Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 8
Þetta eru engin enda-
lok á málinu.
Andri Steinn
Hilmarsson,
bæjarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
kristinnpall@frettabladid.is
KÓPAVOGUR Bæjarráð Kópavogs fór
fram á að bæjarstjóri myndi fylgja
eftir fyrirspurn sveitarfélagsins
um réttindi yfir lofthelgi Kópa
vogs, með því að ræða málefnið við
ráðherra samgöngumála. Bæjar
lögmaður segir að réttindi sveitar
félagsins séu takmörkuð.
„Þetta svar kemur kannski ekki
á óvart, en þetta var fyrsta skrefið
okkar í þessu máli og við erum
hvergi nærri hætt. Heimildir okkar
í lofthelginni eru mjög takmarkaðar
og þá þurfum við að leita annarra
leiða“, segir Andri Steinn Hilmars
son, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
ins sem lagði fram fyrirspurnina.
Í viðtali við Fréttablaðið á dög
unum sagði Andri að fyrirspurnin
væri að beiðni íbúa sem hafi
kvartað sáran undan tíðu þyrlu
flugi yfir svæðið, sérstaklega þegar
það væri eldgos á Suðurnesjunum.
Í svari bæjarlögmanns kom fram
að ráðherra fari með yfirstjórn
flugmála á íslensku yfirráðasvæði
í samráði við Samgöngustofu og er
það því Sigurður Ingi Jóhannsson
innanviðaráðherra sem úrskurðar
í þessum málum. Ráðherrar geti gert
sérstakar ráðstafanir til að draga úr
hávaða á flugvöllum en til þess þurfi
að minnsta kosti fimmtíu þúsund
flughreyfingar á ári. Alls voru 49.012
flughreyfingar á síðasta ári og stóð
fjöldinn í 37 þúsundum í október.
„Þetta eru engin endalok á mál
inu. Það er skýrt ákall frá bæjar
búum og pólitísk samstaða um það
að finna lausn við þessu vandamáli,
hvort sem það verður krafa um að
endurskoða f lugleiðir þyrluf lugs
eða með öðrum leiðum. Við erum
að skoða næstu skref og gerum ráð
fyrir að ræða málið við Isavia, inn
viðaráðuneytið og alla málsaðila.“ n
Markmiðið er að losna við þetta yfir Kársnesinu
ÍÞRÓTTAVIKAN
MEÐ BENNA BÓ
FÖSTUDAGA KL. 21.00
Benedikt Bóas fær til sín góða gesti til að
ræða íþróttavikuna sem leið og skoðar það
helsta sem gerðist á léttu nótunum.
bene diktarnar@fretta bladid.is
ALÞJÓÐAMÁL Joe Biden, for seti
Banda ríkjanna og Xi Jin ping, for
seti Kína og aðal ritari kín verska
kommún ista flokksins, munu funda
á mánu dag í fyrsta sinn síðan Biden
tók við em bætti for seta.
Mark mið fundar leið toganna
er að bæta sam band stór veldanna
tveggja, en Kína stöðvaði öll sam
skipti við Banda ríkin eftir að Nan
cy Pelosi, for seti full trúa deildar
Banda ríkja þings, heim sótti Taí
van. Kína lítur á Taí van sem yfir
ráða svæði sitt og vakti heim sóknin
mikla reiði þar í landi.
Einnig má búast við að leið
togarnir ræði inn rás Rússa í Úkra
ínu. Banda ríkin hafa á vallt stutt
Úkraínu menn með vopnum og
tölu verðu fjár magni, en Kína hefur
ekki opin berað af stöðu sína. n
Biden og Xi funda
á mánu dag
kristinnpall@frettabladid.is
BANDARÍKIN Bandaríska sendiráðið
er ekki með tölurnar yfir fjölda
þeirra sem kusu í nýafstöðnum
þingkosningum í Bandaríkjunum
á Íslandi.
Rúmlega þúsund Bandaríkjamenn
eru búsettir hér á landi. Við það
bætist hópur með tvöfalt ríkisfang.
Að sögn Kristins Gildorfs, upplýs
ingafulltrúa sendiráðsins, er ekki
haldið utan um hversu margir nýta
kosningaréttinn. n
Halda ekki utan
um kjörsókn
Þúsund Bandaríkjamenn búa hér.
Xi Jinping aðalritari og leiðtogi Kína.
