Fréttablaðið - 11.10.2022, Side 34
Að auki hafa vís-
indamenn sýnt
fram á að ef jurtin er
notuð í bland við aðrar
svefnbætandi jurtir eins
og garðabrúðu, þá er
píslarblómið jafnöflugt
og hefðbundin svefnlyf
sem skammtímalausn
við svefnleysi.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Sértu á höttunum eftir betri
nætursvefni ættir þú að
skoða tehilluna næst þegar
leiðin liggur í matvörubúð
eða apótek, því mörg te
innihalda virk efni sem geta
boðað Óla lokbrá á þinn fund.
Jurtate hefur lengi verið vinsæll
valkostur hjá þeim sem vilja róa
sig niður á kvöldin. Að auki benda
vísindalegar rannsóknir til þess
að tedrykkja geti minnkað dag-
þreytu og aukið svefngæði. Jurtate
er þá góður kostur á daginn og á
kvöldin, sérstaklega ef fólk er að
minnka koffínneyslu fyrir hátta-
tímann. Jurtate má búa til úr öllum
ætum hlutum jurta og plantna, en
eftirfarandi sex jurtir hafa sýnt
fram á eiginleika sem bæta svefn
og hafa slakandi áhrif.
Garðabrúðan góða
Notkun garðabrúðu, eða Valeriana
officinalis, til streituminnkunar
eða gegn svefnvanda hefur verið
þekkt í aldaraðir. Jurtin er notuð
til að meðhöndla þætti sem hafa
áhrif á svefn, eins og streitu, kvíða,
höfuðverki og hraðan hjartslátt.
Rannsóknir sýna að extrakt úr
garðabrúðu getur bætt svefn,
án aukaverkana sem þekkjast af
notkun hefðbundinna svefnlyfja.
Garðabrúða er fáanleg á Íslandi
undir heitinu Sefitude, en það er
viðurkennt jurtalyf unnið úr rót
garðabrúðu og er ætlað til að draga
úr vægum kvíða og svefntrufl-
unum. Lyfið er fáanlegt án lyfseðils
í öllum helstu apótekum.
Rótin inniheldur róandi efni frá
náttúrunnar hendi. Í einni rann-
sókn staðfestu 90% þátttakenda
betri svefn eftir að hafa drukkið te
úr garðabrúðu. Í annarri rannsókn
sofnaði fólk fyrr eftir að hafa neytt
jurtarinnar og svefngæði jukust.
Sá böggull fylgir þó skammrifi að
rótinni fylgir fnykur og bragð sem
mörgum þykir ógirnilegt, en það
er fátt sem smá skvetta af hunangi
eða hlynsírópi getur ekki bætt úr.
Kamilla skammgóður vermir
Blóm kamillujurtarinnar (e.
chamomile) hafa í áraraðir verið
notuð til að bæta úr hinum ýmsu
kvillum, meðal annars til að auka
svefngæði. Kamillan inniheldur
fjölda virkra efnasambanda. Eitt
þeirra nefnist apigenin og hefur
það mild róandi áhrif þegar það
binst bensódíasepín-viðtökum í
heilanum.
Takmarkaðar rannsóknir hafa
verið gerðar á virkni jurtarinnar.
En sýnt hefur verið fram á að hún
geti aukið svefngæði. Í rannsókn
Sex jurtir sem leiða þig inn í draumalandið
Tedrykkja að
kvöldi til er
alltaf notaleg,
sérstaklega
þegar hausta
tekur. Margar
virkar jurtir fást
svo í hylkja-
formi fyrir þau
sem vilja forð-
ast vökvaneyslu
fyrir svefninn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
sem gerð var á konum sem höfðu
upplifað fósturmissi, kom fram að
þátttakendur sem drukku kamillu-
te fundu fyrir minni þunglyndis-
einkennum og áttu auðveldara
með að sofna.
Önnur rannsókn sem gerð var
á eldri þátttakendum sýndi fram
á meiri svefngæði hjá þeim sem
var gefin kamilla en hjá þeim sem
fengu hana ekki.
Fjólubláa leiðin
Hið fagurfjólubláa lofnarblóm
(lavender), þekkja flestir úr ilm-
olíumeðferðum en jurtin hefur
verið notuð síðan í rómverska
keisaradæminu. Ekki eru öll sem
vita að hægt er að drekka lavender
sem te og að jurtin geti haft róandi
áhrif fyrir svefninn.
