Fréttablaðið - 11.10.2022, Síða 24
Silki er allra fínasta efni
sem völ er á og sérstaklega
notalegt þegar kemur að
rúmfötum og klæðnaði.
Nýlega bætti verslunin Silki-
svefn við vöruúrvalið með
glænýjum vörum á borð
við kímonósloppa, skyrtur,
sængur og kodda úr 100%
Mullberry-silki að innan og
utan.
Verslunin Silkisvefn sérhæfir sig
í rúmfatnaði úr 100% Mullberry-
silki. Nýlega fékk verslunin stóra
sendingu af glænýjum vörum sem
eiga það sameiginlegt að bæta
svefninn segir Einar Ágúst Einars-
son, framkvæmdastjóri verslunar-
innar. „Meðal nýrra vara má nefna
sængur og kodda úr 100% silki að
innan og utan. Einnig fengum við
fallega kímonósloppa, náttföt,
undirföt og rúmföt í nýjum litum.“
Hann segir að ólíkt bómull og
memoryfoam dragi silkið ekki í
sig raka. „Því myndast mun færri
bakteríur í silki en í öllum öðrum
efnum sem sofið er á. Silkið er
því sérstaklega gott fyrir rakastig
húðarinnar og þau sem eru með
exem, astma eða ofnæmi eiga þá
auðveldara með svefninn.“
Andar betur en önnur efni
Einar segir silkið vera afar mjúkt
og að auðvelt sé að hreyfa sig á
slíku laki. „Silkið er náttúrulegt
efni úr próteinríkum þráðum. Það
andar betur en önnur efni og því
verður hitastig líkamans
jafnara þegar sofið er
með silkisængurver.“
Mýktin hefur
einnig yngjandi
áhrif og kemur í
veg fyrir að hár
verði úfið bætir
hann við. „Eins
og flestir vita er
silki allra fínasta
efni sem völ er á
og er sérstaklega nota-
legt þegar kemur
að rúmfötum og
klæðnaði. Silki
endist líka lengi
ef vel er hugsað um það,“ segir
Einar og bendir á að á heimasíðu
Silkisvefns sé hægt að kynna sér
þvottaleiðbeiningar í tengslum við
silki.
Bleikur október hjá
versluninni Silkisvefni
Augnhlífar 2.990 kr.
20% af sölu allra bleikra vara rennur til Bleiku slaufunnar í október.
Sængurver 39.990 kr.Náttföt 34.000 kr.Hjónasett 109.990 kr.
Hárteygja 1.490 kr.
Koddaver 6.990 kr.
Sloppur 39.000 kr.
Rúmteppi 19.990 kr.
Silkikoddaverin vinsælust
Silkikoddaverin hjá Silkisvefni er
vinsælasta varan hjá versluninni
segir Einar „Í kringum jólin hafa
silkikoddaverin okkar verið efst
á óskalistanum hjá mörgun þar
sem þau eru gífulega vinsæl til
gjafa. Meðal annarra vin-
sælla vara má nefna
náttföt, hárteygjur,
sloppa, boxer-nær-
buxur, jakka-
fataskyrtur, lök
og sængurver
í öllum helstu
stærðum.“
Verslunin er
alltaf að bæta við
litaúrvalið og býður
nú upp á rúmföt í tíu
litum. „Þar á meðal er
Ivory White, Champagne,
French Blue, Lavender,
Silver, Black, Rose Pink og
nýju litirnir okkar sem
eru Emerald Green, Space Gray og
Gold.“
Október er bleikur mánuður
og 20% af sölu allra bleikra vara
rennur til Bleiku slaufunni. „Við
erum með fjölbreytt vöruúrval í
bleika litnum okkar, þar á meðal
hárteygjur, augnhlífar, koddaver,
lök, sængurver, boxer-nærbuxur
og kímonósloppa.“
Mæla með heimsókn í búðina
Fyrir þau sem eru áhugasöm
bendir Einar á að best sé að skoða
vörurnar í verslun þeirra í Fáka-
feni 9 í Reykjavík en hún er opin
virka daga frá klukkan 13-17 og
einnig á laugardögum. „Mýktin er
eiginlega ólýsanleg og þess vegna
hvetjum við sem flesta til að kíkja
við hjá okkur í Skeifunni og finna
mýktina með eigin snertingu.“
Einnig má alltaf skoða vöruúr-
valið á heimasíðunni, silki-
svefn. is, eða senda fyrirspurn á
netfangið silkisvefn@silkisvefn. is.
„Auk þess má alltaf hringja í síma
618 0707 með frekari fyrirspurnir.
Við sendum vörurnar okkar um
land allt og hægt er að fá heim-
sendingar á höfuðborgarsvæðinu
samdægurs.“ n
Nánari á silkisvefn.is.
Náttföt 34.000 kr.
10 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN