Skessuhorn - 10.08.2022, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2022 7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
www.penninn.is
S: 540-2115
akranes@penninn.is
Dalbraut 1
Skólinn byrjar hjá okkur
Gerum skólann skemmtilegri!
Skipti-
bækur
Skiptibókamarkaðurinn er í fullum gangi
Frábært úrval af skólatöskum og pennaveskjum
Upphaf skólastarfs á haustönn 2022
Nýnemar mæta miðvikudaginn 17. ágúst kl. 8:30.
Nemendur eru beðnir um að vera búnir að ná sér í íslykil
á www.island.is. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru
beðnir um að koma með þær.
Nýnemar fá sérstaka kynningu á helstu þáttum
skólastarfsins á þessum nýnemadegi.
Skólasetning og fyrsti kennsludagur á haustönn 2022
er fimmtudaginn 18. ágúst kl. 8.30.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans
www.fsn.is. Fjölbrautaskóli Snæfellinga er
á Facebook og Instagram.
Með skólakveðjum
Starfsfólk FSN
Strandveiðar voru stöðvaðar 21.
júlí síðastliðinn þegar kvótinn
kláraðist. Þá var meira en mánuður
eftir af veiðitímabilinu. Matvæla-
ráðherra hefur boðað frumvarp um
breytingu á kvótakerfinu þar sem
kvótanum yrði deilt milli lands-
svæða en strandveiðin á Norður-
landi var til dæmis nýlega komin í
gang þegar kvótinn var uppurinn.
Eyjólfur Ármannsson, þingmað-
ur Flokks fólksins í Norðvestur-
kjördæmi, fór í liðnum mánuði
fram á að þingmenn Norðvestur-
kjördæmis funduðu með matvæla-
ráðherra vegna stöðu strandveiða
og fór fundurinn fram 3. ágúst síð-
astliðinn. „Stöðvun strandveiða svo
snemma á veiðitímabilinu veldur
miklum vonbrigðum. Hún hefur
mikil áhrif á sjávarbyggðir í kjör-
dæminu sem verða fyrir búsifj-
um vegna stöðvunarinnar, sem og
strandveiðimenn og fjölskyldur
þeirra. Stöðvun strandveiða hefur
mikil áhrif á byggð í Norðvestur-
kjördæmi. Margar þessara byggða
eru brothættar byggðir sem treysta
á að strandveiðar verði leyfðar út
sumarið. Að mínu mati eiga íbú-
ar kjördæmisins, sjávarbyggðanna
og strandveiðimenn, það inni hjá
okkur þingmönnum kjördæmisins
að við fundum með ráðherra um
málið og reynum í sameiningu að
finna lausn á því,“ segir Eyjólfur
um núverandi stöðu málsins.
Að sögn Stefáns Vagns Stefáns-
sonar, formanns atvinnuveganefnd-
ar og 1. þingmanns NV-kjördæmis,
komu á fundi þingmannanna fram
áhyggjur þeirra um að búið væri að
loka á strandveiðar þetta tímabil-
ið og að sá viðbótarkvóti, þúsund
tonn sem settur var í pottinn, hefði
ekki verið nægjanlegur. Fram komu
óskir um frekari inngrip ráðherra
til að bæta við strandveiðipottinn.
Á fundinum var greint frá sjónar-
miðum ráðherra um að ljóst væri
að skoða þurfi fyrirkomulagið fyr-
ir næsta ár en ekki verður gripið til
frekari aðgerða að hálfu ráðuneyt-
isins nú fyrir þetta veiðitímabil.
Í gangi eru starfshópar á vegum
ráðuneytisins sem eiga að fara yfir
og meta núverandi kerfi, þar með
talið strandveiðikerfið með það að
markmiði að gera kerfin skilvirkari
og ná breiðari sátt um sjávarútveg
en er í dag. sþ
Strandveiðiafla landað á Arnarstapa á fyrsta degi veiðanna í sumar. Ljósm. glh.
Ekki verði gripið inn í fyrirkomu-
lag strandveiða fyrir þetta tímabil