Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 16
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
Á Íslandi hefur alltaf verið mikill
munur á atkvæðavægi kjósenda.
Lengst af var munurinn marg-
faldur en breytingar á stjórnarskrá
árið 1999 tryggðu að hann gæti
ekki orðið meira en tvöfaldur. Það
er löngu tímabært að taka næstu
skref og jafna atkvæðavægið frekar.
Í þeim tilgangi hef ég lagt fram
frumvarp um breytingu á kosn-
ingalögum. Af mörgum ástæðum
er brýnt að það nái fram að ganga.
Mikilvægt réttlætismál
Enginn vafi er á því að jafnræði fólks
til að hafa áhrif með atkvæðisrétti
sínum er meðal grundvallaratriða
lýðræðisins. Líkt og stendur raunar
skýrum orðum í stjórnarskrá. Þess
vegna er nauðsynlegt að leiðrétta
það misvægi atkvæða sem enn ríkir
milli kjósenda. Það er risastórt rétt-
lætismál og í senn mikilvægur liður
í því að tryggja pólitíska sátt í sam-
félaginu.
Þetta snýst þó ekki bara um
jöfnuð milli kjördæma. Því jöfnuður
milli þingflokka hefur heldur ekki
náðst á síðustu árum. Með öðrum
orðum hefur ekki tekist að úthluta
þingsætum í samræmi við lands-
fylgi f lokkanna. Í síðustu fernum
kosningum hafa tveir stærstu
f lokkarnir þannig fengið einum
þingmanni meira en þeir ættu að
fá. Nú þegar flokkum hefur fjölgað
allverulega eru jöfnunarsætin ein-
faldlega of fá til að jafna hlut þeirra
á landsvísu.
Markmið frumvarpsins er tví-
þætt. Annars vegar að gera vægi
atkvæða milli kjördæma eins jafnt
og stjórnarskrá heimilar. Hins vegar
að tryggja að sem fyllst samræmi sé
með þingmannatölu og atkvæða-
fylgi hvers þingflokks. Með öðrum
orðum er markmið frumvarpsins
að tryggja bæði kjósendajöfnuð og
f lokkajöfnuð. Það er gert með því
að fjölga jöfnunarsætum og fækka
kjördæmissætum, eins og hægt er
innan ramma stjórnarskrár.
Ísland eftirbátur Evrópuríkja
Við eigum langt í land með að
tryggja það jafnræði sem þykir boð-
legt í nútímasamfélagi. Á Norður-
löndunum er nánast ekkert mis-
vægi atkvæða og almennu mörkin í
Evrópu eru langt undir því sem við
þekkjum á Íslandi. Þar hafa ríkin
líka tryggt nauðsynlegar umbætur.
Nú er tímabært að Ísland fylgi þeirri
þróun sem hefur verið ráðandi í
kring síðustu áratugi.
Þessi sjónarmið komu meðal
annars fram í umsögn sem Ólafur
Harðarson, fyrrum stjórnmála-
fræðiprófessor, sendi stjórnskip-
unarnefnd Alþingis vegna frum-
varpsins. Jafnframt nefndi Ólafur
hversu mikilvægt væri að breyta
kosningalögunum fyrir næstu
Alþingiskosningar og mælti þess
vegna með samþykkt frumvarpsins.
Rétt eins og stærðfræðingurinn Þor-
kell Helgason gerði í sinni umsögn
við frumvarpið.
Í umsögn Þorkels kom fram að
búast megi við því að fjölgun jöfn-
unarsæta geri kerfið stöðugra og
ónæmara fyrir smávægilegum
atkvæðabreytingum. Því yrðu
minni líkur á að hringekjan í síðustu
Alþingiskosningum endurtæki sig.
Loks benti Þorkell á að samþykkt
frumvarpsins myndi létta róðurinn
þegar kæmi að frekar endurbótum í
gegnum stjórnarskrá.
