Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 5
1.
§R. GUNNAR HALLGRÍMSSON í Laufási var
ölkær nokkuð.
Það kom fyrir, að hann messaði drukkinn, og
voru þá ræður hans stundum skringilegar.
Einu sinni byrjaði hann prédikun þannig:
„Sæll og blessaður, minn gamli, góði guð! Þú
rærð einn á báti. Enginn vill róa hjá þér. Ég vil
róa hjá þér. Þá færðu einn góðan.“
2.
J MATSÖLU einni var borið á borð gamalt og
farðað smjör, sem menn gátu ekki etið, og varð
því lítið úr borðhaldinu.
Forstöðukonan spyr gestina, hvað valdi því, að
þeir borði ekki.
Þá segir einn þeirra:
„Spyrjið þér smjörið að því. Það er orðið nógu
gamalt til að geta svarað fyrir sig sjálft."
3.
'y’ANTRÚAÐUR MAÐUR spurði prest nokkurn,
hvernig stæði á því, að menn hefðu enga þekkingu
á öðru lífi, ef það væri til.