Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 96

Fréttablaðið - 24.09.2022, Síða 96
Svo á Kalman sjálfur stórleik í myndinni og er líklegast á beinustu leið til Hollywood! Elfar Aðal- steins leik- stjóri. Sumarljós og svo kemur nóttin verður lokamynd Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í næstu viku. Leikstjór­ inn og handrits höfundur inn Elfar Aðalsteinsson segir það hafa verið virkilega gefandi að gera sína fyrstu kvikmynd á Íslandi á Þingeyri og upp úr jafn mögnuðu verki og samnefndri skáldsögu Jóns Kalmans. toti@frettabladid.is RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, hefst í næstu viku en henni lýkur 8. október með frum­ sýningu myndarinnar Sumarljós og svo kemur nóttin sem er fyrsta leikstjórnarverkefni Elfars Aðal­ steinssonar á íslensku. „Það var virkilega gefandi að fá að gera mitt fyrsta íslenska leik­ stjórnarverkefni á Þingeyri upp úr eins mögnuðu verki og Sumarljós og svo kemur nóttin er,“ segir Elfar sem skrifaði sjálfur handritið upp úr samnefndri verðlaunaskáldsögu Jóns Kalmanns. „Bæjarbúar tóku okkur opnum örmum frá fyrsta degi og gerðu þessa upplifun afar jákvæða í alla staði. Þessi frábæri og fjölhæfi leikarahópur sem ég fékk að vinna með var óvenju stór en ég fann strax fyrir miklum samhug og skilningi á verkinu. Stemningin á settinu var bæði fagleg og ljúf og belgíski hluti töku­ liðsins sem taldi níu manns féll inn í hópinn eins og flís við rass. Svo á Kalman sjálfur stórleik í myndinni og er líklegast á beinustu leið til Hollywood!“ segir Elfar um rithöf­ undinn sem hlaut Íslensku bók­ menntaverðlaunin árið 2006 fyrir skáldsöguna sem gæti átt eftir að verða farmiði hans til Hollywood. Sumarljós og svo kemur nóttin verður sem fyrr segir lokamynd RIFF og verður frumsýnd laugardaginn 8. október en almennar sýningar hefj­ ast þann 14. sama mánaðar. n Sumarljós í ljúfri stemningu á Þingeyri Steminingin var notaleg á sögustað þar sem margt undrið ber fyrir augu þegar nokkrar sögur fléttast saman. MYNDIR/HLYNUR SNÆR ANDRASON Anna María Pitt er ein þeirra sem myndar stóran og fjölbreyttan leikhópinn. Ljós og skuggar dansa saman þar sem nóttin kemur í kjölfar sumarljóssins. Beðið eftir kallinu í notalegheitum sumarljóssins fyrir vestan. Ólafur Darri, leikari og einn framleiðenda myndarinnar, ásamt Elvari við tökurna á Vestfjörðum. Bi rt m eð fy rir va ra um p re nt vil lur . H eim sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th . a ð v er ð g etu r b re ys t á n f yri rva ra . 595 1000 Flórens Borg draumanna... 17. nóvember í 3 nætur 119.000 Flug & hótel frá Frábært verð á mann Sumarljós og svo kemur nóttin Ef þú leggur við hlustir þá segir Þorpið þér kannski nokkrar ósagðar sögur. Sögur af forstjóranum unga sem dreymir á latínu og fórnar fjölskyldu og glæstum frama fyrir gamlar bækur og stjörnukíki, heljarmenni sem kiknar undan myrkrinu, fín- vöxnum syni hans sem tálgar mófugla. Af bóndanum með bassaröddina sem strengir fallegar girðingar en ræður illa við fýsnir holdsins, ein- mana gröfukalli sem skellir sér í helgarferð til London og gömlum Dodge 55. Skáldsagan Sumarljós og svo kemur nóttin saman- stendur af laustengdum sögum sem tvinnast saman á sama sögusviði, litlu sjávar- þorpi á Vestfjörðum. Elfar skrifaði handritið sjálfur upp úr skáldsögu Jóns Kalmans og gerði myndina í nánu samstarfi við rithöfundinn og fékk síðan stóran og fjöl- breyttan hóp leikara til þess að gæða persónugalleríið lífi. 48 Lífið 24. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. september 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.