Fréttablaðið - 11.10.2022, Side 10
11
mannslát hafa verið til-
kynnt eftir árásirnar.
Það vantar aðgerðir
strax til að stemma
stigu við þeirri fátækt
sem við erum að sjá
raungerast á hverjum
einasta
degi.
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir,
formaður Ör-
yrkjabandalags
Íslands
Leiguverðið lækkaði
um tíma sem er eigin-
lega ótrúlegt.
Kári S. Friðriks-
son, hagfræð-
ingur hjá HMS
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
150%
145%
140%
135%
130%
125%
120%
115%
110%
105%
100%
95%
Leiguverð
Fasteignaverð
Þróun leigu- og fasteignaverðs
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
150%
125%
100%
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu á föstu verðlagi
jan. 2011 - ágúst. 2022
HEIMILD/ÞJÓÐSKRÁ ÍSLANDS
Hækkanir á leiguverði hafa
verið mun hóflegri en hækk-
anir fasteignaverðs. Hag-
fræðingur hjá Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun býst
við að það dragi saman með
hækkunum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Hækkun fasteigna-
verðs hefur verið meira en tvöföld
á við hækkun leiguverðs á Íslandi
síðan árið 2010. Þetta er sambærileg
þróun og í flestum Evrópulöndum á
sama tíma.
Kári S. Friðriksson, hagfræðingur
hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofn-
un, segir það hafa verið hagstætt
að leigja undanfarin ár. Þetta sýni
meðal annars árlegar leigukann-
anir. „Leiguverðið lækkaði um tíma
sem er eiginlega ótrúlegt,“ segir
hann.
Aðrir mælikvarðar bendi einnig
til að það hafi verið gott að leigja,
til dæmis aukin ánægja með leigu-
sala. Aukið framboð af leiguíbúðum
spili þarna inn í. „Þegar það er meira
framboð af leiguíbúðum komast
leigusalar upp með miklu minna.
Þeir geta ekki hagað sér hvernig sem
er,“ segir Kári.
Síðan árið 2010 hefur fasteigna-
verð á Íslandi hækkað um nærri
200 prósent. Leiguverð hefur hins
vegar aðeins hækkað um 75 prósent.
Þetta er nokkurn veginn í samræmi
við þróunina í álfunni, en á EES
svæðinu öllu hefur fasteignaverð
hækkað um 50 prósent frá árinu
2010 en leiguverð aðeins um tæp-
lega 20 prósent.
Telur að leiguverð eigi inni hækkanir
eftir afar hagstæð ár að undanförnu
Aðeins í örfáum löndum halda
hækkanir leiguverðs í við, eða fara
fram úr, fasteignaverði. Það er Eist-
landi, Litáen, Póllandi, Rúmeníu,
Írlandi og Finnlandi. Leigumarkað-
urinn er misjafn milli landa, það er
hversu mikið regluverk er í kringum
hann. Munurinn getur einnig verið
töluverður milli borga í hverju
landi. Almennt séð hefur hann þó
reynst stöðugri en fasteignamark-
aðurinn sem er viðkvæmari fyrir
hagsveiflum.
Kári segir að á undanförnum
árum hafi lækkandi vaxtastig og
lækkandi kostnaður við leigurekst-
ur valdið hóflegri verðhækkunum
á leigumarkaðinum. Hér á Íslandi
hafi það verið auðveldara en áður
fyrir fyrstu kaupendur að komast
inn á fasteignamarkaðinn. Þá hafi
þrýstingur vegna skammtímaleigu
minnkað. Það er að framboð hótel-
herbergja hafi aukist og arðbærni
leigu á AirBn’b minnkað. Framboð á
leiguhúsnæði í gegnum óhagnaðar-
drifin leigufélög hafi einnig aukist.
„Þetta hefur létt á leigumarkað-
inum,“ segir hann, um þessa sam-
verkandi þætti.
Kári býst hins vegar við því að
bilið milli hækkana fasteignaverðs
og leiguverðs muni minnka. Vextir
Seðlabankans séu að hækka hratt,
sem skili sér f ljótt út í fasteigna-
verðið. Fasteignaverð muni því
hækka hóf lega eða jafnvel lækka
á komandi mánuðum. „Ég held að
leiguverð eigi inni einhverjar hækk-
anir,“ segir hann. Erfitt sé hins vegar
að tímasetja þær. n
birnadrofn@frettabladid.is
ÍRAN Fjölskylda Möhsu Amini, 22
ára kúrdísku konunnar sem lést í
haldi lögreglu fyrir þremur vikum,
sem olli mótmælum víðs vegar um
Íran, segist hafa fengið líf látshót-
anir og verið vöruð við því að taka
þátt í mótmælunum.
