Fréttablaðið - 11.10.2022, Side 33
Hjónin Arnþór Haukdal
Rúnarsson og Karlotta
Bridde kynntust CBD vörum
af eigin raun en þær njóta
mikilla vinsælda, enda hafa
þær reynst vel við alls kyns
kvillum. Þau stofnuðu í
kjölfarið CBD Reykjavík og
síðan hefur rignt yfir þau
skilaboðum frá ánægðum
viðskiptavinum.
Hjónin Arnþór Haukdal Rúnars-
son og Karlotta Bridde glímdu
bæði við mikla verki áður en þau
kynntust CBD vörunum. Arnþór
lenti ungur í bílslysi og átti í kjöl-
farið erfitt með svefn vegna verkja
í baki og Karlotta Bridde greindist
með sjaldgæft risafrumuæxli í
beini við úlnlið, sem olli henni
miklum taugaverkjum.
„Áður en ég hóf að nota CBD
vörurnar hafði ég ekki mikla trú
á óhefðbundnum lausnum og ég
man að ég kallaði CBD snákaolíu
þegar mér var bent á vörurnar við
verkjunum. Seinna fór ég í aðgerð á
öxl og var í kjölfarið gefið eitt glas
af CBD-olíu sem ég ákvað að prófa.
Ég var orðinn verkjalaus með öllu
eftir aðeins tveggja vikna notkun
og farinn að sofa eins og engill,“
segir Arnþór Haukdal Rúnarsson,
sem er eigandi CBD Reykjavík.
Hann hefur allar götur síðan notað
CBD-olíu og segir lífsgæðin hafa
aukist til muna.
Hann segir það hafa verið mikið
áfall fyrir eiginkonu hans, Karlottu
Bridde, að greinast risafrumuæxli
í beini við úlnlið. „Ofan á áfallið
þróaði hún með sér mikinn kvíða
vegna mikillar óvissu um bata,“
segir Arnþór.
Fljótlega eftir að Karlotta hóf
notkun á CBD-olíunni sá Arnþór
miklar breytingar á konu sinni.
„Karlotta braust út úr mikilli
vanlíðan á aðeins þremur mán-
uðum og þá var ekki aftur snúið.
Í kjölfarið ákváðum við að setja
aleigu okkar í að stofna fyrirtækið
og því er CDB Reykjavík byggt frá
grunni af okkur tveimur, ásamt
ómetanlegri hjálp vina og af ein-
skærri hugsjón,“ bæti Arnþór við.
Bestu gæði sem völ er á
Og jákvæð viðbrögð hafa svo
sannarlega ekki látið á sér standa.
„Algengustu kvillarnir sem fólk
nefnir við okkur eru bólgur og
verkir, líka svefnvandamál og
kvíði, en flóran er miklu meiri.
Auk þess er stór hópur notenda
CBD varanna fólk sem er undir
miklu líkamlegu og andlegu álagi
í vinnu og námi, en finnur mikinn
mun til hins betra með því að nýta
sér vörurnar okkar,“ segir Arnþór.
Á Íslandi gilda reglur sem kveða
á um að CBD vörur séu vottaðar og
seldar sem snyrtivörur.
„Að sjálfsögðu fylgjum við þeim
reglum í einu og öllu, en umræða
undanfarin ár gefur þó góða von
um að reglunum verði breytt og
almenn sala CBD sem fæðubótar-
efnis verði leyfð fyrr en síðar,“ segir
Arnþór.
CBD Reykjavík er í fararbroddi á
íslenskum CBD markaði. Vör-
urnar eru í hæsta gæðaflokki og fer
lífræn framleiðsla CBD-olíunnar
fram í Evrópu að sögn Arnþórs.
„Þar fylgjum við ferlinu eftir allt
frá akri ofan í glas,“ segir Arnþór.
