Fréttablaðið - 11.10.2022, Side 44

Fréttablaðið - 11.10.2022, Side 44
Fyrir íslenska knatt- spyrnu værum við að skrifa nýjan kafla í sögubókina. Dagný Brynjarsdóttir Ísland og Portúgal hafa níu sinnum mæst. Íslenska liðið hefur unnið sex sinnum, Portúgal tvisvar og einu sinni gerðu liðin jafntefli. 14 Íþróttir 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR helgifannar@frettabladid.is FÓTBOLTI Icelandair býður upp á stutta ferð til Portúgals í dag, í þeim tilgangi að fá fólk út til að styðja stelpurnar okkar í leiknum mikilvæga í kvöld. Í stuttu samtali við Fréttablaðið í gær sagði Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, að góður gangur væri í sölunni. Farið verður af stað í ferðina nú snemma í morgunsárið. Flogið verður beint til Porto, þar sem leik- urinn fer fram. Samkvæmt áætlun á ferðin að taka rétt tæpan sólahring. Ferðalangar verða því mættir aftur hingað til lands við fyrsta hanagal á morgun. „Salan hefur farið vel af stað. Við búumst við því að fara með fulla vél Full vél af íslensku stuðningsfólki flýgur til Porto Stuðningsmenn íslenska kvennalandsliðsins létu til sín taka á pöllunum á EM á Englandi í sumar. Ljóst er að stuðningur þeirra getur fleytt liðinu langt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Dagný Brynjarsdóttir segir stemninguna í íslenska hópnum góða fyrir risaleikinn gegn Portúgal ytra í kvöld. Með sigri í venjulegum leik- tíma eða í framlengingu er sæti á Heimsmeistaramótinu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi að ári gulltryggt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK af stuðningsfólki á leikinn,“ segir Guðni. Hann sagði jafnframt frá því í samtalinu við Fréttablaðið í gær að ferðin hefði verið á góðri leið með að seljast upp. Það má því búast við því að full vél af íslensku stuðningsfólki fari af stað með vél Icelandair frá Kefla- víkurflugvelli nú klukkan 7.15. Stórleikurinn á milli Íslands og Portúgals um sæti á HM fer fram á Estadio Capital do Móvel-leikvang- inum. Félagsliðið Pacos Ferreira í efstu deild Portúgals karlamegin leikur heimaleiki sína á vellinum. Tekur hann um níu þúsund manns í sæti. Það mun án efa gefa íslenska liðinu mikið að heyra hávaðann í íslenska stuðningsfólkinu á pöll- unum í kvöld. n Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur í kvöld einn mikilvægasta leik liðsins frá upphafi, í umspilsleik gegn Portúgal, um laust sæti á HM 2023. Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður liðsins, segir að draumur hjá sér muni rætast, takist íslenska landsliðinu ætlunarverk sitt. FÓTBOLTI Það verður mikið undir í leik Portúgals og Íslands sem spil- aður verður í Porto í Portúgal síðar í dag. Flautað verður til leiks klukkan 17.00 að íslenskum tíma. „Andinn er bara góður. Við höfum átt saman góðar æfingar á Algarve á Spáni í aðdraganda leiksins og erum núna mættar til Portúgal,“ sagði Dagný í samtali við Fréttablaðið, en íslenska landsliðið æfði á keppnis- vellinum síðdegis í gær. Leik mannahópur inn er vel stemmdur að sögn Dagnýjar og það ríkir mikil tilhlökkun fyrir leikn- um. Umrædd æfingaferð liðsins til Algarve í aðdraganda leiksins hafi gefið liðinu mikið. „Það hefur gert okkur gott að fá aðeins f leiri æfingar saman, við gátum farið betur yfir hlutina sem lið. Að mínu mati var þetta betri kosturinn fyrir okkur, að taka æfingaferð saman fremur en að spila einhvern æfingaleik á meðan við biðum eftir því að sjá hvort við fengjum Portúgal eða Belgíu í þessu umspili.“ Sterkur andstæðingur Þá hafi gefist góður tími til að fara yfir andstæðing morgundagsins, Portúgal. „Við höfum séð fullt af þeim. Þær eru með ótrúlega sterkt lið og eru góðar á boltanum. Þá eru framherj- arnir þeirra eldsnöggar. Þá er þetta lið sem hefur verið að bæta sig gríð- arlega mikið undanfarin ár, þær eru á mikilli siglingu en ég tel möguleika okkar góða. Við verðum hins vegar að eiga toppleik ef við ætlum okkur að ná þessu HM sæti. Við þurfum að vera vakandi fyrir þeirra styrkleikum en að sama skapi vitum við hvar okkar helstu tæki- Draumur að rætast yrði HM-sætið tryggt í kvöld Hvernig HM-sætið er tryggt Sigri Ísland leikinn gegn Portúgal í venjulegum leiktíma eða eftir framlengingu, fer liðið beint á HM. Ef það vinnur sigur eftir vítaspyrnu- keppni er mögulegt að liðið raðist í þriðja sæti af þeim liðum sem sigra umspilið. Tvö lið af þeim þremur sem sigra einvígi sitt í annarri umferð fara beint á mótið. Liðið sem raðast í þriðja sæti fer í tíu liða mót á Nýja- Sjálandi í febrúar, þar sem leikið er þvert á heimsálfur um þrjú síðustu sætin á HM. Eini möguleikinn fyrir annað lið til að hoppa upp fyrir Ísland og senda stelpurnar okkar í tíu liða mótið á Nýja-Sjálandi, væri því ef íslenska liðið vinnur einvígi sitt í vítaspyrnukeppni. Aðalatriðið er þetta: Sigur í venjulegum leiktíma eða framlengingu nægir til að tryggja Íslandi sæti á HM 2023 sem fer fram í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. færi munu liggja, við verðum að nýta okkur glufurnar í þeirra leik. Þær spila með tígulmiðju þannig að mesta plássið fyrir okkur til að sækja á verður á köntunum, þar ættum við að vera í yfirtölu.“ Vilja ekki upplifa þetta aftur Portúgal sé með það gott lið að ef íslenska liðið mætir ekki til leiks með fulla einbeitingu muni róðurinn verða þungur. „Að mörgu leyti fann maður fyrir svipaðri tilfinningu eftir leikinn gegn Hollandi og maður fann eftir leikinn gegn Frakklandi á EM í sumar. Þar voru vonbrigði að komast ekki upp úr riðlinum og á móti Hol- lendingum vorum við aðeins níutíu sekúndum frá því að tryggja okkur sæti á HM. Maður var kýldur niður þegar tilfinningin var sú að maður hélt að sætið væri nánast í höfn. Nú er mikilvægt fyrir okkur í leiknum á móti Portúgal að nýta þessa slæmu reynslu sem við fengum úr þessum leikjum og reyna að snúa henni okkur til góðs, því við vitum allar hvernig tilfinningin var bæði eftir EM sem og Hollandsleikinn. Við vilj- um ekki finna þá tilfinningu aftur. Fyrir íslenska knattspyrnu værum við að skrifa nýjan kafla í sögubók- ina. Kvennalandslið Íslands í knatt- spyrnu hefur aldrei komist á Heims- meistaramótið, þetta yrði risastórt skref. Persónulega séð, þá er þetta eitt- hvað sem mig hefur dreymt um síðan að ég var lítil stelpa. Nú hefur maður fengið reynsluna af stór- mótum í gegnum EM en á HM eftir. Vonandi tökum við það núna.“ n Aron Guðmundsson aron @frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.