Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 48
46
ekki skemmtilegt að sigla svona með alþingismenn-
ina til þings.
En Eiríkur svaraði:
„Mér þykir nú alltaf skemmtilegra að flytja þá
af þingi.“
101.
gíMON JÓHANNSSON í Goðdölum í Skagafirði
tók ekki að yrkja fyrr en um sextugsaldur, að sagt
er, en síðan hefur hann skemmt mörgum með hnytti-
legum stökum.
Þetta er sögð hans fyrsta vísa:
Sögu þér ég segja kann
um Símon bónda úr Dölunum:
Um sig búið hefur hann
í helvíti og kvölunum.
102.
JÓHANNA BENÓNÝSDÓTTIR, sem getið er um
framar í þessu hefti, réð sig vetrartíma á heimili
eitt á Skagaströnd.
Svo stóð á, að húsbóndinn var syðra á vertíð, en
konan ein heima með ung börn, og var því kallað,
að Jóa ætti að vera „selskabsdama" húsfreyju.
Þá kvað Lúðvík R. Kemp þessa vísu:
Fullvel tamin, frægðar naut
fyrir gamansvörin,
seinast frama sjötug hlaut,
„selskabsdama“ kjörin.
j