Skessuhorn - 10.08.2022, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 20226
Bílvelta við
Hreðavatnsskála
NORÐURÁRD: Hringt var
í Neyðarlínuna seinni part
sunnudags og tilkynnt um bíl-
veltu við Hreðavatnsskála í
Norðurárdal. Ökumaður missti
stjórn á bifreiðinni þegar bif-
reið fyrir framan hann hemlaði
skyndilega og valt bifreið hans
í kjölfarið. Björgunarsveitar-
menn voru fyrstir á vettvang og
hlúðu að ökumanninum þang-
að til lögregla og sjúkrabif-
reið komu á staðinn. Hann
var síðan færður til skoðunar á
heilsugæslustöð HVE í Borgar-
nesi. -vaks
Á hjóli
í göngunum
HVALFJ.SVEIT: Erlendur
ferðamaður á hjóli var tekinn í
Hvalfjarðargöngunum á föstu-
daginn þar sem hann var kom-
inn um fimm kílómetra niður í
göngin. Þar var hann að reiða
hjól sitt meðfram veginum í
norðurátt og voru afskipti höfð
af honum. Honum var bent á af
lögreglu að athæfið væri strang-
lega bannað og stórhættulegt.
-vaks
Aflatölur fyrir
Vesturland
30. júlí – 5. ágúst
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu
Lítill afli var færður til hafna
á Vesturlandi þessa vikuna þar
sem strandveiðar voru stöðv-
aðar seinnihlutann í júlí, veiði-
tímabilið að líða undir lok og
nýtt fiskveiðiár hefst ekki fyrr
en um næstu mánaðamót. Lítið
hefur þess vegna verið um sjó-
sókn undanfarna daga.
Akranes: 1 bátur.
Heildarlöndun: 884 kg.
Mestur afli: Mardís AK: 884 kg
í einni löndun.
Arnarstapi: Engin löndun á
tímabilinu
Grundarfjörður: 4 bátar.
Heildarlöndun: 250.487 kg.
Mestur afli: Þórir SF: 97.604
kg í einum róðri.
Ólafsvík: 1 bátur.
Heildarlöndun: 1.275 kg.
Mestur afli: Kría SH: 1.275 kg
í einum róðri.
Rif: 1 bátar.
Heildarlöndun: 34.967 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 34.967
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 38.955 kg.
Mestur afli: Kári SH: 14.650
kg í fimm löndunum.
1. Þórir SF – GRU: 97.604 kg.
3. ágúst.
2. Harðbakur EA – GRU:
84.977 kg. 3. ágúst.
3. Skinney SF – GRU: 63.316
kg. 1. ágúst.
4. Bárður SH – RIF: 27.822
kg. 3. ágúst.
5. Bárður SH– RIF: 7.145 kg.
2. ágúst.
-sþ
Fjögur prósent
án vinnu
LANDIÐ: Hlutfall atvinnu-
lausra var 4,0% í júní síðast-
liðnum samkvæmt árs-
tíðaleiðréttum tölum vinnu-
markaðsrannsóknar Hag-
stofunnar. Árstíðaleiðrétt
atvinnuþátttaka var 79,8%
og árstíðaleiðrétt hlutfall
starfandi 76,6%. Árstíðaleið-
rétt atvinnuleysi jókst um 0,5
prósentustig á milli mánaða
á meðan hlutfall starfandi
dróst saman um 1,4 pró-
sentustig. Árstíðaleiðrétt
leitni atvinnuleysis hefur
lækkað um 0,7 prósentustig
síðustu sex mánuði á meðan
leitni hlutfalls starfandi hef-
ur aukist um 0,4 prósentu-
stig. -mm
Fór út af og valt
BORGARFJ: Síðasta föstu-
dagsmorgun var hringt í
Neyðarlínuna og tilkynnt
um umferðaróhapp við
Árdalsá á Borgarfjarðar-
braut. Ökumaður hafði þar
misst stjórn á bifreið sinni
með þeim afleiðingum að
hún fór utan vegar og valt
tvær veltur. Lögregla og
sjúkralið komu á staðinn og
var þá ökumaðurinn kominn
út úr bílnum en með áverka á
baki, höfði og höndum. Var
hann fluttur á HVE á Akra-
nesi til nánari skoðunar og
aðhlynningar. -vaks
Skot í myrkri
BORGARFJ: Tilkynnt var
um skothvelli í Skorradal
síðasta föstudagskvöld og
fór lögregla ásamt sérsveit
á vettvang til að skoða mál-
ið en ekkert kom út úr þeirri
rannsókn. -vaks
Ákveðið hefur verið að ráða Krist-
ján Guðmundsson tímabundið í
starf verkefnisstjóra á Áfangastaða-
og markaðssviði Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi (SSV) og
Markaðs stofu Vesturlands. Krist-
ján hefur störf 15. ágúst og kemur
í stað Thelmu Harðardóttur sem
ákveðið hefur að láta af störfum
hjá samtökunum. Kristján er öllum
hnútum kunnugur í ferðaþjónustu
á Vesturlandi, en hann starfaði hjá
Markaðsstofu Vesturlands frá árinu
2013 fram á árið 2018 og var jafn-
framt forstöðumaður hennar frá
hausti 2014 og fram að starfslok-
um. Þá hefur Kristján starfað sem
sölu- og markaðsstjóri hjá Hót-
el Húsafelli auk þess að sinna fleiri
störfum tengdum ferðaþjónustu á
svæðinu. Ráðning hans gildir til 1.
mars á næsta ári.
Þess má geta að Margrét Björk
Björnsdóttir fagstjóri hjá Markaðs-
stofunni verður í leyfi frá 1. október
og fram að áramótum og hyggst
leggja land undir fót. Stjórnunar-
reynsla Kristjáns á þessu sviði mun
því koma sér vel. Starf verkefnis-
stjóra verður síðan auglýst á nýju
ári.
gj
„Tveggja daga hjónaholl í
Straumfjarðará endaði með sex
fiskum á land og það veiddust tve-
ir Maríulaxar,“ sagði Birna Dögg
Jónsdóttir, en Straumfjarðará hef-
ur nú gefið um 200 laxa. „Veðr-
ið var ekki að vinna með okk-
ur en við létum það ekki á okkur
fá. Það var erfitt að kasta flugu í
roki og kulda, en þetta er eitthvað
sem við höfum öll prófað áður og
flestir veiðimenn kannast vel við.
En það var mjög gaman samt í
Straumfjarðará og öll aðstaða til
fyrirmyndar,“ sagði Birna Dögg
ennfremur.
Laxinn er aðeins byrjaður að
veiðast á Vatnasvæði Lýsu á Snæ-
fellsnesi og rígvænir sjóbirtingar
verið að veiðast þar. ,,Já, ég
fékk flottan sjóbirting og svæð-
ið skemmtilegt,“ sagði Ágúst
Tómas son sem var á Vatnasvæði
Lýsu. gb
Kristján Guðmundsson ásamt konu sinni Eydísi Smáradóttur á Hvanneyrarhátíð
um liðna helgi. Ljósm. mm.
Kristján Guðmundsson kemur
til starfa hjá SSV
Straumfjarðará að komast í 200 laxa