„Þegar viðskiptavinir okkar kaupa
CBD-olíu frá CBD Reykjavík fást
bestu gæði sem völ er á, enda á
maður aldrei að sætta sig við neitt
annað. Þessar vörur eru traustar,
öruggar og góðar. Hver einasta
framleiðslulota er rannsökuð af
Eurofins í Bretlandi þar sem inni-
hald er staðfest og vottað.“
Reynslusögurnar eru
áhrifamiklar
Hjónin stofnuðu CBD Reykja-
vík sumarið 2021, í fyrrasumar.
Viðtökurnar hafa verið virki-
lega góðar og skilaboðum frá
ánægðum viðskiptavinum hefur
rignt yfir Arnþór og Karlottu frá
upphafi.
„Margar þessar reynslusögur
snerta mann djúpt og satt að segja
verð ég oft klökkur yfir mörgum
þeirra. CBD hjálpar ekki öllum, en
svo ótrúlega mörgum. Því fylgir
líka mikill léttir fyrir fólk að losna
við vanlíðan sem hefur kannski
varað í mörg ár,“ segir Arnþór.
Vörur CBD Reykjavík fást í vef-
verslun þeirra cbdrvk.is, í Fríhöfn-
inni Keflavíkurflugvelli, Akur-
eyrarapóteki, Apóteki Garðabæjar,
Apóteki Hafnarfjarðar, Eftirlæti
Sauðárkróki, Eliru Smáralind, Hár-
rétt Núpalind, Lyfjavali Glæsibæ
og Vesturlandsvegi, Lyfjavali
Urðarhvarfi og Mjódd, Lyfjavali
Vesturlandsvegi og Hæðarsmára,
Lyfjavali Reykjanesbæ og Suður-
felli, Húnabúðinni Blönduósi,
GeoSea Húsavík, Rima-apó-
teki, Urðarapóteki og Vistveru
Grímsbæ. Sendum um land allt. n
CBD vörurnar
auka lífsgæðin
Arnþór Haukdal Rúnarsson, CBD
RVK. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
CBD RVK andlitskrem og líkamskrem
er æðisleg tvenna fyrir þá sem vilja
gera vel við sig.
Premium CBD-olía, 22% með myntu,
er ein af vinsælustu vörum CBD
Reykjavík.
Ný og frábær PREMIUM Sport 30%
CBD-olía með vanillu er frábær olía
sem hentar íþróttafólki sem þarf að
standast strangar lyfjaprófanir.
CBD vörurnar fást í ýmsum snyrtivöruverslunum. Elira í Smáralind er ein þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Lyfjaval. Lyfja og fleiri apótek bjóða upp á úrval CBD vara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ferðalangar geta keypt CBD vörurnar í Fríhöfninni. MYND/AÐSEND
Þessi tvenna hefur hjálpað mörgum.
CBD RVK vöðva- og liðkrem, ásamt
33% PREMIUM full spectrum olíu
með sítrónu, eru vinsælar vörur hjá
þeim sem þjást af verkjum, bólgum
og liðagigt.
Ný og einstök full spectrum PREMI-
UM CBD-olía, 22% með með mildri
sítrónu. Algjörlega frábær olía.
CBD snyrtivörur, olía og
vöðvakrem
Vörulína CBD Reykjavík saman
stendur af CBD-olíu, andlits-
kremi, líkamskremi og vöðva-
og liðakremi.
Andlitskremið vinnur gegn
fínum línum, eykur teygjan-
leika húðarinnar og hjálpar til
við að vinna gegn bólum. Þá
hefur kremið reynst afar vel
við exemi, sóríasis og þurrki.
Líkamskremið hefur marga
af kostum andlitkremsins en
er meira ætlað gegn meðal
annars þurrki, exemi og
sóríasis. Vöðva- og liðakremið
virkar vel fyrir endurheimt
og er gott að bera á liði og
vöðva bæði fyrir og eftir átök.
Kremið er einnig verkja-
stillandi við gigtarverkjum
og vöðvabólgu. CBD-olían
er vinsælasta varan, fæst í
þremur styrkleikum og með
sítrónu og myntu. Þá býður
CBD Reykjavík einnig upp á
sportolíu fyrir íþróttafólk
sem æfir mikið.
ALLT kynningarblað 11ÞRIÐJUDAGUR 11. október 2022