Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 51
Nokkrar stöður tollvarða í Reykjavík og í Keflavík eru lausar til umsóknar
hjá Skattinum - Tollgæslu Íslands. Störf tollvarða eru fjölbreytt og lifandi
og henta fólki af öllum kynjum.
Í tengslum við ráðningu tollvarðar þarf að þreyta inntökupróf/þrekpróf, en dagsetning
prófsins verður tilkynnt eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsækjendur eru hvattir
til að kynna sér nánari upplýsingar um prófið á vefslóðinni
https://www.skatturinn.is/um-rsk/tollskoli-rikisins/inntokuprof/inntokuprof.
Starf tollvarðar felur m.a. í sér:
• Greiningu á áhættu í vöru- og farþegaflæði og úrvinnslu gagna.
• Sérhæfðar leitir, svo sem í bílum, með gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv.
• Almennt tolleftirlit á vettvangi, til að mynda í skipum, flugvélum, bílum,
gámum, póstsendingum og með farþegum.
Menntunar– og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða menntun sem má meta til jafns við það.
• Greiningarhæfileikar.
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Gott andlegt og líkamlegt atgervi.
• Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Almenn ökuréttindi.
Umsækjendur um störf tollvarða þurfa auk ofangreinds að hafa náð 20 ára aldri sem og
að geta framvísað hreinu sakavottorði.
Reynsla og þekking úr öðrum störfum nýtist vel í starfi tollvarða. Háskólamenntun er einnig
eftirsóknarverð þar sem í mörgum verkefnum er áhersla á greiningarhæfni, talnalæsi,
tölfræði, skýrslugerð og tölvufærni.
Umsóknir skulu fylltar út á vef Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá, auk kynningarbréfs,
sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað
er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Tollvarðafélags
Íslands. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um störfin í Reykjavík veitir Ársæll Ársælsson, yfirtollvörður, í síma
442-1000 eða í tölvupósti á arsaell.arsaelsson@skatturinn.is en upplýsingar um störfin
í Keflavík veitir Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir, yfirtollvörður, í síma 442-1000 eða í tölvu-
pósti á gudrun.s.rikardsdottir@skatturinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Tollverðir
Spennandi störf í lifandi umhverfi
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR