Fréttablaðið - 11.10.2022, Síða 37
Sofðu rótt er netverslun og
verslun í Síðumúla 23. Boðið
er upp á hágæðavörur fyrir
svefninn eins og þyngingar-
teppi og -sængur, koddaver
úr silki, heilsukodda og
heilsusængur auk barna-
fatnaðar úr lífrænum efnum.
Þyngingarteppin hjá Sofðu rótt
hafa slegið í gegn á Íslandi eins
og annars staðar í Evrópu og í
Bandaríkjunum. Það kemur ekki
á óvart því sængurnar og teppin
hafa raunveruleg áhrif á fólk til að
ná fram slökun og ró auk þess að
hjálpa fólki að sofa betur og stuðla
því að meiri vellíðan.
Arnar Þór Jónsson, eigandi Sofðu
rótt, segir að þyngingarteppin séu
framleidd af CURA of Sweden.
„Eins og nafnið gefur til kynna
er um að ræða sæng eða teppi
sem hafa verið þyngd sérstak-
lega, en þessar vörur hafa verið
notaðar um árabil til að hjálpa
einstaklingum með ADHD, ein-
hverfu, kvíða eða streitueinkenni.
Flestallir iðjuþjálfar, geðlæknar
og sálfræðingar sem vinna með
einhvers konar raskanir þekkja
áhrifin og mæla hiklaust með
CURA þyngingarteppunum,“ segir
Arnar. „Fyrir nokkrum árum upp-
götvaði almenningur í Bandaríkj-
unum að þetta hentaði fleirum en
bara þeim sem hafa greiningar eða
undirliggjandi kvilla, en langflestir
geta notið góðra áhrifa þyngingar-
teppa óháð því hvort þeir glíma
við raskanir eða ekki. Í kjölfarið
jókst salan umtalsvert og mikil
vitundarvakning hefur orðið í
Evrópu á undanförnum árum.“
Arnar bendir á að rannsóknir
og reynsla notenda sýni fram á
að þyngingarteppin hafi raun-
veruleg áhrif, en komið hefur í
ljós að þyngdin örvar skynnema
undir húðinni, líkt og það sem
gerist þegar þú færð gott og þétt
faðmlag, ferð í nudd eða við kynlíf.
„Skynnemarnir senda boð til
heilans að auka framleiðslu á gleði-
hormónunum/taugaboðefnunum
dópamíni, oxýtósíni og serótóníni,
en talið er að það síðastnefnda
hafi áhrif á framleiðslu á svefn-
hormóninu melatóníni. Aukin
framleiðsla á gleðihormónunum
hefur góð áhrif á áhyggjur, kvíða,
stress og þunglyndi. Þá er talið að
magn stresshormónsins kortisóls
minnki,“ segir hann. „Þess má geta
að CURA of Sweden þyngingar-
teppið er skrásett lækningavara í
Svíþjóð.“
Margir sofa með þyngingar-
teppin allar nætur, á meðan aðrir
nota þau reglulega til að hjálpa til
við slökun. „Þarna skiptir þyngdin
miklu máli en sængurnar koma í
mismunandi þyngdum, frá 3-13
kg og eru valdar eftir líkamsþyngd
notandans. Teppin koma í fimm
litum og eru 6 eða 7 kg,“ segir
Arnar. Hann segir einnig að lokum
að það sé ekki skrítið að þyng-
ingarteppin séu þau vinsælustu á
Norðurlöndunum og Norður-Evr-
ópu enda mæli 96% notenda með
þeim fyrir vini sína.
Sofðu rótt býður upp á skipti-
möguleika fyrir CURA Pearl Clas-
sic sængina sem virkar þannig að ef
kaupandi hefur valið ranga þyngd
þá hefur hann 14 daga til að skipta
í aðra þyngd sér að kostnaðarlausu.
Silkimjúk húð og hár
Vert er að geta þess að í Sofðu rótt
fást einnig vönduð silkikoddaver
frá Nox deLux. „Þau eru framleidd
af einum flottasta silkivörufram-
leiðanda í heimi, sem framleiðir
líka fyrir Blissy og Slip sem eru tvö
af vinsælustu silkivörumerkjunum
en vörurnar hafa meðal annars
notið mikilla vinsælda meðal
Hollywood-stjarnanna. Koddaver-
in eru úr eins silki, það er þykktin
er 22 momme og gæðin 6A (hæstu
gæði silkis), en helsti munurinn
liggur í verðinu, þar sem Nox
deLux er á mun hagstæðara verði
en hin merkin,“ útskýrir Arnar.
