Fréttablaðið - 11.10.2022, Page 18
Æðardúnssængur
eru lúxusvara. Hér
áður fyrr fengu börn oft
æðardúnssæng í ferm-
ingargjöf og áttu hana
alla ævi.
Margrét Rögnvaldsdóttir
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Betri svefn með Lín Design
Betri svefn með Lín Design
Betri svefn
með Lín Design
www.lindesign.is
Æðardúnn er einstaklega
náttúruvæn vara. Dúnn-
inn er sóttur í hreiður, en
æðarkollan losar sig við
dúninn og skilur hann þar
eftir þegar hún þarf ekki á
honum að halda. Dúnninn
er einstaklega hlýr og hentar
því vel í sængur og kodda.
Á Íslandi eru skráðir á milli 380 og
400 staðir þar sem æðarfuglinn
verpir. Æðarkollan er á sjó allt árið
nema þegar hún kemur í land til að
verpa, en þá leitar hún í skjól æðar-
bænda sem verja hana frá vargi.
„Við verjum æðarkolluna frá
bæði flugvargi, tófu og minki. En
það hefur sýnt sig að ef fólk hættir
að sinna æðarvarpinu og verja
fuglinn þá leitar hann annað,“
segir Margrét Rögnvaldsdóttir, for-
maður Æðarræktarfélags Íslands.
„Refurinn tekur eggin sér til
matar en minkurinn er sérstaklega
skæður, hann drepur kollurnar
á hreiðrunum og étur ungana og
eggin. Það eru minka- og refa-
skyttur á vegum hins opinbera
sem verja svæðin, og einnig æðar-
bændur sjálfir, þeir verja ekki bara
æðarfugl heldur allan fugl. En
æðarbændur eru umhverfissinnar
og okkar starf gengur ekki út á að
drepa heldur að halda jafnvægi í
náttúrunni, þannig að við verjum
okkar fugl svo hann komi sínum
ungum á legg,“ útskýrir hún.
„Æðarfuglinn hefur verið friðað-
ur á Íslandi frá árinu 1847 og Ísland
er eini staðurinn þar sem hann er
alfriðaður. 75-80% af heimsfram-
leiðslu æðardúns er á Íslandi, en
hún hefur farið minnkandi annars
staðar. Við höfum haldið í þetta.
Æðarrækt er aldagömul hefð hér á
Íslandi og við höfum nýtt æðardún
hér frá landnámi.“
Margrét segir að á mörgum
stöðum þar sem er æðarvarp, sé
enginn annar búskapur lengur og
fólk sinni æðarvarpinu á sumrin
með stórfjölskyldunni.
„Þetta er fjölskylduiðja á
mörgum stöðum. Öll stórfjölskyld-
an kemur saman, sinnir fuglinum,
safnar dúninum og hreinsar hann.
En svo eru enn margir æðar-
bændur sem eru líka með búskap,“
segir hún.
Enginn dúnn jafn hlýr
Æðardúnn hefur mikið einangr-
unargildi og Margrét segir að
samkvæmt vísindarannsóknum sé
enginn dúnn jafn hlýr og léttur og
æðardúnninn.
„Þetta er besti dúnn í heimi.
Æðarfuglinn er villtur fugl sem
kemur til okkar og verpir. Við
Æðardúnninn er lúxusvara
Margrét segir
skráða á milli
380-400 æðar-
varpstaði á Ís-
landi.
MYNDIR
/AÐSENDAR
Oft hjálpast öll fjölskyldan að við að safna dúninum.
Æðarkollan liggur á hreiðrinu í 25-27 daga.
hormónabreytingar í fuglinum
dettur dúnninn af til að hann geti
myndað varpblett. Það er auður
blettur á bringunni á fuglinum,
og með honum heldur hann hita á
eggjunum. Eftir að ungarnir koma
úr egginu er kollan í um það bil
sólarhring með ungana í hreiðrinu,
svo fer hún með ungana út á sjó
og skilur dúninn eftir,“ útskýrir
Margrét.
„Þannig að dúnninn er bara
aukaafurð sem fuglinn nýtir ekk-
ert, svo við tökum hann og nýtum
hann. Við erum ekki að reita
dúninn af fuglinum og kollan reitir
sig heldur ekkert sjálf. Þetta er bara
hormónabreyting sem á sér stað
svo kollan geti haldið hita á eggj-
unum. Hún situr svo á hreiðrinu
í 25-27 daga. Þetta er allt mjög nátt-
úrulegt og ekkert inngrip.“
Margrét segir að eftirspurn eftir
æðardúni sé góð en hún sveiflist
þó svolítið. Æðardúnn er mikið
seldur frá Íslandi sem hrávara en
þó sé það að aukast að fullunnar
dúnsængur og aðrar vörur úr æðar-
dúni séu framleiddar hér á landi og
seldar til útflutnings.
„Stærstu markaðirnir fyrir
óunninn æðardún hafa verið Japan
og Þýskaland. En framtíðarsýn
íslenskra æðarbænda er að flytja
út fullunna vöru þannig að öll
verðmætaaukningin eigi sér stað á
Íslandi,“ segir hún.
Munur að sofa með æðardún
Margrét segir að verulegur munur
sé á því að sofa með æðardúnssæng
og aðrar dúnsængur.
„Ég veit ekki um neinn sem hefur
sagt annað eftir að hafa sofið með
æðardúnssæng. Hún er svo létt og
þægileg. Ég veit um fólk sem hefur
haft áhyggjur af að fá ofnæmi. En
það er ekki hætta á því. Dúnninn
fer í gegnum langt hreinsunarferli,
hann er hitaður í 120 gráðum í
langan tíma, svo er hann í verum
sem loka dúninn alveg inni.
Annars vegar í bómullarverum og
hins vegar silki. Hér á landi hafa
silkisængur ekki verið vinsælar,
en þær eru mjög vinsælar í Japan,“
segir hún.
„Æðardúnssængur eru lúxusv-
ara. Hér áður fyrr fengu börn oft
æðardúnssæng í fermingargjöf og
áttu hana alla ævi. Þá þarf auðvitað
að lofta sængina og hreinsa hana.
En það eru skiptar skoðanir á því
hversu oft þarf að þvo sængina,
en þess þarf ekki nema á 10 ára
fresti eða þar um kring. En það er
ótrúlegt hvað dúnninn tekur við
sér við að komast út í sól. Þá lifnar
hann alveg við. Þetta er ægilega
skemmtilegt efni.“
Eins og áður segir er Margrét for-
maður Æðarræktarfélags Íslands.
Það eru frjáls félagasamtök, en
Margrét segir flesta æðarbændur á
Íslandi vera aðila í félaginu.
„Æðarbændur eru margir um
allt land en með misstór vörp og
sumir fá lítið af dúni. Á vefsíðu
félagsins er hægt að sjá lista yfir þá
sem eru að selja æðardúnssængur
hér á landi,“ segir hún. n
4 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN