Fréttablaðið - 11.10.2022, Page 20
„Aukin lífsgæði eru okkar
leiðarljós. Við viljum að fólk
geti lifað virku og heilbrigðu
lífi, og þar er góður nætur-
svefn ein af grunnstoð-
unum, en líka að vera róleg
yfir nóttina og þurfa ekki oft
á klósettið.“
Þetta segir Sólveig Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Saga Natura,
sem síðastliðin sautján ár hefur
framleitt bætiefnið SagaPro úr
íslenskri ætihvönn, en SagaPro var
upphaflega rannsakað og þróað af
Sigmundi Guðbjarnarsyni, fyrr-
verandi rektor Háskóla Íslands.
„Ætihvönn kemur að miklu
gagni gegn ofvirkri þvagblöðru,“
greinir Sólveig frá. „Blaðran
sendir gjarnan skilaboð um að við
þurfum að fara á klósett þegar við
þurfum þess í rauninni ekki, en í
hvannalaufum eru sértæk efni sem
slaka á blöðrunni þannig að hún
fyllist alveg og þarf ekki að tæmast
fyrr en hún er raunverulega full.
Þessi efni er einungis að finna í
hvannalaufum, en ekki öðrum
hlutum hvannarinnar. Því getur
SagaPro haldið þvagblöðrunni
rólegri og fólk sofið vært í gegnum
nóttina.“
Virkar fyrir alla aldurshópa
SagaPro ræðst að rót vandans.
„Margir vakna um miðja nótt til
að pissa, sem er ekki stórt vanda-
mál ef þeir fara strax aftur að sofa,
en það eru mikil lífsgæði að losna
við að liggja andvaka eftir klósett-
ferðir á nóttunni. Næturbrölti á
klósett fylgja ákveðnir áhættu-
þættir, svo sem að detta, slasa sig
eða brjóta, sem er algengt þegar
fólk leitar á klósett í svefnrofunum.
Því hljótast ýmsar afleiðingar af
þessu vandamáli en með því að
halda þvagblöðrunni rólegri er
ráðist að rót vandans og fólk hættir
að vakna til að fara á klósettið,“
segir Sólveig.
Hún segir 45 prósent þeirra
sem eru 65 ára og eldri glíma við
ofvirka þvagblöðru, og að vanda-
málið fari vaxandi eftir því sem
aldurinn hækki.
„Flestir tengja ofvirka þvag-
blöðru og notkun á SagaPro við
eldri kynslóðina, en raunin er sú
að 11 prósent fullorðinna þjást af
ofvirkri blöðru og það er alls ekki
bundið við elsta hópinn. SagaPro
virkar því fyrir alla aldurshópa
og ef fólk vaknar á nóttunni til að
pissa mælum við alltaf með að það
prófi SagaPro því annars veit það
ekki hvort varan virki eða það geti
leyst vandamálið með náttúru-
legum aðferðum,“ segir Sólveig.
Hún upplýsir að markhópur
SagaPro hafi stækkað mikið á
undanförnum árum.
„Við sjáum að fólk sem stundar
golf, hleypur langar vegalengdir,
er í fjallgöngum og útivist vill geta
farið í gegnum daginn án þess að
hafa áhyggjur af ofvirkri þvag-
blöðru og því að þurfa að vera
nálægt klósetti. SagaPro nýtist
þeim hópi ótrúlega vel og það
er fólk á öllum aldursskeiðum.
Margir í yngri hópnum gera sér
ekki grein fyrir að þau þjáist af
vandamáli sem hægt er að leysa,
en það að vera sífellt að leita að
klósetti er ekki eðlilegt ástand.
Maður á að geta farið áhyggjulaus í
gegnum daglegt amstur án þess að
vera háður því að vera nálægt kló-
setti, en það er oft sem fólk áttar sig
ekki á því að þetta sé vandamál og
skert lífsgæði,“ segir Sólveig.
Jurt með einstaka eiginleika
SagaPro kom fyrst á markað árið
2005 og nemur nú land í Banda-
ríkjunum, Kanada, Nýja-Sjálandi
og víðar á erlendum mörkuðum.
