Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Skannaðu QR
kóðann og skoðaðu
jólatilboðin
Fullt verð: 299.900 kr.
Nú 239.920 kr.
AUSTIN rafdrifinn sófi
Stillanlegur 3ja sæta sófi. Miðsæti niðurfellanlegt.
Svart leður á slitflötum. 198 x 95x 98 cm.
JÓLIN ERU
Í DORMA
Frábært úrval og gott verð
20%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM SÆNGUM
OG KODDUM
20%
AFSLÁTTUR
Jól
Nú 142.920 kr.
NATURES
LUXURY
heilsurúm með Classic botni
Frábær heilsudýna með yfirdýnu.
Fullt verð 140x200: 164.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
af dýnu
JÓL
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
Mexíkóski tónlistarmaðurinn
José Luis Anderson hefur
verið búsettur á Íslandi í
fimm ár. Hann er um þessar
mundir nýkominn heim frá
Austurríki þar sem hann
fylgdi eftir verki um íslenska
hvalinn.
ninarichter@frettbladid.is
Kanadíska fjöllistakonan og ljóð-
skáldið Angela Rawlings og mexí-
kóski tónlistarmaðurinn José Luis
Anderson hafa nýlokið uppsetningu
á verki um íslenska hvalinn, sem er
hluti af samsýningunni Chewing
the Tundra, sem Tinna Grétars-
dóttir og hin finnska Pia Lindman
stýra við Kunsthalle Exnergasse í
Vínarborg.
José segir að á sýningunni hafi
norræna túndran verið í fókus,
út frá vinkli umhverfisverndar
og loftslagsbreytinga. Fjöldi lista-
manna á verk á sý ningunni;
Ásmundur Ásmundsson, Hannes
Lárusson, Tinna Grétarsdóttir, Geir
Tore Holm, Søssa Jørgensen, Pauli-
ina Jokela, Connie Kristoffersen, Pia
Lindman, Lauri Linna, Anra Naw,
Anu Osva, Angela Rawlings, José
Luis Anderson, Leena Valkeapää,
Oula A Valkeapää, John Andrew
Wilhite-Hannisdal og Rebekah A.
Oomen.
Íslenskt þang og skíði
„Þarna komu saman listamenn
frá Noregi, Finnlandi og Íslandi og
jafnvel frá Síberíu. Þarna unnum
við saman að innsetningu. Ég bjó
til átta mínútna verk, Hvalslag, tón-
verk sem blandar saman lifandi
hljóðfærum og raftónlist, með selló,
rödd og saxófóni. Í rauninni var
innsetningin á fjórum stöðum. Það
mátti hlýða á verkið í heyrnartólum
og svo voru þarna hvalskíði. Þarna
var líka íslenskt þang sem myndaði
orð sem tengdust hvölum með ein-
hverjum hætti. Orð eins og Hval-
fjörður og þar fram eftir götunum,“
segir José.
Þá var einnig vínylkassetta hluti
af sýningunni sem Angela Rawl-
ings fann á íslenskri strönd. „Hug-
myndin að baki verkinu er að skapa
einhvers konar menningarlegt
samtal milli mannsins og hvalsins í
íslensku samfélagi sem hefur breyst
mikið í áranna rás,“ segir hann.
„Varðandi tónverkið, þá eru hvalir
hluti af íslensku samfélagi og virðast
alltaf hafa verið það. Það eru fleiri
en tvö hundruð orð á íslensku sem
tengjast hvölum með beinum hætti,
eða hafa þetta forskeyti. Það eru líka
svo ótrúlega margir staðir á Íslandi
sem tengjast hvalnum.“
Hvalreki í áranna rás
José bendir á að áhugavert sé að
skoða hvernig hugmyndir um hval-
reka hafa breyst í íslensku samfélagi.
