Fréttablaðið - 11.11.2022, Qupperneq 13
Karl Th.
Birgisson
n Í dag
Í lítillæti sínu segir Sjálfstæðisflokk-
urinn landsfund sinn vera stærsta
lýðræðisviðburð þjóðarinnar.
Gott og vel. Leyfum þeim að
halda það, og gleymum alþingis-,
sveitarstjórnar- og forsetakosn-
ingum.
Á yfirborðinu er sú frétt helzt
af nýhöldnum landsfundi að yfir-
stéttargutti úr Garðabæ sigraði
alþýðlegan landsbyggðarstrák úr
Borgarnesi í formannskjöri.
Er það einföldun? Já, já, mikil ein-
földun. En þar með staðfesti Sjálf-
stæðisflokkurinn enn einu sinni
hvers konar flokkur hann vill vera.
Yfirlætið
Í setningarræðu Bjarna Benedikts-
sonar kenndi ýmissa skrýtilegra
grasa. Undarlegast þó sennilega
að ný forysta Samfylkingarinnar
hefði tekið Evrópumál af dagskrá
í íslenzkri pólitík. Mikil eru völd
Kristrúnar Frostadóttur, sér í lagi
vegna þess að Bjarni hefur sjálfur í
tíu ár sagt Evrópu ekki vera á dag-
skrá.
Það varð mantran eftir að hann
sveik margyfirlýst kosningaloforð
sitt um að leyfa þjóðinni að ráða
ferðinni í þeim málum. Meðal ann-
ars vegna þeirra svika varð til nýr
stjórnmálaflokkur, Viðreisn.
Og núna af því að Kristrún og
Guðmundur Árni Stefánsson hafa
gerbreytt íslenzkri pólitík, bauð
Bjarni Viðreisnarfólki að „koma
heim.“
Hvaða líkingamál á nú að nota
um þennan þankagang? Að nokkrir
frávillingar hafi rambað frá hjörð-
inni og nú kalli forystusauðurinn á
lömbin aftur heim?
Ýmislegt má segja um Bjarna
Benediktsson, en ekki einu sinni ég
treysti mér til að kalla hann sauð.
Eða er skipstjórinn að höfða til
þeirra í áhöfninni sem ákváðu að
forða sér í björgunarbátana þegar
móðurskipið steytti á skeri af skeri
og kompásinn hringsnerist í sífellu?
Meira að segja ég veit að Bjarni
Benediktsson er enginn skipstjóri,
ekki einu sinni stýrimaður. Guð-
laugur Þór væri hins vegar senni-
lega nothæfur vélstjóri á flestum
bátum.
Hvaðan sprettur þetta yfir-
læti? Ég er pabbinn – komið heim,
börnin mín?
Endurtekið efni
Á meðan við vitum ekki betur er
freistandi að álykta að hugmynda-
heimur Bjarna þroskist helzt í bað-
karinu á Bakkaflötinni í Garðabæ.
Þaðan er gott útsýni yfir í næsta
einbýlishús.
Þetta er enginn skætingur –
maðurinn hefur lýst þessu sjálfur
– og enda eru þessar oflætishug-
myndir ekki nýtilkomnar.
Hér er engin tilviljun né heldur
neitt tilfallandi.
Í eina skiptið í fullorðinslífi
Bjarna Benediktssonar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn var utan ríkis-
stjórnar, missti hann allt jafnvægi
og dómgreind, og við skulum gefa
okkur að hann hafi hvort tveggja.
Mest upplýsandi var þessi setn-
ing í ræðustóli Alþingis: „Skilaðu
lyklunum, Jóhanna.“
Hann átti við Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, sem var þá forsætisráðherra,
og lyklana að forsætisráðuneytinu.
„Skilaðu lyklunum.“
Baðkarið á Bakkaflöt
Maður skilar því sem aðrir eiga.
