Skessuhorn - 10.08.2022, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 202218
Síðastliðinn laugardag héldu
Hvanneyringar þorpshátíð sína.
Oftast hefur hátíðin farið fram í
júlímánuði, en nú var ákveðið að
halda hana viku af ágúst þegar flest-
ir hafa lokið sumarfríum sínum. Það
fyrirkomulag voru menn almennt
ánægðir með. Dagskrá hátíðarinn-
ar var á margan hátt hefðbundin, en
lögð var sérstök áhersla á þjóðlegan
leik og skemmtun. Veður var milt
allan tímann, að mestu sólarlaust en
um fimmtán stiga hiti.
Fergusonfélagið og Fornbílafé-
lag Borgarfjarðar mættu á svæð-
ið með dráttarvélar og bíla. Land-
búnaðarsafn Íslands, Ullarselið og
Jarðræktarmiðstöð LbhÍ voru öll-
um opin.
Meðal annars var boðið upp á
glímusýningu á vegum Glímusam-
bands Íslands. Farmal A og Centaur
slógu blett með greiðusláttuvélum
á túninu skammt frá kirkjugarðin-
um og þar hófst í kjölfarið keppni í
dráttarvélaakstri og þrautabraut. Þá
kepptu slökkviliðsmenn í staura- og
stígvélakasti, að hætti Guðmundar
Hallgrímssonar. Samhliða þessu
var markaður í íþróttahúsinu, dag-
skrá í Ullarseli og kaffiveitingar
voru seldar á Hvanneyri Pub og í
Skemmunni. Skemmst er frá því að
segja að fjölmenni mætti á svæð-
ið og seldist upp allt matarkyns á
markaði og hlaðborð Skemmunn-
ar var orðið fremur tómlegt und-
ir lokin. Viðtökur voru því góðar
og talið að ríflega tvö þúsund gest-
ir hafi mætt á Hvanneyri þennan
dag. Í lok dagskrár söng Bjartmar
Guðlaugsson í Skemmunni og um
kvöldið voru tónleikar með Tóta
og Evu í Halldórsfjósi.
„Fjöldinn allur af fólki mætti á
svæðið og gleðin var allsráðandi.
Frábær dagur í alla staði,“ segir í
frétt á íbúasíðu Hvanneyringa. mm
Hvanneyrarhátíð
þjóðleg og vel sótt
Tryggvi Konráðsson og Deutz gera sig klára í braut og bíða þess að Guðmundur Sigurðsson gefi merki.
Skagfirðingar voru sem fyrr sigursælir í dráttarvélaakstri. Hér hampar Bessi
Vésteinsson bóndi í Hofsstaðaseli verðlaunagrip sínum. Við hlið hans stendur
stjórnandinn Guðmundur Hallgrímsson.
Veðurblíðunnar notið við Skemmuna.
Heiðar Örn Jónsson varaslökkviliðsstjóri kom, sá og sigraði bæði í stígvéla- og
staurakasti.
Pétur Jónsson, vanur maður á Farmal A, sló heimatúnið. Mælifells-Centaur frá árinu 1934 er vél sem kom til varð-
veislu á Landbúnaðarsafnið í fyrra. Hér er á ferð framúr-
stefnuleg vél þess tíma, en hægt er að tengja ýmis jaðartæki
við hana, hér greiðusláttuvél.
Ford dráttarvél af fínni gerðinni var meðal véla sem til sýnis
voru.
Glímutök voru sýnd á þaki jarðhússins neðan við gamla
skóla.
Ragnhildur Helga og Bjarni á spjalli á hlaði Landbúnað-
arsafns.
Þeir Grétar Gústavsson og Karl Friðriksson luku með form-
legum hætti ferð sinni um Vestfirði á dráttarvélum. Með
akstrinum létu þeir gott af sér leiða og söfnuðu styrkjum
fyrir Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti. Bjartmar Guðlaugsson söng fyrir gesti í Skemmunni.