„Reynslan sýnir að fólk sem
hefur vanalega þurft að vakna á
nóttunni til að pissa finnur bót á
vandanum þegar það fer að taka
inn SagaPro og þeir sem prófa
halda því áfram, því þeir finna
mikinn mun og það á náttúru-
legan hátt. Það er nefnilega hægt
að taka lyf við þessu vandamáli en
lyfjum geta fylgt aukaverkanir. Við
hjá Saga Natura nýtum hins vegar
jurt sem verið hefur í íslenskri
náttúru frá landnámi og ekki er
vitað til að hafi í för með sér neinar
aukaverkanir. Við erum með þessa
stóru tilraunastofu sem Ísland er
og meira en eitt prósent íslensku
þjóðarinnar notar SagaPro á
hverjum degi, sem er ágætis hlut-
deild fyrir svo sértæka vöru,“
greinir Sólveig frá.
Fyrir þremur árum fékk Saga
Natura stóran styrk frá Evrópu-
sambandinu til að rannsaka enn
frekar það einstaka hráefni sem
handtínd hvannalauf úr íslenskri
náttúru er.
„Hér innanhúss erum við með
tilraunastofu þar sem rannsóknar-
og þróunarteymi rannsakar
hvönnina betur og betur, og í gangi
er klínísk rannsókn á SagaPro í
Madríd á Spáni, sem lýkur í byrjun
næsta árs. Í teyminu okkar er dr.
Steinþór Sigurðsson sem hefur
rannsakað íslenska ætihvönn í yfir
tuttugu ár og við erum stöðugt að
dýpka þekkinguna á þessari ótrú-
legu og einstöku íslensku jurt. Við
nálgumst vöruna á mjög agaðan
hátt og með rannsóknarhug-
myndafræði. Þá erum við komin
með einkaleyfi á virka efninu í
hvannalaufunum og færum okkur
æ meira í átt að sértækari vörum,“
upplýsir Sólveig.
Stuðla að bættum lífsgæðum
Hvönn hefur verið notuð sem
lækningajurt á Íslandi í hundruð
ára.
„Hvönn hefur margþætta eigin-
leika og í gegnum tíðina höfum við
fengið alls konar vísbendingar um
virkni hennar. Við notum hvanna-
fræ í bætiefnin SagaImmune sem
styður við ónæmiskerfi líkamans
og SagaMemo sem margir við-
skiptavinir tala um að auki ein-
beitingu og minni. Hvannalaufin
notum við í SagaPro og hálsbrjóst-
sykurinn Voxis, en rannsóknir
á hvönn hafa sýnt fram á að æti-
hvönn geti drepið veirur, sem gerir
Voxis að einstakri vöru. Því er
mikilvægt að við höldum áfram
að skilja hvönnina og rannsaka
betur,“ segir Sólveig.
Í vörum Saga Natura eru við-
bætt mikilvæg vítamín og öflug
innihaldsefni sem styðja við aukin
lífsgæði og heilsu, en framleiðslan
fer fram á Íslandi, allt frá hand-
tínslu hvannalaufa yfir í sölu og
dreifingu í búðir.
„Við erum líka með vinsælt
áskriftarkerfi þar sem áskrifendur
fá vöruna senda heim og 15 pró-
senta afslátt. Áskrifendum fjölgar
jafnt og þétt og er mikil ánægja
með heimsendingarnar. SagaPro-
dós kemur heim í fyrsta skiptið en
svo pokar til áfyllingar inn um lúg-
una. Það hjálpar bæði við að eiga
vöruna til og er um leið umhverfis-
vænni leið en að kaupa alltaf nýja
og nýja dós,“ segir Sólveig.
Hún tók við stöðu framkvæmda-
stjóra SagaNatura í apríl á þessu
ári.
„Sem framkvæmdastjóra finnst
mér mikilvægt að dýpka og skerpa
enn frekar á því að við viljum vera
fyrirtæki sem stuðlar að bættum
lífsgæðum með náttúrulegum
vörum,“ segir Sólveig hjá Saga
Natura sem tengist íslenskri hvönn
sterkum böndum en líka íslensku
astaxantíni.
„Mín eftirlætis vara er AstaSkin.
Það hefur virkilega góð áhrif á húð
mína, hár, neglur og alhliða heilsu.
Ég held að það það sé vanmetið
hversu vel við getum viðhaldið heil-
brigði húðar innan frá í stað þess
að bera á hana krem. Í AstaSkin
notum við seramíð, sem er ekki að
finna í öðrum bætiefnum á Íslandi.
Klínísk próf hafa sýnt góð áhrif
seramíðs á rakastig húðarinnar.