Því sem maður hefur stolið, fengið
lánað eða hefur ratað í rangar
hendur.
Í þessum þremur orðum felst
því þessi undirliggjandi hugmynd:
„Við eigum lyklana að stjórnar-
ráðinu. Sjálfstæðisflokkurinn á
stjórnarráðið.“
Hvers konar ranghugmyndum
þarf fólk að vera haldið, um lýð-
ræði, um eigin stað í tilverunni,
um hið stærra samhengi, til þess
að þykja svona hugmyndir bæði
sjálfsagðar og augljósar?
Það er ljótt að segja það, en firr-
ingin virðist vera alger. Ekki einu
sinni útsýnið úr baðkarinu útskýrir
hana samt.
Málefni?
Já, ég gleymdi þeim.
Sjálfstæðisflokkurinn sam-
þykkti vitaskuld fjölda ályktana
um stórt og smátt á lýðræðishátíð
sinni.
Skömmu eftir að hann hyllti
Jón Gunnarsson dómsmálaráð-
herra sérstaklega fyrir vasklega
framgöngu í því að fækka íbúum
landsins.
Samandregið má lýsa vilja
landsfundarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins svona:
Ríkið er ómögulegt í heilbrigðis-
málum. Einkavæðum meira.
Orkumál eru öll í ólestri.
Lausnin er að selja allt gillimojið,
bæði virkjanir og flutningskerfi.
Markaðurinn sér um þetta.
Markaðurinn er frábær.
Fækkum líka árum í skólagöngu,
styttum sumarfrí barna.
Þessi hugmynd er af sama meiði
og fékk Illuga Gunnarsson til að
stytta nám í framhaldsskóla um
fjórðung.
Það var ekki gert með hag barna
og ungmenna að leiðarljósi, þvert
á móti. Tilgangurinn var að efla
atvinnulífið og hagvöxtinn.
Við þurfum vitaskuld að vaxa.
Aðeins þannig stækka baðkörin á
Bakkaflötinni.
Sem er auðvitað sjálfstætt mark-
mið út af fyrir sig. n
*Gildir ekki um geisladiska
30%
afsláttur af hljóðbókum*
Notaðu afsláttarkóðann
STAKUR í kaupferlinu
á forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is
K
Y
R
R
Þ
E
Y
K Y R R Þ E Y
MORGUNBLAÐIÐ (UM ÞAGN ARMÚR)
„… meistari norrænu
spennusögunnar …“
LE FIGARO
„Glæpasagnahöfundur
í heimsklassa.“
THE SUNDAY TIMES
„Hann er fagmaður,
hann kann þetta.“
KB , K ILJAN (UM ÞAGN ARMÚR)
fórum látins manns finnur ekkjan lúna skammbyssu sem
hún hefur aldrei séð og fer með hana til lögreglunnar. Við
rannsókn kemur í ljós að byssan er morðvopn; með henni
var maður skotinn til bana í Múlahverfi fyrir mörgum áratugum
og málið upplýstist aldrei. Forvitnin grípur Konráð, fyrrverandi
lögreglumann, vegna sams konar byssu sem faðir hans átti og
leiðir hann á vit löngu liðinna atburða og tengsla sem fáir vissu
af. Og úr djúpi tímans birtist fleira en hann óraði fyrir.
Kyrrþey er vægðarlaus glæpasaga um þrúgandi þögn, heitar
tilfinningar og bannfærðar langanir.
rnaldur Indriðason hefur lengi verið vin-
sælasti höfundur landsins, heima og
heiman, og verk hans hafa verið þýdd
á tugi tungumála. Með Kyrrþey eru skáldsög-
ur hans orðnar tuttugu og sex talsins. Árið
2021 hlaut Arnaldur Verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar á degi íslenskrar tungu og fyrir
seinustu bók sína, Sigurverkið, var hann til-
nefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Í
A
E I N A R K Á R A S O N
O
p
ið
h
a
f
E
IN
A
R
K
Á
R
A
S
O
N
9 7 8 9 9 7 9 3 4 8 6 1 0
OPIÐ HAF er einstaklega mögnuð og grípandi frásögn
um ótrúlega mannraun.