Líkt og með fleiri jurtabætiefni
eru rannsóknir á virkni lavenders
takmarkaðar. Þó hefur verið sýnt
fram á að lavenderolía sem tekin er
munnlega getur haft áhrif á gæði
svefns og lengd hans. Einnig eru að
birtast sannanir fyrir því að laven-
derolía í munnlegu formi getur
minnkað svefngöngu og bætt skap.
Hins vegar virðist sem svo að
lavender-ilmolíumeðferð hafi ein-
göngu skammtímaáhrif á svefn-
gæði. Sama á líklega við um laven-
derte. Í einni rannsókn svöruðu
þátttakendur að þeir fyndu fyrir
minni þreytu á daginn með því að
drekka lavenderte fyrir nóttina.
En eftir fjórar vikur var munurinn
óverulegur á milli hópanna, sem
staðfestir að lavender sé skamm-
tímalausn gegn svefnvandamálum.
Sítruskenndur svefn
Melissa officinalis, öðru nafni
hjarta fró eða sítrónumelissa (e.
lemon balm), er úr myntufjöl-
skyldunni og er ilmurinn sætur og
sítruskenndur. Algengustu notk-
unarmöguleikar sítrónumelissu er
í tedrykkju og í olíu. Í gegnum tíð-
ina hefur hjartafróin verið notuð
sem veiru- og bakteríueyðandi efni
til að meðhöndla sýkingar. Jurtin
sýnir einnig fram á notkunar-
möguleika fyrir þá sem eiga erfitt
með svefn vegna eirðarleysis.
Bolli af sítrónumelissute á
kvöldin gæti hjálpað til við svefn-
leysi. Einnig gæti hjartafróin haft
kvíðastillandi áhrif og hjálpað
gegn þunglyndi. Í einni rannsókn
voru áhrif sítrónumelissu skoðuð í
samanburði við hefðbundin þung-
lyndislyf. Þátttakendur sem tóku
500 milligrömm af hjartafró sýndu
merki um bætt lífsgæði miðað við
þá sem tóku hana ekki inn.
Engin píslarganga lengur
Passíublóm eða píslarblóm (e. pas-
sionflower) heitir önnur jurt sem
gæti reynst góð fyrir svefnvana
einstaklinga. Líkt og kamilla inni-
heldur jurtin ákveðin flavonóíð
sem bindast þessum sömu ben-
sódíasepín-viðtökum í heilanum
og geta því minnkað kvíðaein-
kenni. Rannsóknir sýna fram á að
einn bolli af píslarblómatei geti
hjálpað fólki að sofa betur.
Að auki hafa vísindamenn sýnt
fram á að ef jurtin er notuð í bland
við aðrar svefnbætandi jurtir eins
og garðabrúðu, þá er píslarblómið
jafnöflugt og hefðbundin svefnlyf
sem skammtímalausn við svefn-
leysi. Í rannsókninni var notast
við hylki sem innihéldu meira og
samþjappaðra magn af jurtinni en
finnst í einum bolla af jurtatei.
Börkur bætir svefninn
Börkur magnolíutrésins hefur
verið notaður í þúsundir ára
í hefðbundnum kínverskum
hefðbundnum lækningum. Sýnt
hefur verið fram á að virka efnið í
berkinum, sem nefnist honokiol,
geti stytt tímann sem það tekur
einstakling að sofna með því að
binda GABA-viðtaka í heilanum
sem hjálpa til við að kalla fram
svefn.
Sumar rannsóknir sýna fram
á aukið svefnleysi á næturna
hjá einstaklingum sem taka inn
magnolíubörkinn, en sá tími sem
tekur að sofna aftur er styttri.
Magnolíubörkurinn fæst sem
te en einnig sem bætiefni, en þar
sem teið er gert úr berki má vera að
bragðið heilli ekki öll.
Hugað að háttatímanum
Þessar sex tejurtir hafa verið
notaðar í gegnum söguna til að
leiða þá sem eru svefnvana inn í
draumalandið. Nú eru að koma
fram rannsóknir sem sýna fram á
virkni þeirra til að bæta svefn. Þó
svo þörf sé á f leiri rannsóknum er
nokkuð ljóst að þessar sex jurtir
hafa slakandi áhrif og halda áfram
að vera vinsæll kostur fyrir þá sem
eiga erfitt með að sofna. Hafir þú
einhverjar áhyggjur af samverkun
við lyf eða ofnæmi er réttast að
ræða við lækni áður en virku
jurtatei er bætt við rútínuna. n
Kamillute hefur löngum verið þekkt fyrir róandi áhrif sín. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
12 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN