Skessuhorn - 10.08.2022, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 202220
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Pennagrein
Ágæti lesandi!
Ég reikna með að einhverjir hafi séð
að búið er fyrir nokkru að stækka
og laga mikið í kirkjugarðinum að
Borg á Mýrum. Þarna er í höfn
löngu tímabær stækkun á garðin-
um sem er einn elsti kirkjugarð-
ur á Íslandi og þar með einn elsti
greftrunarstaður landsins þó ekki
séu allir slíkir í kristni. Að líkind-
um er stofnað til kirkjugarðs á Borg
um sama leyti og kirkja er þar reist
upp úr árinu 1000 þegar Þorsteinn
Egilsson lét kirkju gera að Borg.
Þetta fyrirkomulag að jarðsetja
fólk eftir dauðann er gjörð sem
skilur okkur mannfólkið frá öðrum
skepnum jarðarinnar umfram flest
annað. Að koma látnum frá hinum
lifandi getur jafnvel verið afar knýj-
andi í suðrænum löndum og þar
sem trúarskoðanir hafa gert það
að skyldu sem efa lítið er komin af
nauðsyn.
Við Íslendingar þurfum ekki
alltaf að flýta okkur mikið en hög-
um þessu frekar eftir hentugleik-
um og reynum að aðlaga athöfnina
þeim lifandi fremur en þeim látnu.
Þetta er allt gott og blessað en nú
kem ég að því sem mig langar mest
að ræða um og það er þetta með að
kalla greftrunarstaðina kirkjugarða.
Að fornu var engin þörf á að hafa
annað orð um þessa staði en kirkju-
garða enda voru allir kristnir eða
a.m.k. í orði kveðnu enda ekki frelsi
um skoðanir og jafnvel gat verið
hættulegt að viðra aðrar skoðan-
ir en kirkjan studdi. Í dag er þetta
breytt og nú eru hér saman komn-
ir æði margir trúarhópar og ýmsir
siðir enda ríkir trúfrelsi sem bund-
ið er í stjórnarskrá hversu sáttir eða
ósáttir menn eru við það. Vegna
þess einmitt að trúfrelsið er í dag
talið sjálfsagt þá ættum við að telja
jafn sjálfsagt að allir trúarhópar
geti jarðsett sína látnu með sömu
virðingu og þeir sem til Þjóðkirkj-
unnar teljast og raunar held ég að
ekki sé fyrirstaða við slíkt frá Þjóð-
kirkjunni. Þetta nafn á jarðsetn-
ingarstaðnum gæti hins vegar orðið
viðkvæmara mál og er það í sjálfu
sér ekki óskiljanlegt.
Persónulega finnst mér það vera
sanngirnismál að taka öllum vel og
reyna frekar að liðka til með fólki
en að setja steina í götu þess og því
held ég að það gæti verið ágætt að
breyta nafni á kirkjugörðum og
kalla þá legstaði eða grafreiti þar
sem allir gætu hvílt í friði þó ein-
hverjar trúarskoðanir hafi kannski
verið mismunandi á meðan við-
komandi lifðu.
Og svo kemur upp í hugann
reksturinn á þessum görðum okkar
sem eru ótrúlega margir og liggja
víða. Það er nefnilega ansi dýrt að
halda svona kirkjugarði í þokka-
legri hirðu svo ekki sé vansi að. Ég
skil það vel að ættingjar séu ekki
ýkja hrifnir af að koma í illa hirtan
garð þar sem þeirra nánustu liggja
en gera sér litla eða enga grein fyrir
því að hirðing svona staðar er ekki
lítið verk. Í sambandi við slíkt hef-
ur mér stundum dottið í hug kvæði
Tómasar Guðmundssonar, Hót-
el Jörð, þar sem sagt er frá því að
flestum er vel tekið við komuna til
lífsins en eitthvað minni glans yfir
brottförinni. Á fæðingardegi er
ekki spurt um kostnaðinn en útför-
ina þarf að greiða og það á ýmsan
hátt og síðan halda í horfinu á leg-
stað í æði mörg ár. Flestir eru svo
sem búnir að greiða til samfélags-
ins í öll sín ár nánast en það dugar
eiginlega ekki til þegar að enda-
lokunum kemur. Nýburar eru svo-
lítið líkir nýjum viðskiptamönnum
í banka sem eru gladdir með alls-
konar bitlingum en þegar sjóðflæð-
ið minnkar er ekki eins vel opin
pyngjan. Og þetta veit ég nokk-
uð vel því að rekstur á kirkjugarði
er svolítið líkt og að moka þurrum
sandi í vindi þar sem kornin loða
ekki vel saman og lítið verður eftir
á skóflunni í enda sveiflunnar. Það
væri hægt að gera þennan rekstur
verulega ódýrari og með minni fyr-
irhöfn ef görðum væri steypt saman
í rekstri þannig að ekki sé verið að
vasast með örfáar grafir á hverjum
stað sem gerir það illmögulegt að
hafa samning um grafartökur og
hirðingu.