Þegar fiskibát hvolfir úti á opnu hafi síðla kvölds í
vetrarmyrkri við suðurströnd Íslands er fátt sem getur
komið sjómönnunum um borð til bjargar; enginn björg-
unarbátur, engin fjarskipti, engin neyðarblys, ekki neitt.
Af skipverjunum fimm komast þrír á kjöl, hinir hverfa
í djúpið. Og þegar báturinn sekkur eiga þeir engan kost
annan en að leggjast til sunds og trúa því besta þótt óra-
langt sé til lands – heim til Eyja. En brátt er aðeins einn
þeirra eftir. Aleinn.
Einn maður andspænis algeru ofurefli, einn maður
syndandi á opnu hafi í nístingskulda og svartamyrkri.
Vonarglæturnar slokkna ein af annarri, félagarnir
hverfa út í náttmyrkrið, bátur fer hjá án þess að áhöfnin
verði vör við manninn í sjónum – hann syndir áfram,
syndir, syndir í örvæntingu …
EINAR KÁRASON segir hér á eftirminnilegan hátt
sögu af bráðum lífsháska og sterkum lífsvilja; Opið haf
er skáldsaga byggð á sönnum atburði eins og tvö seinustu
skáldverk hans, Stormfuglar og Þung ský. Þeim sögum
var báðum afar vel tekið, sú fyrrnefnda hlaut virt verð-
laun í Svíþjóð og Sunday Times valdi hana bestu bók
ársins 2020 í flokki þýddra skáldverka.
Um Stormfugla:
„Fullkomin nóvella …“
ágúst borgþór sverrisson / dv
„… margir lesendur munu ekki leggja
bókina frá sér fyrr en við sögulok, svo
spennandi er hún og vel mótuð.“
einar falur ingólfsson / morgunblaðið
„Að miðla þessu efni á svona meitlaðan
hátt – það er afrek.“
kolbrún bergþórsdóttir / kiljan
„… þessi saga er svo sannarlega
fagnaðarefni …“
úlfhildur dagsdóttir /
bokmenntaborgin.is
„Stórkostleg saga, þetta er bara
spennutryllir … mögnuð bók …“
frosti logason / x-ið 977
Um Þung ský:
„… grípur mann frá fyrstu blaðsíðu …“
páll egill winkel / morgunblaðið
„Ákaflega áhrifarík saga, vel sögð …
snerti verulega við mér og mér finnst Einar
svo ofboðslega góður sagnamaður.“
kolbrún bergþórsdóttir / kiljan
„Meitluð frásögn af sterkum tilfinningum,
lífi og dauða.“
kristján jóhann jónsson / fréttablaðið
EINAR KÁRASON hefur lengi verið í hópi
helstu rithöfunda landsins. Hann er mikill
sagnamaður og þekktastur fyrir kraftmiklar
skáldsögur en hefur einnig sent frá sér smá-
sögur, ferðasögur, ævisögur, ljóð, barnabækur
og kvikmyndahandrit. Hann hefur hlotið ýmis
verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín,
meðal annars verið tilnefndur fjórum sinnum
til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og
jafn oft til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Þau hlaut hann árið 2008 fyrir skáldsöguna
Ofsa sem er ein fjögurra bóka í rómuðum
Sturlungabálki hans. Eyjabækur Einars, Þar
sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan, eru meðal
vinsælustu íslenskra skáldsagna í seinni tíð
og upp úr þeim hefur verið gert leikrit, kvik-
mynd og söngleikur. Nýjustu skáldverk Einars
eru knappar og dramatískar sögur byggðar á
sönnum atburðum og hafa hlotið afar góðar
viðtökur; Stormfuglar og Þung ský. Nú bætist
Opið haf við þann flokk. Skáldsögur Einars
hafa verið gefnar út víða erlendis.
