Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Láru G. Sigurðardóttur n Bakþankar „Af hverju færðu þér ekki bara vekj- araljós?“ sagði vinkona mín þegar ég kvartaði sáran yfir hve erfitt væri að vakna. Ég var bara alls ekkert tilbúin fyrir þessa myrku morgna – alltaf skal skammdegið læðast aftan að mér með sína dimmu hulu. Sannarlega erum við misnæm fyrir umhverfisáhrifum. Myrkrið hefur til dæmis engin áhrif á mann- inn minn, hann er alltaf jafn hress sem jaðrar við að vera óþolandi í svartnætti morgunsins. Lífsklukkan er áhugavert fyrirbæri, því hún slær takt dægur- sveiflna líkamsstarfseminnar. Ef hún gengur rétt þá sveiflast kortisól upp á morgnana ekki ólíkt því þegar Geysir gýs, sem ræsir okkur. Síðla kvölds hækkar svo melatónín sem gerir okkur syfjuð. Til að lífs- klukkan haldist í góðum takti þurfa flestir að endurstilla sig á hverjum morgni, og er sólarupprás best til þess fallin. Sem er ekki í boði núna – fólk vill heldur geta stundað golf eftir vinnu en láta staðarklukkuna slá í takt við lífsklukkuna! Á þessum myrku tímum getum við samt gert ýmislegt til að halda betur takti, til dæmis með því að hafa reglu á matar- og svefntíma. Hreyfa okkur reglulega, sérstaklega utandyra. Því rannsóknir sýna að melatónín mælist hærra á kvöldin eftir að hafa verið í náttúrulegri birtu heldur en að húka innandyra. Að viðra sig úti í þeirri birtu sem býðst gerir klukkunni okkar og svefni því gott. Sömuleiðis hjálpar ró fyrir svefn, eins og að fara í bað eða lesa bók við rauðleita birtu. Um leið og vinkona mín sleppti orðunum rann upp fyrir mér að auðvitað átti ég þetta fína vekjara- ljós á náttborðinu, en þessi ljós líkja eftir sólarupprás og hafa þann- ig jákvæð áhrif á lífsklukkuna. Stundum er lausnin beint fyrir framan nefið á okkur. n Ljós í myrkri Ég get svarað þér hvar og hvenær sem er á tm.is Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN Rafrænar leikprufur fyrir 9-13 ára krakka Skila má prufum til og með 20. nóvember Allar upplýsingar á leikhusid.is Æsispennandi fjölskyldusöngleikur frumsýndur í mars Við leitum að tólf krökkum til að leika sex persónur í sýningunni Draumaþjófurinn. Við hvetjum alla krakka sem hafa áhuga til að taka þátt í leikprufunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.