Fréttablaðið - 11.10.2022, Síða 39

Fréttablaðið - 11.10.2022, Síða 39
Ég var í sannleika sagt mjög hissa á að finna svona mikinn mun þar sem ég taldi mig yfirleitt eiga auðvelt með svefn. Sólveig Bergsdóttir Neubria er háþróuð bæti- efnalína sem inniheldur öflugar jurtir ásamt mikil- vægum vítamínum og stein- efnum til að takast á við daglegar athafnir. Svefn er ein af grunnreglunum fjórum en nægur svefn er lykillinn að góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Svefngæði eru forsenda þess að við náum að sinna dag- legum verkefnum og að okkur líði vel í daglegu amstri. Góður svefn gefur líkamanum jafnframt tæki- færi til að hvílast og endurnærast sem styrkir ónæmiskerfi okkar og stuðlar að góðri heilsu að viðbættu hollu og fjölbreyttu mataræði ásamt reglulegri hreyfingu. Svefnleysi hefur áhrif á heilsuna Langvarandi svefnleysi getur haft margvíslegar afleiðingar á heilsu okkar og líðan, hormóna- framleiðsla fer meðal annars úr jafnvægi sem og hormón sem stýra hungri og seddu og förum við því að sækja meira í sykur og einföld kolvetni. Að auki fer ónæmiskerfið að bælast með minni svefngæðum en í kjölfarið erum við líklegri til að sækja í f lensur og ýmsa kvilla. Ásamt því getur svefnleysi einnig haft víðtæk áhrif á andlega líðan sem getur komið niður á líðan í daglegu amstri og haft áhrif á verk- efni okkar. Gríðarlega mikilvægt er því að huga að góðum nætursvefni. Hvað getum við gert til að stuðla að góðum svefngæðum? Ýmislegt er hægt að gera til að vinna bug á svefnleysi og öðlast betri svefn. Eitt það allra mikil- vægasta er að hafa góða reglu á svefntímanum og rútínu í kringum svefn. Gott er að taka því rólega í tvo tíma fyrir svefn, lágmarka alla notkun rafmagnstækja í svefnher- berginu sem á að vera vel loftað, myrkvað og hljóðlátt. Að auki er mikilvægt að takmarka alla sykur- neyslu, ekki neyta koffíns eftir klukkan 14 á daginn og stunda reglulega hreyfingu. Náttúruleg bætiefni reynast að auki mörgum gríðarlega vel og er ekki úr vegi að skoða einstök bætiefni frá Neubria sem geta haft jákvæð áhrif á svefn og daglegt amstur. Neubria sleep kom á óvart Sólveig Bergsdóttir, hópfimleika- og flugkona, hefur verið að taka inn Neubria Sleep með frábærum árangri og deilir hér með okkur reynslu sinni. „Ég æfi langt fram á kvöld og vakna heldur snemma á morgnana í vinnu og hef þar af leiðandi stuttan glugga til að hvíla mig sem er óheppilegt fyrir endurheimt líkamans og oft vakna ég ansi þreytt. Ég ákvað að prófa Neubria Sleep og fann ótrúlegan mun strax, ég svaf alla nóttina og vaknaði útsofin þrátt fyrir stuttan svefn. Ég var í sannleika sagt mjög hissa á að finna svona mikinn mun þar sem ég taldi mig yfirleitt eiga auðvelt með svefn,“ segir Sólveig um tilkomu Neubria Sleep inn í hennar rútínu en Neubria Sleep inniheldur útvalin náttúrubæti- efni sem vinna saman að því að hjálpa líkamanum að ná slökun og sem mestum svefngæðum. Ásamt öflugum jurtum inniheldur blandan magnesíum sem lengi hefur verið þekkt fyrir róandi og slakandi eiginleika sína á líkama og sál. Neubria línan samanstendur af fimm öflugum bætiefnablöndum Neubria Sleep hefur reynst mörg- um vel, en einnig eru fáanlegar 4 aðrar tegundir með mismunandi áherslum eins og nöfnin gefa til kynna, Neubria Mood, Focus, Energy og Memory. Blöndurnar eru sérstaklega hannaðar af sér- fræðingum í bætiefnum og jurtum með það í huga að efla mótstöðu okkar gegn streitu og álagi. Öll bætiefnin hafa það sameiginlegt að vera náttúruleg og vegan. n Sölustaðir: Fjarðarkaup, Hagkaup, Nettó, Lyfja, Lyfjaver og Heimkaup. Vaknar útsofin alla morgna með Neubria Sleep Neubria Sleep hefur reynst mörgum vel, en einnig eru fáan- legar 4 aðrar tegundir með mismunandi áherslum. Sólveig Bergsdóttir, fimleikakona og flugmaður. MYND/AÐSEND ALLT kynningarblað 17ÞRIÐJUDAGUR 11. október 2022

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.