Fréttablaðið - 28.09.2022, Síða 26

Fréttablaðið - 28.09.2022, Síða 26
Upp- skriftir gerast ekki mikið haustlegri en þessi. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Hrafnhildur Hákonardóttir hefur tekið Mjólkurþistil frá ICEHERBS um árabil og segir bætiefnið vera daglegan gleðigjafa. Mjólkurþistillinn er þekktur fyrir hreinsandi áhrif. Hrafnhildur hefur þjáðst af slitgigt síðastliðin sex ár og segir mjólkur- þistilinn hafi bætt líðan sína til muna. Hún tekur líka D-vítamín, magnesíum með fjallagrösum, astaxanthin og stundum fjalla- grös, allt frá ICEHERBS. „Það er nú kannski svolítið pjatt- að hjá mér, en ég heillaðist fyrst af pakkningunum en er nú aðallega hrifin af þeim því bætiefnin frá ICEHERBS eru náttúruleg og hrein. Allar upplýsingar eru á íslensku og boxin fara vel í eldhússkúffunni og ofan í mig. Það er auðvelt að finna þessi vítamín í hillunum í apótekum og verslunum og ég veit hvað þau innihalda,“ segir Hrafn- hildur. Hjálpar lifrinni „Ég er slæm af slitgigt og finn fyrir verkjum í hálsliðum, baki, höndum og fótum. Ég tek verkja- lyf oftar á veturna en sumrin því kuldinn fer alls ekki vel í gigtina. Vinur minn mælti með mjólkur- þistli með verkjalyfjum því hann getur haft hreinsandi virkni á líkamann og hjálpað lifrinni að hreinsa út óæskileg efni. Mjólkurþistillinn hefur gert sitt gagn. Ég veit það vegna þess að ég fer á þriggja mánaða fresti í blóðprufu til að mæla lifrargildi innkirtla og annarra kerfa. Ég er enginn unglingur en gildin eru alltaf í góðu lagi. Ég tek tvö hylki af ICEHERBS Mjólkurþistli á morgnana mjög samviskusamlega og hann fer alltaf með mér í ferðalög.“ Ómissandi þegar freistingar ber að garði Hrafnhildi er afar annt um heils- una og borðar hollan og góðan mat að staðaldri. Hún segist hins vegar eiga jafn erfitt og við hin að stand ast freistingar yfir hátíðar eins og jól og páska. „Það er erfitt að sniðganga þennan góða mat þó að allir viti að allt þetta gúmmelaði sé ekkert sérstaklega gott fyrir kerfið. En það þarf nú stundum að njóta og leyfa sér. Ég hryn nú alveg í það yfir hátíðirnar í mat og drykk og þá bæti ég við tveimur hylkjum af mjólkurþistli fyrir svefn. Þetta tryggir betri svefn hjá mér og ég er orkumeiri daginn eftir þar sem líkaminn er ekki að ströggla við allt það sem ég innbyrði daginn áður. Ég mæli hiklaust með mjólkurþistli, ekki bara fyrir þá sem ætla að gera vel við sig í mat og drykk heldur bara flesta. Ég finn líka að mjólkurþistil- linn hjálpar til eftir á. Sérstaklega í janúar eftir allt stressið og sukkið í desember. Í stuttu máli sagt þá líður mér betur í líkamanum þegar mjólkurþistillinn er með mér og ég finn að líkaminn er í betra jafn- vægi. Ef mér líður vel í líkamanum þá verður myrkrið, kuldinn, stressið og allt annað mun bæri- legra. ICEHERBS mjólkurþistillinn með íslenskum fjallagrösum hjálpar til við að hreinsa líkamann af umframefnum sem safnast fyrir í lifrinni og líkamanum.“ Náttúruleg hreinsun ICEHERBS mjólkurþistill inni- heldur hreinan mjólkurþistil og íslensk fjallagrös. Mjólkurþistill inniheldur virka efnið sylimarin sem er þekkt fyrir að hafa góð áhrif starfsemi lifrar og nýrna. Efni úr mjólkurþistli á að hjálpa lifrinni við myndum nýrra lifrar- frumna og er þannig náttúruleg hreinsun fyrir lifrina. Þá hefur plantan andoxandi virkni og hjálpar til við að losa óæskileg efni út úr líkamanum. Sumir nota mjólkurþistilinn þegar þeir hafa neytt áfengis vegna hreinsandi áhrifa hans. Íslensk fjallagrös eru þekkt sem gingseng Íslands og ekki að ástæðulausu. Þau innihalda betaglúkantrefjar sem eru þekktar fyrir að auka þyngdartap, bæta meltingu og styrkja þarm- ana. Fjallagrös eru rík af stein- efnum, einkum járni og kalsíum, og bera í sér f léttuefni sem hindra óæskilegar bakteríur. Fjallagrös hjálpa til við að draga úr bjúg og er þessi hreinsandi blanda frábær fyrir almenna matar- og drykkjar- gleði. Íslensk og kröftug bætiefni ICEHERBS framleiðir hrein og náttúruleg bætiefni. Þar er lögð áhersla á að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar innihaldsefnanna viðhaldi sér að fullu. