Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 94

Fréttablaðið - 24.09.2022, Qupperneq 94
Steingrímur Eyfjörð fjallar um litaskynjun og þjóðtrú á sýningunni Wittgenstein? & Félag um lifandi þjóðtrú í Hverfisgallerí. Listamaðurinn Steingrímur Eyfjörð opnaði nýlega sýningu í Hverfisgall- erí sem ber heitið Wittgenstein? & Félag um lifandi þjóðtrú. Í verkum Steingríms ber að líta textabrot og myndefni sem vísa annars vegar til skrifa heimspekingsins Ludwigs Wittgenstein um liti og hins vegar til íslenskrar þjóðtrúar. Hið fyrr- nefnda verk á rætur sínar að rekja til sýningar sem Steingrímur hélt í Gallerí Suðurgötu 7 1978 ásamt Friðriki Þór Friðrikssyni. „Þetta eru spurningar sem vísa í það sem ég var að lesa 1978, þegar ég hélt sýningu í Suðurgötunni. Þá gerði ég verk upp úr þessari hug- mynd og nú er ég bara einhvern veginn að klára hana. Ég hef alltaf verið á leiðinni að gera eitthvað meira,“ segir Steingrímur spurður út í uppruna verkanna. Steingrímur var sérstaklega undir áhrifum ritsins Bemerkungen über die Farben (Nokkur orð um liti), sem Wittgenstein ritaði 1950, ári fyrir andlát sitt. „Það var aðallega þegar hann var að tala um litblindu og það allt saman og liti eins og rauðgrænan eða grænrauðan. Það eru litir sem eru ekki til en þú getur sagt það og ímyndað þér þá. Þetta samtal sem verður ef þú ert að tala um liti og þú kemst að einhverri sameiginlegri niðurstöðu sem er byggð á ein- hverju allt öðru, þá getum við sagt að það sé eitthvað sem er ekki til,“ segir Steingrímur. Litir sem eru ekki til Eitt af verkunum á sýningu Stein- gríms er þátttökuverk þar sem gest- um er boðið að setja á sig mismun- andi lituð gleraugu og virða fyrir sér litarenninga sem málaðir eru á vegg Hverfisgallerís. Gestirnir þurfa svo að ræða skynjun sína á litunum og koma sér saman um niðurstöðu og rita hana á krítartöflu. Þegar niður- staða er fengin skrifa gestirnir og teikna nafn litarins sem þeir gerðu samkomulag um og taka svo af sér mynd fyrir framan vegginn með polaroid-myndavél. „En af því þau sjá sitt hvern lit- inn þá er hann ekki til, þannig að þau verða að komast að einhverju samkomulagi og skrifa það hérna á myndina. Það er náttúrlega bara frjálst, þetta er póesía en ekki vís- indi,“ segir Steingrímur. Í texta Steingríms sem hangir við hlið verksins segir: „Litir eru ekki til í heiminum heldur verða þeir til í huga þess sem horfir.“ Spurður út í þetta segir listamaðurinn: „Þeir eru náttúrlega bara skynjun á einhverjum bylgjulengdum. Það er til fólk og það eru víst sérstaklega konur sem eru með fjórðu stúkuna sem geta séð útfjólublátt ljós og aðeins f leiri liti. Þá dettur manni í hug hvort það sé einhver tegund af skyggni. Það er til fólk sem sér ein- hverjar verur og svo framvegis, það getur vel verið að það hafi þessa aukaskynjun.“ Sálfræðileg landafræði Hitt verkið á sýningunni ber titilinn Félag um lifandi þjóðtrú og er eins konar sálfræðileg landafræði af Reynishverfi í Mýrdal hvar Stein- grímur var sendur í sveit á sjöunda áratugnum. Þar skoðar listamaður- inn þjóðtrú sem hann kynntist í sveitinni sem ungur maður. „Þeir sem voru í sveit á 7. áratugn- um, þeir muna eftir því að það var alltaf völvuleiði og einhver svæði sem eru svona „psychogeographi- cal“. Þetta er í raun og veru bara eitthvað sem ég kalla lifandi þjóð- trú og hún er náttúrlega til enn þá hjá þjóðinni, það er fólk sem hittir huldufólk og álfa. Þetta er enn þá til til sveita þó svo að þetta sé kannski að fjara út. En það er enn þá til fólk sem hefur reynslu af einhverju yfir- náttúrulegu,“ segir hann. Upplifðir þú eitthvað yfirnáttúru- legt þegar þú varst í sveit í Mýrdal? „Ekki nema bara að ég upplifði náttúruna. Ég lenti einu sinni í því að fara upp á fjall að reka kindur og þá bara fann ég að ég fór í gegnum vegg inn í einhvern heim sem mennirnir réðu ekki yfir. Það var eitthvað annað í gangi. Ég veit ekki hvort það var yfirnáttúrulegt en ég held að margir upplifi það sem fara á heiðar eða einhvers staðar þar sem er bara náttúran og ekkert annað.