Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 20
Heimir stýrði FH frá 2008 til 2017 og skilaði fimm Íslandsmeistara- titlum í hús. 11 HM KARLA Í FÓTBOLTA DAGAR Í Heimsmeistaramótið 2022: G-riðill Innbyrðis viðureignir 24. nóv. 28. nóv. 28. nóv. 24. nóv. 2. des. 2. des. Leikjadagskrá Heimild: FIFA Mynd: Getty © GRAPHIC NEWS Leikmaður til að fylgjast með: 002 100 Aldrei mæst 001 243 105 Serbía Sviss Kamerún Brasilía Kamerún Sviss TapJafnt.Sigur Gabriel Jesus BRA Knattspyrnuveislan í Katar hefst eftir ellefu daga þegar Heimsmeistaramótið í knatt- spyrnu fer af stað. Í G-riðli er það lið sem veðbankar telja líklegast til sigurs. Brasilía er til alls líklegt með Neymar í fararbroddi en riðillinn er snúinn og getur allt gerst þegar boltinn byrjar að rúlla í Persaflóanum. hoddi@frettabladid.is FÓTBOLTI Í fyrsta sinn í nokkurn tíma kemur Brasilía til leiks með sterka liðsheild, Tite þjálfari liðsins hefur meira horft í það að búa til sterka liðsheild sem passar saman í stað þess að einblína á stærstu nöfnin. Neymar er hins vegar stjarna liðsins og hann á sér þann draum að leiða liðið til sigurs á þessu stærsta sviði f ót b olt a n s . Fy r i r k nat t- spyrnumenn frá Brasilíu snýst allt um þetta mót og veðbankar telja þá líklega til að ná árangri í Katar. „Þeir eru bara líklegastir til þess að vinna þetta mót, þetta er algjörlega frábært lið,“ segir Hrafnkell Freyr Ágústsson sérfræðingur Frétta- blaðsins um mótið. „Stærsta vandamálið fyrir Tite verður að finna rétta byrjunar- liðið strax, ég fór aðeins yfir liðin hans í undankeppninni og það eru talsverðar breytingar á milli leikja. Stærsta spurningin er á mið- svæðinu, þar er auðvitað Casemiro öruggur með sína stöðu en svo er spurning með hina tvo miðjumenn- ina. Fred hefur reynst þessu landsliði vel, þeir eru svo með Lucas Paquetá og Bruno Guimarães sem eru báðir mjög frambærilegir. Ekki má svo gleyma Fabinho hjá Liverpool sem hefur þó verið talsvert á bekknum. Það er svo líklega ekkert lið með jafn marga spennandi kant-fram- herja. Þar er mikið úrval en Neym- ar er aðalmaðurinn og á sitt sæti í liðinu, einhverjar pælingar hafa verið í gangi um að hann verði bara fremsti maður og verði þar í frjálsu hlutverki.“ Tite, þjálfari liðsins, hefur verið að leggja meira upp úr liðsheild en áður hefur sést hjá Brasilíu. „Tite hefur verið að hugsa meira um liðs- heildina en kannski forverar hans. Hann horfir ekki bara í nöfn leik- manna og það er vel. Í nútíma fót- Samba-fótbolti í bland við skriðþunga Serba bolta er ekki hægt að troða öllum stjörnunum saman inn og treysta á samba-fótbolta. Í dag snýst fót- boltinn svo mikið um pressu og hlaup. Það er mikil ástríða í þessu hjá Brasilíu, Heimsmeistaramótið er það sem allt snýst um þar í landi,“ segir Hrafnkell. Serbneskt blóm Serbarnir mæta til leiks með eina mest spennandi sóknarlínu mótsins en þar má finna þá Dusan Vlahović, framherja Juventus, Aleksandar Mitrovic, sjóðheitan framherja Ful- ham, og Luka Hrafnkell Freyr Ágústsson, sér- fræðingur Jovic, framherja Fiorentina. „Þetta eru þrír alvöru kostir sem Serbarnir hafa í fremstu víglínu en mér sýnist þeir ætla að treysta á Vlahović og Mitrovic. Síðan er það Dusan Tadic fyrir aftan þá sem er frábær leik- maður. Filip Kostic, miðjumaður Juven- tus, stjórnar svo spilinu á miðsvæð- inu ásamt Sergej Milinković-Savić en saman eru þeir ansi öflugir. Þetta er sterk liðsheild, það hefur oft vant- að í Serbíu. Þarna eru allir að róa í sömu átt og þetta er vel mannað lið. Það eru margir mjög líkamlega sterkir leikmenn í þeirra röðum,“ segir Hrafnkell. Kröfuharðir Svisslendingar Í G-riðli er varla veikan blett að finna en lið Sviss er einstaklega vel skipulagt lið sem er til alls lík- legt. Fyrirliðinn og leiðtogi liðsins er Granit Xhaka en þar er að finna marga frambærilega leikmenn sem margir hafa mikla reynslu úr lands- leikjum. „Þetta er lið sem við sáum fyrst á Evrópumóti U21-árs landsliða árið 2011. Þetta er mikið til sami kjarni