Töluverðar líkur eru á því
að Ron DeSantis, ríkisstjóri
Flórída, muni bjóða sig fram
til forsetakosninga í Banda
ríkjunum árið 2024. Prófessor
í stjórnmálafræði segir að
hegðunarmynstur Donalds
Trump og persónuleiki
DeSantis geri þá að líklegum
frambjóðendum.
helgisteinar@frettabladid.is
BANDARÍKIN Ríkisstjóri Flórída,
Ron DeSantis, sigraði andstæðing
sinn, Charlie Crist, á þriðjudag
inn og tryggði sér þar með annað
kjörtímabil. DeSantis sigraði með
20 prósenta mun og vann meðal
annars umdæmin Palm Beach og
MiamiDade, þar sem Demókratar
hafa verið mjög sterkir.
Í kosningaveislu sinni, sem haldin
var í Tampa, ávarpaði hann hóp
stuðningsmanna og sagði að þau
væru ekki aðeins búin að vinna
kosningarnar, heldur að endurteikna
pólitíska kortið. Sigur De Santis er sá
stærsti fyrir Repúblikana flokkinn í
Flórída í 20 ár.
Silja Bára Ómarsdóttir, prófess
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, segir að DeSantis sé mjög
líklegur til að bjóða sig fram til for
setakosninga árið 2024. Hann fylgi
ákveðnu mynstri og tikki í mörg
box sem eru einkennandi fyrir for
setaframbjóðendur.
„DeSantis er af látlausum upp
runa, býr yfir elítumenntun, hefur
sinnt herþjónustu, sýnir mikinn
metnað og hefur náð góðum
árangri á meðal kjósenda af róm
önskum uppruna. Þetta er upp
skrift að góðum árangri á lands
vísu,“ segir Silja og bætir við að það
sem styrkir þetta enn frekar sé að
Donald Trump muni sækjast eftir
tilnefningu og sé þegar byrjaður
að uppnefna DeSantis. „Hann sér
augljóslega að þarna er mögulegur
keppinautur,“ segir Silja Bára.
DeSantis varð ríkisstjóri í Flórída
árið 2019 með stuðningi Trumps.
Hann var harðlega gagnrýndur árið
2020 þegar heimsfaraldurinn skall á
og tók hann þá ákvörðun að aflétta
samkomutakmörkunum mun fyrr
en margir aðrir ríkisstjórar. Hann
hefur einnig bannað grunnskólum
að tala opinberlega um kynhneigð
eða kynvitund og sagði að millj
ónum bænakalla hefði verið svarað
þegar hæstiréttur felldi réttinn til
þungunarrofs úr gildi.
Silja bendir einnig á að Flórída
sé sveif luríki og æskilegt sé fyrir
Repúblikana að halda fast í það.
„Hann er líka ungur, ekki orðinn
45 ára og er með börn á grunnskóla
aldri, sem er prófíll sem höfðar mjög
mikið til kjósenda,“ segir Silja Bára.
„Þar að auki, ef hann fær útnefn
inguna og fer gegn Biden, verður
þetta samkeppni á milli fortíðar og
framtíðar. Demókratar væru með
mjög aldraðan frambjóðanda, þó
að hann væri sitjandi forseti. Ef að
Repúblikanar ná fulltrúadeildinni
þá mun Biden heldur ekki ná í gegn
neinum stórum málum á næstu
tveimur árum og þá minnka alltaf
líkur sitjandi forseta á endurkjöri,“
segir hún. n
DeSantis líklegur í forsetaframboð
Hver er Ron DeSantis?
1978 fæddur í Jacksonville í
Flórída.
1997 nemur sagnfræði í
Yale-háskólanum og verður
fyrirliði hafnaboltaliðsins.
2003 hefur lögfræðinám í
Harvard.
2004 verður liðsforingi í
sjóhernum og vinnur meðal
annars með föngum í Guant-
anamo Bay fangelsinu.
2010 hættir í sjóhernum og
kvænist sjónvarpsfrétta-
konunni Casey Black.
2011 starfar sem saksóknari
og gefur út bók sem er mjög
gagnrýnin á fyrrum Banda-
ríkjaforseta, Barack Obama.
2012 kosinn á þing og hjálpar
við að stofna flokksþingið
„Freedom Caucus“.
DeSantis ávarp-
aði kjósendur
eftir sigurinn.
Við hlið hans er
eiginkona hans
og sjónvarps-
fréttakonan
Casey DeSantis.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Silja Bára
Ómarsdóttir
prófessor í
stjórnmálafræði
við Háskóla
Íslands
8 Fréttir 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