Mahsa varð tákn kúgunar Írans
eftir að hún var handtekin af sið-
gæðislögreglunni í landinu, sem
sakaði hana um að hafa klæðst
hijab á óviðeigandi hátt. Andlit
hennar og saga eru nú þekkt um
allan heim.
Um tvö hundruð manns hafa
látið lífið í mótmælunum í Íran sem
íransk-bandaríski blaðamaðurinn
Negar Mortazavi segir ólík fyrri
mótmælum sem hafa átt sér stað
í landinu. Þau séu drifin áfram af
konum og hafi feminísk markmið
sem beint sé að inngróinni mis-
munun.
Fjöldi fólks hefur mótmælt á
götum úti í Íran undanfarnar vikur.
Konur hafa skorið hár sitt ásamt því
að brenna höfuðslæður sínar á báli í
mótmælaskyni. n
Fjölskyldu Möhsu
Amini hótað
Fjöldi fólks hefur mótmælt á götum
úti í Íran undanfarnar vikur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Öryrkjabandalag Íslands
lýsir áhyggjum af framfærsluvanda
vaxandi hóps fatlaðs fólks á Íslandi
og skorar á stjórnvöld að bregðast
við án tafar. Þetta er á meðal þess
sem segir í ályktun sem aðalfundur
ÖBÍ samþykkti um helgina. Fatlað
fólk er nú 42 prósent þeirra sem leita
til Umboðsmanns skuldara og hefur
fjölgað hratt í þeim hópi frá 2019.
„Það vantar aðgerðir strax til að
stemma stigu við þeirri fátækt sem
við erum að sjá raungerast á hverj-
um einasta degi. Sérstaklega núna
þegar verðbólgan er eins og hún er,“
segir Þuríður H. Sigurðardóttir, for-
maður ÖBÍ. n
Skuldir fatlaðs fólks aukast hratt
ragnarjon@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Rússar skutu í gær loft-
skeytum að Kænugarði, höfuð-
borg Úkraínu, auk annarra borga, í
stærstu loftárás þeirra frá upphafi
stríðsins. Loftskeytum var einnig
beint að borgunum Lvív, Zaporízjzja
og Karkív ásamt öðrum.
Almenningsgarðar, umferðar-
götur og vinsælir ferðamannastaðir
voru meðal skotmarka Rússa en ell-
efu mannslát hafa verið tilkynnt og
eru yfir 89 sagðir slasaðir en talið er
að sú tala muni hækka.
Fjöldamargir borgarbúar leituðu
skjóls í sprengjuskýlum víðs vegar
um borgina en langdrægum loft-
skeytum var skotið frá skipum, flug-
vélum og af landi. Talið er að árás
Rússa sé hefndaraðgerð vegna árásar
sem gerð var á brúna sem tengir
Krímskaga við Rússland, en Vla-
dímír Pútín Rússlandsforseti hefur
kallað þá árás hryðjuverk.
„Að leyfa slíkum hlutum að gerast
án þess að svara í sömu mynt er ein-
faldlega ómögulegt,“ sagði Pútín í
yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í
tengslum við árásirnar í gær.
Volodymyr Zelenskyj, forseti
Úkraínu, hefur fordæmt árásirnar
en hann segir þær hafa verið vísvit-
andi gerðar til að myrða úkraínska
borgara.
„Þeir eru að reyna að tortíma
okkur og eyða okkur af yfirborði
jarðar,“ sagði hann í tilfinninga-
þrungnu svari sínu um árásirnar.
Fleiri hafa fordæmt árásirnar, þar
á meðal Joe Biden Bandaríkjafor-
seti. „Þessar árásir drápu og særðu
saklausa borgara og eyðilögðu skot-
mörk sem ekki hafa neinn hern-
aðarlegan tilgang,“ sagði Biden í til-
kynningu eftir árásirnar.
Það var fyrir tveimur dögum sem
árásin á brúna á Krímskaga var gerð
en hún var talin sérstaklega vand-
ræðaleg fyrir Rússa þar sem brúin
var byggð árið 2014, eftir að Pútín
innlimaði Krímskaga.
Úkraínumenn hafa enn ekki
lýst yfir ábyrgð á árásinni en íbúar
landsins fögnuðu henni ákaft þegar
í ljós kom að brúin hefði orðið fyrir
skemmdum. n
Rússar sprengdu skotmörk með engan hernaðarlegan tilgang
Frá miðbæ Kænugarðs þar sem ein af sprengjum Rússa sprakk.FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
8 Fréttir 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