og við Íslendingar sáum þar. Granit Xhaka og Xerdan Shaqiri eru stjörn- urnar í liðinu, þetta er svona þeirra síðasti séns til að ná einhverjum árangri. Góður árangur væri að komast upp úr riðlinum og frábær árangur væri að komast einu skrefi lengra. Þeir eru svo auðvitað með Manuel Akanji sem kom til Man- chester City í sumar, hann er betri leikmaður en flesta grunaði,“ segir Hrafnkell. Ólíkindatól frá Afríku Joel Matip, varnarmaður Liver- pool, er skærasta stjarna Kamerún en hann neitar að vera í lands- liðinu, deilur hafa lengi staðið yfir og ekkert stefnir í að hann fari með liðinu til Katar. Kamerún á þó eftir að tilkynna hóp sinn en endur- koma Matip virðist ekki líkleg. Eric Maxim Choupo-Moting, framherji FC Bayern, hefur verið sjóðandi heitur og er líklegur til alls í Katar. „Joel Matip hefur engan áhuga á að spila með landsliðinu, hann er auð- vitað fyrst og síðast Þjóðverji. Þar fæddist hann og ólst upp, tengingin við heimalandið er því ekki sterk. Vincent Aboubakar, sem er fyrirliði liðsins, hefur farið mikinn undan- farið, hann heldur því fram að hann sé betri en Mohamed Salah. Hann er á því að stóru félögin í Evrópu hafi bara ekki gefið honum tækifæri. Choupo-Moting er einn heitasti framherji Evrópu og svo eru þeir með Andre Onana markvörð Inter í sínum röðum. Þeir spila oft fótbolta sem er ekki mjög skipulagður og það getur oft verið til vandræða, sérstak- lega fyrir þjóðir frá Evrópu. Þetta er einn skemmtilegasti riðill mótsins,“ segir Hrafnkell. n Tite hefur verið að hugsa meira um liðsheild- ina en kannski forverar hans. Hrafnkell Freyr Ágústsson, sparkspekingur Neymar á að verða ein af stjörnum mótsins. FRÉTTA- BLAÐIÐ/GETTY hoddi@frettabladid.is FÓTBOLTI FH gekk í gær frá ráðningu á Heimi Guðjónssyni sem aðalþjálf- ara karlaliðs félagsins í Bestu deild- inni. Heimir er mættur á heimaslóðir en honum var vikið úr starfi haustið 2017. Heimir hefur þjálfað HB í Fær- eyjum og Val frá því að FH sagði upp samningi hans. Hann varð meistari í Færeyjum og Íslandsmeistari með Val en var rekinn úr starfi á Hlíðar- enda í sumar. Sigurvin Ólafsson sem tók við FH undir lok móts þegar Eiður Smári Guðjohnsen steig til hliðar verður þjálfari liðsins með Heimi, þeir hafa áður unnið saman í Kaplakrika þegar Heimir var aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar og Sigurvin var leikmaður. „Þegar við settumst niður þá tók þetta ekki neinn rosa- legan tíma, þetta er búið að vera vika sem samtalið hefur verið í gangi. Það var mikill vilji hjá öllum aðilum til að þetta myndi ganga upp,“ segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá FH, um ráðninguna á Heimi. Mikla eftirvæntingu mátti skynja í Kaplakrika í gærkvöldi þegar nýtt teymi FH var kynnt til leiks. „Endur- koma Heimis hefur alveg klárlega búið til mikla eftirvæntingu, maður finnur það alveg. Fólk er ánægt með þetta, árangurinn hans Heimis hér áður var auðvitað engum líkur.“ FH hélt sæti sínu í Bestu deild- inni á markatölu í sumar, þessi risi í íslenskum fótbolta hefur verið sofandi síðustu ár. „Auðvitað er ekki hægt að horfa á þetta öðruvísi en að það sé að einhverju leyti uppbygg- ing sem bíður Heimis og Sigurvins. Maður kemst ekki hjá því að segja það að einhver uppbygging þarf að eiga sér stað en við lítum samt á það þannig að við séum með fínan hóp í höndunum. Verkefni þjálfaranna, okkar sem erum í kringum þetta og leikmanna er að finna út hvernig við getum styrkt okkur innan frá. Planið er ekki að kollvarpa leikmanna- hópnum, við teljum hópinn miklu betri en hann hefur sýnt síðustu tvö sumur og nú er að finna út úr því hvað þarf til svo það sýni sig innan vallar. Það býr meira í okkur,“ segir Davíð Þór um komu Heimis. n Eftirvænting í loftinu þegar Heimir mætti heim Það var gleði í Kaplakrika þegar Heimir snéri heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 16 Íþróttir 9. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 9. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.