Undanfarin ár hefur mikið verið
fjallað um jákvæð áhrif silkis á
húð og hár. „Silki hefur afskap-
lega góð áhrif á húðina þar sem
það er ekki rakadrægt eins og til
að mynda bómull. Sama gildir
um hárið en vegna þess hve silkið
er dúnmjúkt verður hárið ekki
jafn flókið og því er það sérstak-
lega gott fyrir konur með sítt eða
krullað hár. Við erum líka með
silkisvefngrímur sem eru í stíl við
koddaverin og tilvaldar fyrir við-
kvæmt augnsvæðið.“
Barnavörur úr lífrænum efnum
Eigendur Sofðu rótt leggja megin-
áherslu á vörur sem eru vandaðar
og góðar fyrir umhverfið. Nýlega
var því tekinn í sölu frábær
barnafatnaður frá austurríska
fyrirtækinu Popolini sem er
gamalgróið fjölskyldufyrirtæki
sem hefur mikinn metnað til að
skapa sjálfbæran og hreinan heim
fyrir börnin. Fjölskyldan hefur
í forgangi að framleiða vörur úr
lífrænt prófuðum vefnaðarvörum.
Fatnaðurinn er ekki bara hlýr og
Sængur sem umvefja þig hlýju og ró
Arnar Þór Jóns-
son er eigandi
Sofðu rótt, en
þar má finna
afar vandaðan
barnafatnað
sem unninn er
úr lífrænum
efnum. Í Sofðu
rótt eru sömu-
leiðis þyng-
ingarteppin
og -sængurnar
sem hafa slegið
í gegn á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Öll fjölskyldan nýtur þess að slaka á undir þyngingarsænginni.
Sængurnar eru
sérvaldar eftir
líkamsþyngd
fólks og eru því
þægilegar að
sofa með.
Kerrupokarnir
eru einstaklega
hlýir og góðir.
Silkikoddaver
fer einstaklega
vel með húðina
og hárið. Ekki
er verra að hafa
silkigrímu til
að hvíla augun.
Sofðu rótt
býður nokkra
liti af grímum og
koddaverum.
Þyngingarteppin eru einstaklega
notaleg fyrir framan sjónvarpið.
góður fyrir börnin heldur einn-
ig einstaklega fallegur þar sem
hugsað er út í hvert smáatriði.
Hægt er að skoða vörurnar inni á
sofdurott.is en benda má á ullar-
gallana og peysurnar úr merínóull
sem hafa reynst einstaklega vel. Þá
er sömuleiðis að finna vandaðar og
hlýjar silki-/ullarsamfellur og ein-
staklega vandaða kerrupoka.
Sængur frá Kauffmann
„Í sængurbransanum er Kauff-
mann einn virtasti og gamalgró-
nasti framleiðandi í heimi, en
fyrirtækið var stofnað árið 1823
og verður því 200 ára á næsta ári,“
upplýsir Arnar. „Þeir sem hafa
verið í þessum bransa vita að
Kauffmann stendur fyrir gæði. Við
leggjum mikla áherslu á að bjóða
sanngjarnt verð og eru sængurnar
á sama verði og í Þýskalandi. Þetta
eru gæðasængur sem fást í mis-
munandi verðflokkum.“
Ein af sængunum frá Kauffmann
er Climabalance en það er svo-
kölluð hitajöfnunarsæng. „Sængin
hentar öllum og þá sérstaklega
þeim sem svitna mikið á næt-
urnar, því hún andar allt að þrisvar
sinnum betur en hefðbundin
sæng. Svefninn verður jafnari og
fólk hvílist betur og það hefur
verið staðfest með rannsókn við
svefnrannsóknadeild Regensburg-
háskólans í Þýskalandi,“ bendir
Arnar á. n
Skoðið endilega vöruúrvalið á
sofdurott.is eða kíkið í verslunina
í Síðumúla 23 (bakhús) en þar er
hægt að leggjast upp í rúm og
prófa þyngingarsæng eða -teppi
og finna áhrifin.
ALLT kynningarblað 15ÞRIÐJUDAGUR 11. október 2022