Í raun er þetta sennilega hluti af
því stóra vandamáli að kirkjusókn-
ir í okkar dreifðu byggðum eru allt
of litlar og fámennar. Fyrir minna
en 100 árum voru margfalt fleiri
búandi í dreifbýlinu og samgöngur
erfiðar þannig að erfitt var að sækja
kirkju um langan veg. Í dag hins
vegar er nánast hægt að aka á milli
allra kirkna á Vesturlandi á einum
degi. Hver sókn er orðin að örfáum
sálum sem samt þurfa að standa að
bæði kirkju og kirkjugarði líkt og
var á meðan fólksfjöldi var marg-
faldur. Og á þeim tíma voru held-
ur ekki eins háar kröfur um hirðu
kirkjugarða og nú er.
Ég hef átt því láni að fagna í þessu
aukahlutverki mínu sem sóknarfor-
maður að Borg að hafa getað virkjað
fólk úr sókninni sem hefur komið
og lagt til vinnu við endurbætur og
snyrtingu í kirkjugarðinum. Ósér-
hlífið fólk sem mætti með verkfæri
og viljann til að lagfæra í kring-
um liðna ættingja og nágranna.
Svona starf er ekki sjálfsagt og alls
ekki hægt að gera ráð fyrir því að
ná saman virkum hópi en að Borg
gekk þetta aldeilis frábærlega og
gæti jafnvel orðið oftar miðað við
undirtektir áður. Og annað höfum
við að Borg verið ákaflega hepp-
in með og það er einmitt aðgengi
að viljugu fólki í sókninni sem hef-
ur unnið við hirðingu og grafar-
tökur þegar þurft hefur. Slíkt er þó
greitt enda allt of mikið starf til að
unnið sé launalaust. Ég held reynd-
ar að rekstur á grafstæðum ætti að
vera samfélagslegt og vera hluti af
skyldum sveitarfélaga eða ríkis en
ekki í höndum mýmargra mismun-
andi virkra smásókna. Við fæðumst
orðið flest á sjúkrahúsi en förum
í gröfina á eigin vegum ef svo má
segja, en greiðum skatta þess í milli.
Svona sem niðurlag í þessu rausi
mínu vil ég vekja fólk til hugsun-
ar um hvort ekki sé orðið tímabært
að stokka svolítið upp í þessu fyrir-
komulagi okkar um kirkjur og graf-
stæði og færa það til nútímans svo
auðveldara verði að standa að þess-
um málum svo að til sóma sé. Sam-
kvæmt svolítið skrýtinni skoðana-
könnun sem gerð var fyrir u.þ.b. 10
árum síðan kom í ljós að meirihluti
þjóðarinnar (þó ekki hafi kannski
meirihlutinn tekið þátt í þessari
könnun) vildi halda í Þjóðkirkjuna.
Það segir samt ekki að ómögulegt
sé að færa hlutina til nútímans og
aðlagast betur aðstæðum. Og eins
og ég sagði hér áður þá eru fleiri
hópar til en sem tilheyra Þjóðkirkj-
unni og þeirra réttur er sá sami og
okkar hinna.
Með vinsemd og virðingu,
Tungulæk síðsumars 2022.
Einar Óskarsson
Upphaf og endir