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi og innihalda engin óþarfa fylliefni. n ICEHERBS fæst í öllum betri mat- vöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum og í glæsi- legri vefverslun á iceherbs.is. Mjólkurþistill gerir lífið léttara Hrafnhildur Hákonardóttir segist finna mikinn mun á sér eftir að hún fór að taka ICEHERBS mjólkurþistil. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, lífs- kúnstner og eigandi upp- skriftasíðunnar Gulur, rauður, grænn og salt, er ein- staklega hrifin af haustinu og blómstrar þá gjarnan í eldhúsinu. Berglind segir matinn sem hún lagar á haustin þyngjast aðeins og verða matarmeiri, sérstaklega þegar rigning lemur á gluggann og haustlægðirnar láta á sér kræla. Berglind hefur gaman af því að vinna að fjölbreyttum verkefnum og takast á við nýjar áskoranir. „En fyrst og fremst elska ég að hafa gaman og plús ef maður getur glatt líf annarra í leiðinni,“ segir Berglind sem er mikill gleðigjafi. Aðspurð segist Berglind vera heilluð af haustinu og að hún verði miklu afslappaðri þegar haustið gengur í garð. „Allir fallegu haustlitir náttúr- unnar, þegar byrjar að dimma og ryk hættir að sjást, og góð ilmkerti finnst mér heillandi. Svo er líka dásamlegt að geta hlammað sér í sófann og hámhorft á gott efni með góðri samvisku – sem er oft erfiðara á sumrin því þá finnst manni maður verða að vera svo virkur,“ segir Berglind og brosir dreymin á svip. Þegar hausta tekur segir Berglind að eldamennskan breytist sam- hliða, þá útbúi hún matarmeiri rétti og samsetningin sé öðruvísi. „Ég myndi segja að maturinn þyngist aðeins og þá sérstaklega þegar rigningin lemur á gluggana. Þá langar mig oftast í einhverja góða súpu eða pottrétti.“ Hvernig gengur þér þegar kemur Sviptir hulunni af uppáhalds haustréttinum Smalabaka Berglindar er ómótstæðileg á haustkvöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK að því að töfra fram kræsingar fyrir fjölskylduna? „Það er bara eins og á öllum heimilum, gengur svona upp og ofan. Það eru helst vinir barnanna sem heillast af eldamennsku minni, enda er grasið oft grænna hinum megin við hólinn. En oftast eru börnin ánægð með það sem ég gef þeim.“ Berglind sviptir hulunni af einum af sínum uppáhaldsréttum sem hún segir að geti verið fullkominn haustréttur. „Mig langar að deila með lesendum uppskrift að góðri smalaböku. Uppskriftir gerast ekki mikið haustlegri en þessi. Ég féll fyrir svona bökum þegar ég fór á stað í Putney í London sem heitir Putney pies. Mögulega það besta sem ég hef smakkað og mæli mikið með því að fara á þann stað ef þið hafið tök á. Ef ekki þá mæli ég með því að þið skellið í þessa dásamlegu smalaböku.“ Dásamleg smalabaka fyrir 3-4 2 msk. ólífuolía 1 laukur, saxaður 500 g nautagripaþynnur frá Kjarnafæði 2 tsk. steinselja 1 tsk. rósmarín 1 tsk. timían ½ tsk. salt ½ tsk. svartur pipar 1 msk. Worcestershire-sósa 2-3 hvítlauksrif, pressuð 2 msk. hveiti 2 msk. tómat paste 240 ml nautasoð 1 bolli frosnar baunir og gulrætur Kartöflumús 2 stórar bökunarkartöflur, afhýddar og skornar í bita 110 g smjör 60 ml rjómi ½ tsk. hvítlauksduft ½ tsk. salt ¼ tsk. svartur pipar ¼ bolli rifinn parmesan Látið olíu á pönnu og hitið yfir miðlungshita. Bætið lauknum saman við og hrærið í 3-5 mínútur. Bætið kjötinu á pönnuna ásamt steinselju, rós- marín, timían, salti og pipar og hrærið öllu vel saman. Eldið í 6-8 mínútur eða þar til kjötið er farið að brúnast. Látið Worces- tershire-sósu og hvítlauk saman við og steikið í 1 mínútu. Bætið þá hveiti og tómat paste og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Bætið að lokum við soði og frosnu græn- meti. Látið malla í 5 mínútur. Takið af hitanum og geymið. Sjóðið kartöflurnar í 10-15 mínútur eða þar til þær eru farnar að mýkjast. Hellið vatni frá og bætið smjöri, rjóma, hvítlauks- dufti, salti og pipar saman við og stappið. Bætið parmesan út í og blandið öllu vel saman. Látið kjötið í ofnfast mót. Látið kartöflumúsina ofan á og dreifið vel út. Látið í 200°C heitan ofn í 25-30 mínútur. Kælið í 15 mínútur áður en borið er fram. n 4 kynningarblað A L LT 28. september 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.