Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 2
Ég er merkilega brött þrátt fyrir að það sé nýbúið að bora í haus- inn á mér. Sigríður Matt- hildur Aradóttir Heimir snýr heim í Hafnarfjörð Stuðningsfólk FH mætti í Kaplakrika í gærkvöldi þar sem Heimir Guðjónsson snéri aftur til starfa. Heimir var rekinn úr starfi þjálfara meistaraflokks karla árið 2017 en er nú snúinn til baka. Eftir erfið ár treysta FH-ingar á töfrasprota Heimis sem skilaði áður fimm Íslandsmeistaratitlum. SJÁ SÍÐU 16 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sigríður Matthildur Aradóttir lauk á dögunum kuðungs­ ígræðslu í hægra eyra. Sigríður lagði Sjúkratryggingar Íslands í sumar vegna aðgerðarinnar og vonar að það hafi verið for­ dæmisgefandi. Hún hlakkar mest til að hætta að segja ha. odduraevar@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Hin heyrnarskerta Sigríður Matthildur Aradóttir verð­ ur það ekki mikið lengur því hún fór í fyrradag í sína aðra kuðungs­ ígræðslu, nú á hægra eyra, eftir að hafa farið í sína fyrstu á vinstra eyra árið 2005. Sigríður þurfti sannarlega að hafa fyrir aðgerðinni en í júní lagði hún Sjúkratryggingar Íslands fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála eftir að hafa fengið sífellda neitun frá stofnuninni. Stofnunin taldi aðgerðina ekki brýna nauðsyn fyrir Sigríði þar sem hún hefði áður farið í aðgerð á öðru eyra. Það var 2010 sem heyrnin á hægra eyra fór að dala hjá Sigríði. Þá ákvað hún að sækja um stuðning fyrir annarri kuðungsígræðslu en fékk sífellt neitun hjá Sjúkratryggingum. „Ég er svo kát yfir þessu öllu saman að ég fór bara heim sama dag og ég er merkilega brött þrátt fyrir að það sé nýbúið að bora í hausinn á mér,“ segir Sigríður hlæjandi. Aðspurð hvað hún hlakki mest til að gera með fulla heyrn stendur ekki á svörum: „Ég er mest spennt að fá að vera meira með og þurfa ekki alltaf að segja „ha?“ og ruglast ekki og trúðu mér, misskilja og segja vitlaus orð og alls konar. Og svo bara að fara í leikhús og njóta þess að heyra allt saman,“ segir Sigríður. „Að geta verið með fólkinu mínu og einfaldlega bara verið með. Og stereó! Ómægod, stereó!“ segir Sig­ Hlakkar langmest til að þurfa ekki lengur að hvá Sigríður fékk sífellt neitun frá Sjúkratryggingum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ríður hlæjandi. Einhver áhöld eru um það hversu fordæmisgefandi mál Sigríðar verður fyrir aðra í svip­ uðum sporum. „Sjúkratryggingar Íslands eru ótrúlega merkilegt fyrirbæri. Ég hélt að þetta yrði fordæmisgefandi en svo er víst ekki. Ég ætla samt bara að leyfa mér að trúa því, af því að mér finnst hitt algjört svindl,“ segir Sigríður. Hún sótti árið 2018 aftur um aðgerðina hjá Sjúkratryggingum Íslands en fékk aftur neitun. Sig­ ríður viðurkennir að það hafi komið henni spánskt fyrir sjónir enda bjóst hún við því að það yrði einungis formsatriði að fá stuðning fyrir annarri aðgerð. Sigríður segist trúa því að mál hennar sé fordæmisgefandi og vill vera til staðar fyrir fólk í svipuðum sporum. „Ég vil að aðrir en ég njóti á endanum góðs af þessu, til þess fór ég nú í þessa vegferð.“ n benediktboas@frettabladid.is MEINDÝR Samkvæmt upplýsingum frá Meindýravörnum Reykjavíkur­ borgar er ekki hægt að tala um músafaraldur í miðborginni. Það er þó nóg að gera í útköllum vegna veggjalúsa. Munurinn felst í að á lands­ byggðinni eru f leiri hagamýs en í Reykjavík eru húsamýs í meirihluta. Eins og nafnið gefur til kynna er sú tegund hrifin af því að vera innan veggja húsa og er það allan ársins hring. Meindýravarnir borgarinnar, sem fá flest símtöl frá borgarbúum, hafa farið í þó nokkur útköll vegna músa en ekkert meira en í meðalári. Það er þó nóg að gera vegna veggja­ lúsa. Tölurnar fyrir árið eru ekki komnar en samkvæmt svörum meindýraeyða borgarinnar eru fleiri útköll vegna þeirra en í meðal­ ári. n Veggjalýs plaga fleiri en vanalega Veggjalýs eru hvimleið kvikindi sem nóg er af í borginni. MYND/AÐSEND ljosid.is/ljosavinur Vildi að ég gæti átt venjulegan miðvikudags­ morgun með fjölskyldunni“ „ gar@frettabladid.is ÖRYGGISMÁL Skammdegið sækir nú hratt í sig veðrið og æ lengra verður liðið á daginn áður en dags­ birtan tekur yfir. Í þeirri þíðu sem verið hefur með snjóleysi er erfitt að koma auga á gangandi eða hjólandi vegfarendur sem skjótast í myrkr­ inu yfir götur, suma hverja börn að aldri á leið í skóla. Á vef Samgöngustofu er bent á að notkun endurskinsmerkja sé þess vegna nauðsynleg. Þau eigi að vera sýnileg og best sé að hafa þau fremst á ermum, hangandi með­ fram hliðum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. „Það er staðreynd að ökumenn sjá óvarða vegfarendur með endur­ skin fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða,“ segir Sam­ göngustofa. Á vef stofnunarinnar er hægt að sjá lista yfir þá staði þar sem nálgast má endurskinsmerki. n Gott að setja upp endurskinsmerkin Endurskins- merki geta bjargað manns- lífum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR 2 Fréttir 9. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.