Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Side 36

Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Side 36
34 73. QUÐMUNDI varð einu sinni tilrætt um mannkosti Sigurðar bónda á Skálafelli og sagði: „Ég vil ekki tala illa um hann Sigurð, en satt að segja held ég, að það sé leitun á verra manni.“ 74. KRISTJÁN hét bróðir Guðmundar, og bjó hann einnig í Borgarhöfn. Hann hafði mikla ánægju af fréttaburði. Vilhelm Knudsen var þá verzlunarmaður á Papós, og var tengdamóðir hans hjá honum. Það einkennilega slys henti hana, að kjálkarnir á henni hlupu úr liði. Kristján fréttir þetta, hleypur með miklum asa á næsta bæ og segir, áður en hann heilsar: „Heyrið þið, piltar! Hafið þið heyrt af henni Skonsu? Það hljóp í baklás á henni kjafturinn.“ 75. gGGERT LAXDAL kaupmaður á Akureyri átti stóran hund og grimman. Eitt sinn reif hundurinn á eina á hol á götum bæjarins. Eigandi ærinnar kærði þetta fyrir bæjarfógeta, og kallaði hann Laxdal fyrir sig. „Það verður að skjóta hundf jandann,“ segir bæjar- fógeti.

x

Íslenzk fyndni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.