Frumvarpið boðar nauðsynlegar
og löngu tímabærar breytingar á
kosningakerfinu, líkt og Ólafur og
Þorkell nefndu í sínum umsögnum.
Enn fremur sögðu þeir breyting-
arnar skýrar og vel útfæranlegar.
Í umsögn Landskjörstjórnar var
aðferðafræði frumvarpsins einnig
sögð skýr. Þá var tekið fram að engar
tæknilegar hindranir stæðu í vegi
fyrir framkvæmd hennar.
Frumvarpið brýn réttarbót
Frumvarpið stígur stórt skref í átt
að jöfnu atkvæðavægi. Raunar svo
stórt að fullur jöfnuður milli f lokka
yrði nær örugglega tryggður. Niður-
stöður úr kosningahermi sýna til
dæmis að fullur jöfnuður næðist
í 99 af hverjum 100 skiptum. Þó
jöfnunar sætin yrðu f leiri myndu
kjördæmaúrslit samt ekki raskast
meira en nú, líkt og fram kom í
umsögn Þorkels Helgasonar.
Sömuleiðis yrði atkvæðavægi
kjósenda nær alveg jafnt. Frum-
varpið getur að vísu ekki tryggt
fullan jöfnuð milli kjördæma. Það er
ekki hægt nema með því að afnema
kjördæmaskiptingu í stjórnarskrá.
Umræðu um það þarf að taka síðar í
tengslum við endurskoðun stjórnar-
skrár. Þá vegferð styð ég líka heils-
hugar. Þær breytingar myndu samt
skila sér of seint, ekki fyrr en í þar-
næstu kosningum, eða jafnvel síðar
miðað við stöðuna í dag. Málið þolir
ekki slíka bið.
Í grunninn spurning um lýðræði
Brýnt er að gera þær breytingar sem
hægt er innan almennra laga, eins
og frumvarpið leggur til. Með sam-
þykkt þess kæmi leiðrétting strax
til framkvæmda. Þingmönnum ber
skylda til að tryggja slíkar umbæt-
ur á kosningakerfinu. Því að öllu
óbreyttu er jafn réttur kjósenda til
pólitískra áhrifa ekki tryggður. Það
á ekki að líðast í lýðræðissamfélagi
eins og okkar. Nú reynir á þingheim
að tryggja framgöngu málsins og
sýna þannig stuðning sinn við lýð-
ræðið. n
Atkvæði á hálfvirði
Í síðustu fernum
kosningum hafa tveir
stærstu flokkarnir
þannig fengið einum
þingmanni meira en
þeir ættu að fá. Dómar eru margvíslegir, eins og
segir í ljóði Jóhannesar frá Kötlum.
Dómar heimsins dóttir góð
munu reynast margvíslegir.
Glímdu sjálf við sannleikann
hvað sem hver segir.
Í orðabók segir að fordómar séu
harðir dómar með óvild, t.d. gagn-
vart ákveðnum hópi manna eða
málefna. Þetta kannast fatlað
fólk við. Í gegnum ár og aldir hafa
ákveðnir hópar ekki fengið að taka
þátt í samfélaginu til jafns við aðra,
heldur verið jaðarsettir.
Sannleikurinn er sagna bestur en
hver er sannleikurinn? Við þurfum
að líta inn á við til að finna hann
og skoða hjarta okkar eins og við
værum að f lysja lauk. Það getur
verið sársaukafullt en aðeins þann-
ig getum við komist að kjarna for-
dómanna. Hvar leynast þeir og
hvers vegna? Aðeins upplýsing og
fræðsla geta feykt þeim burt og samt
yrði leiðin löng og ströng.
Í samningi Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) segir
meðal annars: „Hugtakið fötlun er
breytingum undirorpið, og að rekja
má fötlun til víxlverkunar milli ein-
staklinga með skerðingar og við-
horfstengdra tálma og umhverfis-
hindrana sem koma í veg fyrir fulla
og virka þátttöku þeirra í samfélag-
inu á jafnréttisgrundvelli.“ Þekking
og skilningur skila miklu en um leið
þurfum við enn fremur að viður-
kenna að fatlað fólk er sundurleitur
hópur. Hver manneskja er einstök
og sérstök og hefur orðið fyrir ólíkri
reynslu og upplifun og það sama á
við um fatlað fólk.