„Hvernig slíkur atburður er öðruvísi
í dag en þá. Hvalreki þýddi þá gnægð
matar, kjöts og beina sem hægt var
að nýta í alls konar hluti. En í dag
förum við að spyrja spurninga,
höfum áhyggjur af velferð dýranna
og gerum okkur grein fyrir því að
lífríki þeirra er ógnað,“ segir hann.
„Í þessari tónsmíði er ég að skoða
hvalinn og nota ýmsar leiðir til að
túlka hegðun hvalanna. En ég skoða
líka elstu íslensku þjóðlögin og nýti
þann þjóðararf í verkið.“
Verkið stendur í Kunsthalle
Exnergasse til 17. desember. n
Fleiri en tvö hundruð orð
tengd íslenska hvalnum
José Luis Anderson skoðar samband Íslendinga við hvali. MYND/AÐSEND
Hvalreki þýddi þá
gnægð matar, kjöts og
beina sem hægt var að
nýta í alls konar hluti.
En í dag förum við að
spyrja spurninga.
José Luis Anderson
ninarichter@frettabladid.is
Söngvarinn Nick Carter og félagar
hans í poppsveitinni Backstreet
boys gerðu hlé á tónleikum sveitar-
innar í Lundúnum á laugardags-
kvöld til að heiðra minningu bróður
Nick, tónlistarmannsins Aaron Car-
ter, sem lést kvöldið áður. Banamein
hans hefur ekki verið gert opinbert
en erlendir fjölmiðlar hafa fjallað
um baráttu hans við alvarlega geð-
og fíknisjúkdóma.
Söngvarinn Kevin Richard son,
elsti meðlimur Backstreet boys,
ávarpaði tónleikagesti í O2 Arena
tónleikahöllinni. „Við berum þung-
an harm í brjósti í kvöld vegna and-
láts fjölskyldumeðlims í gær. Við
vildum helga þetta augnablik litla
bróður Nick, Aaron Carter, sem lést
í gær 34 ára að aldri. Hann var hluti
af fjölskyldunni. Við þökkum inni-
lega fyrir samúðarkveðjur, stuðning
og hlýhug.“
Aaron Carter sló í gegn sem
barnastjarna seint á tíunda ára-
tugnum. Hann steig inn í sviðsljósið
aðeins sjö ára gamall og gaf út sína
fyrstu plötu árið 1997, þá níu ára
gamall. Platan seldist í milljón ein-
tökum á heimsvísu. Önnur plata
hans, Aaron’s Party, kom út árið
2000 og seldist í þremur milljónum
eintaka. Síðar gaf hann út tvær plöt-
ur til viðbótar, þar af safnplötu. Um
aldamótin fylgdi Aaron Backstreet
boys á sameiginlegu tónleikaferða-
lagi. Sveitin var á þeim tíma ein vin-
sælasta popphljómsveit heims. n
Minnast Aaron Carter á tónleikum
Bræðurnir Nick og Aaron árið 2006.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ragnarjon@frettabladid.is
Mikil spenna ríkti í Bandaríkjun-
um fyrir stærsta útdrætti sögunnar
í Powerball-happdrættinu. Einn
miðahafi var með allar tölur rétt-
ar og vann viðkomandi 2 milljarða
Bandaríkjadollara eða tæplega
300 milljarða íslenskra króna sem
verður að teljast nokkuð gott.
Miðinn var seldur í bænum Alta-
dena sem er í um 15 mínútna fjar-
lægð frá borginni Los Angeles.
Nokkur bið hafði myndast eftir
úrslitum í happdrættinu þar sem
fresta þurfti útdrættinum því skila
verður öllum upplýsingum um
keypta miða áður en tekið er til við
að draga um vinninginn.
Tölur hins heppna vinningshafa
í Powerball voru 10, 33, 41, 47 og 56
en lukkutalan var 10. n
Einn ljónheppinn miðahafi vann
stærsta happdrættisvinning sögunnar
26 Lífið 9. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