Fréttablaðið - 11.11.2022, Side 2
Ég er búinn að hlakka
til í nokkra mánuði.
Anton Elí Arnarsson, 11 ára30%
AF ÖLLUM VÖRUM
www.lindesign.is
LINDESIGN.IS
KÓÐI í VEFVERSLUN
“1111”
DAGUR
VEFVERSLUNAR
Á Arnarhól vinna verktakar þessa dagana hörðum höndum að því að setja upp athafnasvæði, fyrir framan eitt helsta kennileiti Reykjavíkur, hús Seðlabanka
Íslands. Um þessar mundir fara fram framkvæmdir innanhúss, en í kjölfar sameiningar Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans árið 2020 fjölgaði starfsmönnum
bankans talsvert. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Loksins, loksins, er 11 ára afmælisdagurinn upprunninn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.
Sumir afmælisdagar eru
sérstakari en aðrir, svo sem
11 ára afmælisdagur Antons
Elís Arnarssonar. En hann er
fæddur þann 11.11. árið 2011.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Anton Elí Arnarsson er
búinn að hlakka til þessa dags lengi.
Þetta er ekki aðeins afmælisdagur-
inn hans, heldur 11 ára afmælis-
dagurinn. En hann er fæddur þann
11.11. árið 2011.
„Ég er búinn að hlakka til í nokkra
mánuði,“ segir Anton. „Ég ætla að
halda upp á það með strákunum
í bekknum. Ég ætla að bjóða þeim
í leiktækjasalinn hjá Smárabíói,“
segir hann. Vitaskuld langar hann
í gjafir líka og er búinn að óska
sér Galaxy Buds-heyrnartóla, raf-
magnshlaupahjóls og peninga.
Anton er elsti sonur Andreu
Óskar Tryggvadóttur, sem hún á
með Arnari Jónssyni. Hún á tvo
yngri syni með Ágústi Bjarklind og
búa þau í Grafarvoginum.
Ekki leit endilega út fyrir að
Anton myndi fæðast þennan dag
því Andrea var sett þann fjórtánda.
Möguleikinn var þó vel fyrir hendi.
„Pabbi Antons var alveg brjál-
æðislega spenntur fyrir þessum
degi og var búinn að biðja mig um
að reyna að eignast hann þennan
dag,“ segir Andrea og brosir. „Hann
varð mjög glaður þegar ég fór í gang
þann tíunda og ljóst var að fæðingin
myndi verða eftir miðnætti.“
Anton gengur núna í Borgaskóla,
hefur ákaflega gaman af íþróttum
og æfir körfubolta. Segir hann að
íþróttir séu uppáhaldsfagið hans í
skólanum.
„Mér finnst skemmtilegast að
leika við vini mína, helst úti,“ segir
hann.
Þá hefur hann einnig mjög gaman
af tölvuleikjum og deilir reyndar
afmælisdegi með söluhæsta tölvu-
leik allra tíma, Minecraft, sem kom
út þann 11.11. árið 2011. „Ég spila
hann ekki lengur, ég spilaði hann
stundum hjá vini mínum,“ segir
Anton, spurður hvort hann spili
Minecraft.
„Anton Elí er rosalega góð-
hjartaður,“ segir Andrea. „Það er
umtalað hjá þeim sem þekkja hann
hvað hann er góður við allt og alla.
Ef hann sér að einhverjir krakkar
eru með stríðni og leiðindi, eins og
er byrjað hjá krökkum á þessum
aldri, þá nennir hann ekki að vera
í kringum þá.“
Andrea segir að Anton hafi fengið
nokkra athygli út af afmælisdegin-
um. Þegar hann fæddist kom frétta-
stofa Stöðvar 2 og tók viðtal við fjöl-
skylduna. Síðan hefur verið fjallað
um Anton bæði í Morgunblaðinu
og Kópavogsblaðinu, þar sem fjöl-
skyldan bjó eitt sinn þar. Árið í ár er
þó sérstakt.
„Hann er mjög spenntur fyrir
þessum degi og spurði hvort frétt-
irnar gætu ekki komið í afmælið
hans,“ segir Andrea. n
Fæddist 11.11.11 og er 11 ára
Lengsti leggur keppninnar telur 86,5
kílómetra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
RALLÝ Forsvarsmenn CanAm Icel-
and Hill Rally fóru þess á leit við
sveitarstjórn Rangárþings ytra að
halda leiðarlýsingunum fyrir sig,
enda fer rallýið þannig fram að
keppendur eru ekki upplýstir um
nákvæma leiðarlýsingu og tíma-
setningu fyrr en daginn fyrir keppn-
ina. „Förum við góðfúslega fram á
að leiðarlýsing verði ekki gerð opin-
ber á vef sveitarfélagsins,“ segir í
bréfi forsvarsmanna rallýsins.
Sveitarfélagið hunsaði þó þessa
beiðni og geta allir þeir sem vilja séð
leiðirnar sem á að aka á vef sveitar-
félagsins.
Stefnt er að því að halda keppnina
á torfærum vegum þar sem notast
verður við jeppa og skráðar og
tryggðar buggy-bifreiðar. n
Opinbera leiðina
gegn vilja haldara
Lengsti leggurinn telur
tæpa 87 kílómetra.
Framkvæmdir á húsi Seðlabanka Íslands
erlamaria@frettabladid.is
H E I LB R I G Ð I S M Á L Ly f jastof nun
hefur veitt umsögn um frumvarp
Berglindar Óskar Guðmundsdóttur,
þingkonu Sjálfstæðisflokksins, sem
tekur á breytingum á lyfjalögum
hvað varðar lausasölulyf. Breytingin
felur í sér víkkun á undanþágu-
heimild til að selja tiltekin lausa-
sölulyf í almennum verslunum,
meðal annars til að auka aðgengi
almennings að þeim.
Í umsögninni kemur fram að vert
sé að hafa í huga að slík framkvæmd
gangi þvert á markmið lyfjalaga og
lýðheilsustefnu stjórnvalda.
„Verði frumvarpið samþykkt
kann sú staða að koma upp að velta
lyfjabúða og lyfjaútibúa á lands-
byggðinni minnki, sem gæti leitt til
þess að þjónusta þar skerðist,“ segir
í umsögninni.
Lyfjastofnun leggur til að breyt-
ingin verði eingöngu látin ná til
landsbyggðarinnar þar sem verra
aðgengi er að lyfjum og að lyfsölu-
leyfishafar komi að henni. n
Óttast að nýtt frumvarp leiði til
skerðingar á þjónustu lyfjaútibúa
Berglind Ósk
Guðmunds-
dóttir, þingkona
Sjálfstæðis-
flokksins
2 Fréttir 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