Neytendur hafa einnig talað um
að AstaSkin bægi þurrkblettum
frá og stuðli að því að húðin sé slétt
og áferðarfalleg. Í neytendakönn-
unum sjáum við líka mjög sértæk
áhrif á svokallaða kjúklingahúð,
sem eru litlar bólur á handleggjum
og lærum, en með AstaSkin hefur
fólk losnað við þær á sex vikum til
þremur mánuðum; nokkuð sem
var ekki auðvelt að losna við með
öðrum leiðum,“ upplýsir Sólveig.
Hún segir astaxantín mikilvægt
bætiefni sem helst allir ættu að taka
inn fyrir húð, augu, liði og hjarta.
„Það hefur mjög fjölþætt áhrif á
heilsuna. Andoxunarefnið astax-
antín getum við fengið úr fæðunni
en fæst okkar borða nóg af því svo
það styðji við heilsuna eins og við
viljum sjá.“ n
Saga Natura er á Suðurhellu 8 í
Hafnarfirði. Sími: 562 8872. Net-
fang: saganatura@saganatura.is.
Sjá meira á saganatura.is
Aukin lífsgæði og samfelldur nætursvefn
Sólveig Stefánsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra SagaNatura í apríl á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Allt annað líf
Sigrún Birna Kristjánsdóttir,
bókari, doulu-nemi og lög-
fræðingur í framkvæmdateymi
Þorpsins tengslaseturs, hefur
notað SagaPro með góðum
árangri í tvö ár.
„Ég heyrði af SagaPro fyrir
um tveimur árum en hafði ekki
mikla trú á því í fyrstu því ég hélt
að það væri bara fyrir karla og
blöðruhálskirtilinn. Svo ákvað
ég að gefa því séns því ég þurfti
svo oft á salernið á nóttunni og
fannst lygilegt hversu fljótt það
virkaði því strax á þriðja degi var
ég farin að finna áþreifanlegan
mun og þurfti bara að fara að-
eins einu sinni á klósettið í stað
þess að fara tvisvar til þrisvar
sinnum, og í dag er bara hending
ef ég vakna til að fara á klósettið
á næturnar. Það er mikil og góð
breyting,“ segir Sigrún Birna,
ánægð með árangurinn.
Sigrún tók SagaPro upphaf-
lega á kvöldin en tekur það nú að
morgni eða um hádegisbil.
„Í sumar prófaði ég að gamni
að taka SagaPro áður en ég
lagði upp í sjö tíma bílferð frá
Kópavogi vestur til Patreks-
fjarðar. Hér áður fór ég oftsinnis
á milli Akureyrar og Reykjavíkur
og þurfti þá að stoppa í öllum
sjoppum á leiðinni til að létta á
mér en þegar ég ók í einni lotu
á Vestfirðina í sumar þurfti ég
bara tvisvar á salernið. Það kom
ánægjulega á óvart og nú tek ég
SagaPro fyrri part dagsins því
eftir að hafa tekið það inn reglu-
lega í rúmt ár er eins og blaðran
hafi jafnað sig yfir nóttina. Því
stendur mesta virknin með mér
yfir daginn, sem er skemmtileg
breyting frá því að þurfa oft og
iðulega á klósettið í vinnunni,“
segir Sigrún Birna sem starfar
mikið með framkvæmdateymi
Þorpsins tengslaseturs, sem
vinnur út frá hugmyndafræði
um mikilvægi fyrstu áranna í lífi
barna og er stöðugur vettvangur
fyrir foreldra og börn þeirra til
að sækja fjölbreytta þjónustu,
námskeið og fasta tíma í stunda-
töflu.
„Nú vakna ég úthvíld og hef
jafnari orku yfir daginn. Það
er mikill munur að geta sofið
heila nótt því þegar verst var
vaknaði ég upp undir þrisvar á
nóttu og þótti það bæði pirrandi
og hundleiðinlegt ástand, ekki
orðin þrítug þá. Ég var hins vegar
svo samdauna ástandinu að ég
áttaði mig ekki á að það væri
óeðlilegt, en þegar ég sá að ef
maður þyrfti að létta á sér oftar
en átta sinnum á dag væri um
ofvirka blöðru að ræða og féll ég
klárlega undir þá skilgreiningu
án þess að vita það. Því hefur Sa-
gaPro gjörsamlega breytt til hins
betra,“ segir Sigrún Birna sæl.
Sigrún Birna Kristjánsdóttir fann
strax mun á þriðja degi eftir að
hún fór að taka inn SagaPro.
Við viljum vera
fyrirtæki sem
stuðlar að bættum lífs-
gæðum með náttúru-
legum vörum.
Sólveig Stefánsdóttir
6 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFNGÓÐUR SVEFN