda inn umsókn.
Okkar hlutverk
er að leysa krafta
úr læðingi
ATVINNUBLAÐIÐ 9LAUGARDAGUR 24. september 2022