Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.11.2022, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Vellíðan er besta gjöfin og í Vellíðan í öskju frá Lyfju eru sérvaldar vörur fyrir vellíðunarstundir og Gua Sha-nudd. „Ég hef mikið verið að kenna Gua Sha-nudd í fyrirtækinu mínu og okkar upplifun þar hefur verið að margir eiga til þessa fallegu steina og fínu tól en vita ekki alveg hvernig á að nota það. Þess vegna endar oft með því að steinarnir sitja uppi í hillu og safna ryki, eða maður notar þá svona einhvern veginn og vonar það besta.“ Þetta segir Eva Dögg Rúnars- dóttir, jógakennari, hönnuður, sjálfmenntaður Gua Sha-sérfræð- ingur og annar eigandi Rvk Ritual. Eva Dögg elskar allt sem tengist heilbrigði húðarinnar. „Gua Sha er ævaforn og nátt- úruleg kínversk aðferð sem notuð hefur verið til að meðhöndla hina ýmsu sjúkdóma í gegnum tíðina. Meðferðin losar um stíflaða orku í líkamanum og eykur þar með blóðflæði og örvar eitlakerfið. Með tímanum hefur svo þróast mýkri útgáfa af Gua Sha sem er sérstak- lega ætluð fyrir andlitið. Hún er þetta Gua Sha sem við þekkjum í dag og hefur öðlast miklar vin- sældir,“ greinir Eva frá. Nuddað með Gua Sha-steini Gua Sha er steinanudd með fal- legu, heildrænu ritúali fyrir húðina og sem hefur óteljandi kosti fyrir líkama og sál. „Að framkvæma Gua Sha-nudd á sjálfum sér er frekar einfalt en mikilvægt er að það sé gert rétt. Meginreglan á bak við Gua Sha- tæknina er að veita húðinni raka og nota svo vægan þrýsting og endurtekið nudd með Gua Sha- steini frá nálarstungupunktum að eitlavegum. Gott er að byrja á bringunni, fara svo upp hálsinn og hnakkann og klára alveg það svæði áður en andlitið sjálft er nuddað. Svo byrjar maður alltaf á annarri hlið andlitsins, klárar hana og nuddar svo hina hliðina,“ útskýrir Eva Dögg og heldur áfram: „Þegar andlitið er nuddað byrjar maður alltaf á kjálkalínu og höku og fer svo upp á kinnina, að augn- svæði, þvert á augabrúnina og svo frá enni upp á hárlínu. Við endum svo á því að „tæma eitlaveginn“ með langri stroku frá enni niður á háls. Því næst nuddum við hina hlið andlitsins og einbeitum okkur Eva Dögg segir mikilvægt að rækta líka huga, líkama og sál. MYND/HELGI ÓMARS Vellíðan í öskju inniheldur ilmkerti, Mádara Time Miracle Hyaluron-rakagel og Gua Sha-stein. MYNDIR/AÐSENDAR Uppskrift Evu Daggar að vellíðan n Komdu þér fyrir á þægi- legum stað, andaðu inn, andaðu út og náðu innri ró. n Kveiktu á kerti með nota- legri angan. n Nærðu húðina með raka- geli frá Mádara Time Miracle Hyaluron-rakageli. Það er rakabomba fyrir allar húðgerðir og afar létt, olíu- laust rakagel. Rakagelið fer hratt inn í húðina, gefur henni meiri fyllingu, og mýkri og sléttari áferð. n Nuddaðu andlitið létt með Gua Sha þegar rakagelið er komið á andlitið. Það losar um spennu í andlitsvöðvum, dregur úr þrota og færir húðinni heilbrigðan og fal- legan ljóma. Fylgist með Evu Dögg á @eva- doggrunars og @rvkritual Gua Sha getur dregið úr bólgum, fínum línum og dökkum hringjum í kringum augu og mótað andlitið ef nuddið er framkvæmt á réttan hátt. Eva Dögg Rúnarsdóttir allra síðast að því að nudda sérstök svæði eins og svæðið á milli auga- brúnanna, svæðið í kringum nefið og varirnar.“ Losar um staðnaða orku Til að meðhöndla vandamála- svæði eru ýmsar meðferðir í boði með Gua Sha-steinanuddi. „Gott er að taka fyrir eitt svæði í einu og einblína á það,“ segir Eva Dögg. „Við hverja nuddstroku endum við strokuna með því að hrista aðeins steininn upp við húðina til að tæma eitlaveginn og losa um staðnaða orku. Þegar húðsvæði er meðhöndlað með svona endurteknu nuddi skapar það tómarúm sem veldur því að úrgangsvökvi dregst að húðinni frá vefjum líkamans og við viljum losa vel um alla vökvasöfnun. Með Gua Sha-nuddinu erum við nefnilega alltaf að vinna með bandvefinn og sogæðakerfið.“ Eva segir ekki síður mikilvægt að nýta þennan tíma til að hugsa um öndunina. „Að muna að anda djúpt og slaka vel á, passa sig að vera slakur í öxlum með upprétt bak og opna bringu. Auðvelt er að stífna upp í öxlunum og draga þær upp að eyrum, en það viljum við alls ekki. Hugsum um líkams- stöðuna og öndunina, og einnig að hugsa fallega til okkar sjálfra og um okkur sjálf, því allt tengist það saman. Það þýðir ekkert að nudda á sér andlitið fyrir framan spegilinn og hugsa um hvað maður er óánægður með sig og hvað mætti betur fara; það er harðbannað! Nýtum frekar tímann í að sinna huga, líkama og sál.“ Að ástunda reglulegt Gua Sha- nudd hefur marga kosti, að sögn Evu Daggar. „Það losar um spennu í andlits- vöðvum, dregur úr þrota, eykur kollagenframleiðsluna og færir húðinni fallegan og heilbrigðan ljóma. Gua Sha getur einnig dregið úr bólgum og minnkað sársauka, til dæmis í kringum kjálka og höfuð. Einnig getur Gua Sha dregið úr fínum línum og dökkum hringjum í kringum augu og mótað andlitið ef nuddið er fram- kvæmt á réttan hátt.“ Nú er 20 prósenta afsláttur af öllum húð-, snyrti- og gjafavörum í Lyfju. Vellíðan í öskju er á sérstöku tilboði á Einstökum tilboðsdögum Lyfju dagana 8. til 13. nóvember. Askjan kostar þá 4.999 krónur. n Sjá meira á lyfja.is 2 kynningarblað A L LT 9. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.