Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 39

Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 39
37 hvaða tungumál væri talað í helvíti, og töldu Danirn- ir það handvíst, að þar væri töluð Islenzka. Þá gall við Sigurður Vigfússon, sem kallaður var íslandströll: „Það verður ógaman fyrir Dani, ef það bætist ofan á annað, sem þeir verða að þola eftir dauðann, að þeir skilji ekki sprokið.“ „Þetta þótti rétt spidsfynduglega sagt,“ bætti sr. Þorsteinn við. 82. BERGUR 1 KÁLFHAGA var oft fljótur til svars og gamansamur í orðum. Hann varð maður gamall, en eltist vel. Eitt sinn, er hann var kominn á efri ár, hitti hann kunningjakonu sína, Pálínu Pálsdóttur frá Eyrar- bakka, og sagði hún þá við hann: „En hvað þú ert alltaf fallegur, Bergur minn, þó að þú eldist.“ Hann svaraði samstundis: „Það er von, væna mín! — Þetta var af svo miklu að taka.“ 83. GUNNAR FRÁ FOSSVÖLLUM sagði sögur manna bezt, og talið var, að hann kynni þá stundum að kríta nokkuð liðugt. Einu sinni var saman kominn hópur manna. Þeirra á meðal voru Gunnar og Þorsteinn kaupfélagsstjóri á

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.