“ Myndlist en ekki rannsóknir Í verkinu Félag um lifandi þjóðtrú fjallar Steingrímur einnig um liti með vísunum í bláa blómið sem var tákn rómantísku stefnunnar á 19. öld og hvítbláa fánann sem Einar Benediktsson hannaði 1897. „Þegar maður er að búa til lista- verk þá veit maður ekkert hvað gerist fyrir fram. En þá kemur í ljós að það er bláa blómið, rómantíska tímabilið, sem vísar náttúrlega í Jón Árnason og svo Einar Benediktsson sem gerði Hvítbláann, hugmynd að fána að einhverju sem er ekki til í raunveruleikanum og það sama er með bláa blómið,“ segir hann. Þótt Steingrímur vísi í ýmis fræði í sínum verkum þvertekur hann þó fyrir að stunda rannsóknarvinnu. „Ég kalla það ekki rannsóknir. Þetta er náttúrlega bara myndlist. Það má ekki blanda þessu saman.“ n Þetta er póesía en ekki vísindi Steingrímur Eyfjörð leitaði í skrif þýska heimspekings- ins Ludwigs Wittgenstein við sköpun verkanna á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Eitt af verk- unum er þátt- tökuverk þar sem gestum er boðið að setja á sig mismunandi lituð gleraugu og virða fyrir sér litarenninga sem málaðir eru á vegg Hverfis- gallerís. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is TÓNLIST Habanera Flytjendur: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Francisco Javier Jáuregui gítarleikari og Sigurður Helgi Oddsson píanóleikari Salurinn í Kópavogi fimmtudagur 22. september Jónas Sen „Ef hægt væri að ímynda sér að hans hátign, Satan, myndi semja óperu, þá væri Carmen í þeim anda.“ Á þessum orðum hófst gagnrýni um hina sívinsælu óperu eftir Bizet, og birtist hún í Music Trade Review árið 1878. Gagnrýnandinn fann óperunni allt til foráttu, honum fannst hún siðlaus og aðalpersón- urnar fráhrindandi. Verkið fjallar um vafasama lág- stéttarkonu sem með kynþokka sínum ógnar lífi virðulegs, heldri manns. Þetta heyrist í tónlistinni, söngur Carmenar, sem er sígauna- kona með fortíð, er í óljósri tón- tegund, það er, laglínurnar ferðast gjarnan upp og niður svonefndan k rómatískan tónstiga. Þann- ig skapast óvissa, hlustandinn veit ekki alveg hvar hann hefur Carmen, hún verður því vafasöm í huga hans. Þar að auki er söngur hennar skreyttur danshrynjandi sem dregur athyglina að fögrum líkama hennar, enda er dans fyrst og fremst list líkamans. Dansinn frá Havana Frægasta atriðið í Carmen nefnist Habanera, það er, dans frá Havana á Kúbu. Habanera var yfirskrift tón- leika nýrrar tónleikaraðar sem hóf göngu sína á miðvikudagskvöldið. Röðin ber ber heitið Syngjandi í Salnum. Að þessu sinni hóf Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir mezzó- sópran upp raust sína og var allur seinni hluti tónleikanna helgaður habanerum eftir mismunandi tón- skáld. Lokaatriðið var einmitt arían fræga úr Carmen. Tónleikarnir voru vandaðir. Guðrún Jóhanna hefur ekki mikla rödd sem sprengir í manni hljóð- himnurnar, en hún er fínleg og blæ- brigðarík. Söngkonan kann þá list að láta hið smáa segja heila sögu: túlkun hennar var ávallt merking- arþrungin og hrífandi. Þar sem allir draumar rætast Habanerurnar eftir hlé voru marg- víslegar, stundum dramatískar, eða gæddar ljúfsárri eftirsjá. Hið síðarnefnda má til dæmis segja um Vocalise-etude en forme de hab- anera eftir Ravel, og líka Cancion de cuna para dormir a un negrito eftir Montsalvatge. Youkali eftir Kurt Weill var svo fullt af sannfærandi þrá eftir útóp- íu þar sem allir draumar rætast, og Habaneran úr Carmen var bráð- skemmtileg. Ekki síst fyrir það að heilt gengi af söngvurum meðal áheyrenda tók óvænt þátt í viðlaginu, sem var drepfyndið. Sigurður Helgi Odds- son spilaði með á píanó og gerði það af vandvirkni og viðeigandi léttleika. Flottur gítarleikur Fyrri hluti tónleikanna var ekki síðri. Þar var meðleikari Guðrúnar Francisco Javier Jáuregui, sem spilaði á gítar. Hann átti líka meira í dagskránni, því útsetningarnar fyrir hlé voru velf lestar eða allar eftir hann. Þær voru fjölbreyttar og lifandi. Fyrst f luttu þau þrjú lög eftir Atla Heimi Sveinsson sem runnu ljúf- lega niður. Aðalatriðið í þessum hluta efnisskrárinnar var hins vegar nokkur bandarísk þjóðlög; meðal annars Black is the Color, I Wonder as I Wander og Wayfaring Stranger. Þau komu einstaklega vel út. Söngurinn var afar tjáningar- ríkur og fallega viðkvæmur. Gítar- leikurinn var ekki bara einhver grip, heldur myndaði áhrifamikið, fjölradda mótvægi við sönginn, f léttaðist um hann og lyfti upp í hæstu hæðir. Gítarleikarinn fór beinlínis á kostum, og það gerði söngkonan líka. Útkoman var sjald- heyrður unaður. n NIÐURSTAÐA: Vandaðir og skemmtilegir tónleikar. Hið smáa sagði heila sögu Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui. MYND/AÐSEND 46 Menning 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.