Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 6
Hægt verði að kalla inn
forfallabílstjóra tólf
tíma á dag
Fjögur manndráp á
stuttum tíma vekja
óhug, það er ekki hægt
að neita því.
Helgi Gunn-
laugsson, af-
brotafræðingur
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN
SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 590 2323
THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS
OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00
VIÐURKENNT ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
FÓLKSBÍLA - HÚSBÍLA - VINNUBÍLA
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
SMURÞJÓNUSTA
UMBOÐSAÐILI
Tveir menn eru í haldi lög
reglu vegna gruns um mann
dráp á konu á sextugsaldri.
Ekki hafa verið fleiri mann
dráp á einu ári á Íslandi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Kona á sextugsaldri
fannst látin í bifreið í Laugardalnum
á laugardagsmorgun og lögregla kom
á vettvang um klukkan 10.30. Tveir
karlmenn á fimmtugsaldri eru í
haldi lögreglu grunaðir um að eiga
aðild að dauða hennar.
Lögregla verst allra frétta af mál
inu en talið er að konan sé af erlendu
bergi brotin og að mennirnir tveir
sem í haldi eru hafi haft tengsl við
hana. Rannsókn málsins er sögð vera
á viðkvæmu stigi.
Þetta er fimmta manndrápið á
árinu og það fjórða á undanförnum
sex vikum. Ekki er nema vika síðan
maður var stunginn til bana á Ólafs
firði. Í ágústmánuði létust kona og
maður á Blönduósi en talið er að
maðurinn hafi skotið konuna til
bana. Bæði málin eru til rannsóknar
hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Snemma í júní var maður barinn til
bana við Barðavog í Reykjavík.
Manndráp hafa ekki verið fleiri á
Íslandi, að minnsta kosti ekki á 20.
eða 21. öldinni, en á þessu ári. Þetta
er hins vegar í sjötta skiptið þar sem
framin eru fimm manndráp á einu
ári. Gerðist það í fyrsta skiptið árið
1953 en það ár eitraði lyfsali fyrir
eiginkonu sinni og þremur börnum
áður en hann tók eigið líf. Hin árin
eru 1988, 2000, 2004 og 2020, þegar
Fimmta manndrápið á árinu framið í
Laugardal og tveir menn í varðhaldi
Fjögur mann-
dráp hafa verið
framin á aðeins
sex vikum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
þrefalt manndráp var framið með
íkveikju á Bræðraborgarstíg.
„Fjögur manndráp á stuttum
tíma vekja óhug, það er ekki hægt
að neita því,“ segir Helgi Gunnlaugs
son, afbrotafræðingur og prófessor í
félagsfræði við Háskóla Íslands.
Helgi segir óljóst hvort mann
drápin tengist auknum vopna
burði, skipulagðri brotastarfsemi,
aukinni hörku í undirheimum eða
mögulegum auknum vopnaburði
lögreglunnar.
„Drápin geta einnig verið af
ólíkum toga innbyrðis, það á eftir
að koma betur í ljós,“ segir Helgi og
rifjar upp að áður hafi hrina mann
drápa riðið yfir.
Þegar málin séu tiltölulega fá
á hverju ári megi alltaf búast við
sveif lum. Sum ár séu engin mann
dráp, til dæmis 2003, 2006 og 2008.
Þess vegna sé nauðsynlegt að skoða
alla vega tíu ár til að sjá tíðnina á
Íslandi í samanburði við aðrar
þjóðir.
„Að jafnaði höfum við verið með
um það bil tvö manndráp á ári frá
aldamótum sem telst lítið í alþjóð
legum samanburði. Í því ljósi eru
fjögur manndráp á stuttum tíma
hátt hlutfall og hærri tíðni en við
sjáum víða. Við verðum að vona að
hrinan líði hjá eins og áður hefur
gerst hjá okkur,“ segir Helgi um
manndrápstíðnina. n
Krónan
Nettó
Nettó app
Hagkaup
Heimkaup
94%
95%
93%
105%
112%
92%
98%
96%
103%
107%
2,1%
-3,3%
-3,3%
2,1%
4,1%
0,8%Vegin breyting
Meðalgildi í
októberVerslanir
Meðalgildi í
ágúst
Breyting frá
því í ágúst
Breyting milli ágúst og októberolafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Óveruleg hækkun varð
á matarkörfunni hér á landi frá
ágúst fram í október.
Veritabus kannaði verð í Krón
unni, Nettó, Hagkaupum og Heim
kaupum og í ljós kom að matar
karfan hækkaði um 0,8 prósent en
óvissan í mælingunni er 1,5 prósent
og því gæti verð jafnvel hafa lækkað.
Verðbilið milli matarkörfunnar
í Krónunni og Nettó hefur dregist
verulega saman á þessu tímabili,
enda hefur matarkarfan lækkað um
3,3 prósent í Nettó.
Sem fyrr er verð matarkörfunnar
hæst í Heimkaupum og eykst mun
urinn milli Heimkaupa og annarra
verslana í könnuninni frá ágúst til
október.
Vitað er að Bónus og Krónan hafa
um langt árabil fylgst mjög að í verði
og helstu vörur eru yfirleitt einni
krónu dýrari í Krónunni en Bónus,
sem ekki er með í könnuninni
vegna þess að keðjan rekur ekki vef
verslun. Nú þegar Nettó hefur mjög
nálgast Krónuna í verði má segja að
neytendur eigi kost á fleiri lágvöru
verðsverslunum en áður. Á móti má
segja að bilið milli ódýrustu mat
vöruverslananna og þeirrar dýrustu
hafi breikkað.
Veritabus kannaði 96 vöruliði,
sem til voru í öllum verslununum.
Könnunin fór fram í síðustu viku og
var gerð á netinu. Væru vörur ekki
til á netinu var verð í verslununum
kannað. n
Lækkun í Nettó og hækkunin mest í Heimkaup
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMGÖNGUMÁL Samkvæmt nýrri
reglugerð Sigurðar Inga Jóhanns
sonar innviðaráðherra verða heim
ildir leigubílstjóra rýmkaðar til að
nota forfallabílstjóra. Greint hefur
verið frá því að skortur sé á leigu
bílum, einkum á álagstímum.
Í reglugerðardrögunum er lagt
til að leigubílstjórum sem hafa
skerta starfsgetu vegna veikinda
verði heimilt að kalla inn forfalla
bílstjóra í allt að tólf tíma á dag, alla
daga vikunnar. Einnig að þeir megi
keyra á móti forfallabílstjóra í allt
að sex tíma á dag.
Þá verður einnig heimilt að taka
tillit til meðmæla Öryrkjabanda
lagsins og tryggingafyrirtækis þegar
öryrkjar sækja um atvinnuleyfi. n
Rýmka heimildir
forfallabílstjóra
ser@frettabladid.is
NÁTTÚRUVÁ Ríkislögreglustjóri,
í samráði við Lögreglustjórann á
Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissu
stigi almannavarna vegna mögulegs
jökulhlaups úr Grímsvötnum.
Í tilkynningu frá embættinu segir
að íshellan í Grímsvötnum sé tekin
að lækka og megi búast við því að
vatnið sem rennur undan henni
komi fram í Gígjukvísl á næstu
dögum.
Jafnframt segir að vatnsstaða í
Grímsvötnum sé lág og því bresti
varla á með stóru hlaupi sem ógnað
gæti mannvirkjum. n
Óvissustig vegna
mögulegs hlaups
Frá Grímsvötnum.
4 Fréttir 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