Fréttablaðið - 11.10.2022, Page 42

Fréttablaðið - 11.10.2022, Page 42
Jensen hefur framleitt gæða rúm frá árinu 1947 með áherslu á fágaða skandinavíska hönnun og framúrskarandi þægindi. Jensen rúm eru Svansmerkt og eru sérsniðin eftir þörfum með ótal möguleikum varðandi gormakerfi, yfirdýnur, áklæði og allt útlit rúmsins. 75 ára afmælisútgáfa Jensen er Continental rúm með glæsilegum afmælisgafli, Orginal Jensen Zone system dýnu með latex bólstrun / hægt að velja um stífleika fyrir hvora hlið og Sleep III yfirdýnu (latex). Stærðir: 180x200 eða 180x210. Hægt að velja um tvær litasamsetningar; grátt eða beige. Einstakt afmælisverð sem gildir til 1. ágúst 2023. Takmarkað upplag. 75 ÁR ER TILEFNI TIL AÐ FAGNA Jensen afmælisrúm Verð: 649.000.- m/gafli · 180x200cm Það skiptir miklu máli að sofa á vandaðri dýnu. elín@frettabladid.is Til að svefninn verði sem bestur þarf rúmið að henta vel fyrir líkamann. Góður nætursvefn hefur jákvæð áhrif á líðan og heilsu. Það gæti verið heilsufars- legur ávinningur að fjárfesta í vönduðu og góðu rúmi. Þeir sem sofa vel eru betur í stakk búnir til að takast á við nýjan dag hvort sem það er í vinnu eða námi. Léleg dýna getur framkallað bakverki eftir jafnvel andvökunótt. Rúmið er því eitt mikilvægasta húsgagnið á heimilinu. Fólk er oft frekar að hugsa um þægindin eða útlitið þegar það ætlar að fjárfesta í rúmi. Mjúk dýna hentar alls ekki öllum. Þeir sem eru veikir í baki ættu til dæmis að sofa á dýnu sem fellur vel að líkamanum. Oftast eru starfsmenn sem selja rúm góðir í þessum fræðum og geta aðstoðað viðskiptavini. Starfs- maðurinn þarf að finna út hvaða þarfir hver og einn hefur því sama rúmið hentar ekki öllum. Það getur verið vandasamt að finna réttu gerðina af dýnu. Það þarf ekki að vera flókið að finna réttu dýnuna en það þarf að gefa sér tíma í það verkefni. Líkamsþyngd getur skipt máli og sömuleiðis stuðningur dýnunnar við líkam- ann. Það eru margar mismunandi gerðir af rúmum og dýnum á markaðnum svo ágætt er að skoða úrvalið fyrst á netinu. n Vönduð dýna skiptir máli Unglingar þurfa 8 til 10 tíma svefn. thordisg@frettabladid.is Svefnþörf unglinga er einstakl- ingsbundin en þeir þurfa 8 til 10 klukkustunda svefn yfir nóttina. Algengt er að svefnþörf unglinga aukist um klukkustund á nóttu frá því sem var þegar þeir voru yngri. Talið er að það gerist vegna aukins álags sem fylgir kyn- þroskatímabilinu. Reyndin er þó sú að stór hluti unglinga styttir svefntíma sinn í stað þess að lengja hann. Við lifum á erilsöm- um tímum og margt sem getur haft neikvæð áhrif á svefninn. Unglingar sem hafa góðar svefnvenjur og sofa nóg eru hamingjusamari, taka frekar ábyrgð á heilsunni, borða hollari mat, eru hæfari að takast á við streitu og ástunda frekar reglulega hreyfingu en unglingar sem sofa ekki nóg. Góður svefn n Hefur jákvæð áhrif á náms- getu, einbeitingu og minni n Hjálpar til við upprifjun og úrvinnslu upplýsinga sem við höfum fengið yfir daginn og þær festast í minninu n Eflir ónæmiskerfið og eykur mótstöðu gegn veikindum n Er nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska unglingsins Á unglingsárunum eiga sér stað miklar hormónabreytingar. Mikill hluti þeirra hormóna framleiðist á nóttunni og er sú framleiðsla háð góðum nætursvefni. Að sofa á daginn kemur því ekki í staðinn fyrir tapaðan nætursvefn. n HEIMILD: HEILSUVERA.IS Svefn unglinga thordisg@frettabladid.is Mýtan um að flóuð mjólk hafi róandi áhrif fyrir svefn og auki þar með syfju er lífseig og ekki að öllu leyti röng. Mjólk og mjólkurvörur innihalda aminósýruna tryptop- han sem hvetur til syfju. Það að fá sér volga mjólk fyrir háttinn tryggir bæði að uppfylla þörf líkamans fyrir ráðlagðan dagskammt af mjólk og getur líka verið góð leið til að skapa sér jákvæðar svefnvenjur og slakandi áhrif. Hins vegar er innihald tryp- tophans í mjólk það lítið að það hefur líklega óveruleg áhrif. n HEIMILD: DOKTOR.IS Virkni flóaðrar mjólkur á syfju Mörgum þykir róandi og gott að drekka flóaða mjólk fyrir svefninn. 20 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.