RAGNA SIGURÐARDÓTTIR
Ragna Sigurðardóttir var tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna fyrir fyrstu skáldsögu sína,
Borg, og hefur síðan hlotið verðskuldaða athygli
fyrir sögur sínar. Smásagnasafnið Vetrargulrætur
hlaut einróma lof gagnrýnenda árið 2019.
„Tónninn er hæglátur en undiraldan gríðar-
sterk … lesandinn fylgist dáleiddur með eins
og í spennusögu.“MARÍANNA CLARA LÚTHERSDÓTTIR / VÍÐSJÁ
(UM VETRARGULRÆTUR)
UM VETRARGULRÆTUR:„Ragna kemur með skapandi og litríkan blæ
inn í íslensku bókmenntaflóruna og með
Vetrargulrótum minnir hún okkur á hvað
smásagnaformið getur verið heillandi.“
ERLA MARÍA MARKÚSDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ
„Bókin er í senn heildstæð og fjölbreytt. Veitir
í senn innsýn í nútímalíf og tíðaranda fyrri
tíma og sýnir jafnframt að mannshjartað
slær með sama hætti á öllum tímum. Fram-
úrskarandi smásagnasafn.“
ÁGÚST BORGÞÓR SVERRISSON / DV
UM VINKONUR:
„Vinkonur er falleg og áleitin saga sem snertir
við lesandanum á mörgum stöðvum.“
BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR / FRÉTTABLAÐIÐUM BÓNUSSTELPUNA:
„Bónusstelpan er glimrandi bók; hún er hröð,
spennandi og fjarskalega vel stíluð.“
HRAFN JÖKULSSON / VIÐSKIPTABLAÐIÐ
UM HIÐ FULLKOMNA LANDSLAG:„Þetta finnst mér mjög fín bók ... látlaus á
yfirborðinu en þarna býr margt undir niðri.
Þannig gerð að hún situr í manni eftir
lesturinn.“KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR/ KILJAN, RÚVUM STRENGI:
„Ragna Sigurðardóttir lýsir innra lífi persón-
anna af miklu innsæi ... [sagan er] skrifuð
af leikni og næmleika.“
FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐUM SKOT:
„Hún er vel byggð, fangar athygli lesandans
strax í byrjun og heldur henni vandræðalaust
allt til loka.“ÞRÖSTUR HELGASON / MORGUNBLAÐIÐUM BORG:
„Tilfinningarnar þarf ekki að skýra mörgum
orðum, þær eru einfaldlega dregnar upp með
pensli og sýndar rétt eins og í málverki væru.
Glæsilegu málverki.“SIGRÍÐUR ALBERTSDÓTTIR / DV
Elsu langar að mála og að því stefnir
hún af miklum metnaði þótt fyrirmynd-
irnar séu fáar um miðja 20. öld. Eftir nám
í Handíðaskólanum í Reykjavík og list-
nám í Kaupmannahöfn er hún komin til
Parísar og ekkert skal standa í vegi fyrir
framtíðardraumum hennar. Hún ætlar
sér að fá boð um einkatíma hjá frægasta
kennara borgarinnar og hún skal fá að
sýna verk sín í flottustu galleríunum.
En það krefst fórna. Þetta rauða, það er
ástin dregur upp áhrifaríka mynd af ungri
konu sem berst fyrir því að láta drauma
sína rætast en ber eftir það sár sem hún
getur ekki nefnt við nokkurn mann.
Þetta rauða, það er ástin
R
A
G
N
A
SIG
U
R
Ð
A
R
D
Ó
T
T
IR
9 7 8 9 9 7 9 3 4 4 9 3 3
FÖSTUDAGUR 11. nóvember 2022 Skoðun 13FréttaBlaðið