Dr. Ármann Jakobsson, kennari
við Háskóla Íslands, hefur nokkuð
beint sjónum sínum að illmennum
og skúrkum í af þreyingarbók-
menntum og -kvikmyndum, allt
frá Ríkharði III. Englandskonungi til
glæpamannanna sem James Bond
þarf að kljást við í kvikmyndum
nútímans.
Oft virðist líkamleg fötlun fara
saman við illt innræti í skáldskap.
Mörg skrímsli fornbókmennta og
þjóðsagna minna á mannverur sem
eru á einhvern hátt afskræmdar og
jafnvel þegar hinn fatlaði verður
hetja sögunnar, eins og krypp-
lingurinn Quasimodo í verki Victors
Hugo, þá hefur hann samt sem áður
eðli skrímslis.“ Heimsmyndin er því
einfölduð og slíkar birtingarmyndir
fyrri tíðar og nútímans geta skaðað
líf fatlaðra.
Fatlað fólk þekkir fordóma á eigin
skinni, en erum við fordómalaus og
umburðarlynd gagnvart öðrum
þjóðfélagshópum, þjóðum og
menningu? Ég held ekki. Að viður-
kenna fordóma sína er góð byrjun
á því að vinna með þá til fordóma-
leysis, kafa ofan í kjölinn. En aðeins
ef við höfum sannleikann áður-
nefnda að leiðarljósi. Það er þungt
að bera óvild í garð annarra og þó
ekki væri nema fyrir það eitt ættum
við að afleggja hana. Lifum því for-
dómalausu lífi, bæði í okkar eigin
garð og annarra. Það er einfaldlega
fordæmalaust skemmtilegra. n
For-dómar
Hver manneskja er
einstök og sérstök og
hefur orðið fyrir ólíkri
reynslu og upplifun
og það sama á við um
fatlað fólk.
Umhverfisváin sem vofir yfir okkur
er mikil og margþætt. Vistkerfi
hrörna á miklum hraða, höfin eru
mettuð af plastögnum, og ofsaveður
færist í vöxt samhliða hlýnun jarð-
ar. Taka þarf á hverju einasta vanda-
máli ef framtíðina skal tryggja.
Miklar breytingar fylgdu heims-
faraldinum, en þar á meðal er mikil
aukning í verslun fatnaðar á netinu.
Samkvæmt skýrslu frá PwC eru um
30-40% af fatnaði sem keyptur er
í gegnum netið, skilað. Að auki er
talið að smásalar hendi yfir 25%
af skiluðum fatnaði, og samkvæmt
rannsókn McKinsey eru 70% skila
vegna þess að f líkin hentar ekki
líkamsbyggingu neytandans.
Tilkoma háhraðatísku (e. „ultra
fast fashion“) hefur einnig gert það
að verkum að líftími fatnaðar hefur
styst, og hver f lík er að meðaltali
notuð 7-10 sinnum áður en hún
endar annaðhvort á sorphaug eða
í hafinu. Í Vestur-Afríkuríkinu
Gana eru heilu strendurnar þaktar
af fatahrúgum sem hefur skolað á
land, en það er talið vera einungis
brot af þeim fatnaði sem liggur á
sjávarbotni rétt við strendur lands-
ins með tilheyrandi áhrifum á vist-
kerfi. Það kemur því ekki á óvart að í
skýrslu UNECE eru 85% af allri vefn-
aðarvöru sögð enda á haugunum ár
hvert. Tískuiðnaðurinn ber ábyrgð á
10% allrar kolefnislosunar í heimin-
um, og samkvæmt World Economic
Forum hefur hann að minnsta kosti
tvöfaldast að stærð frá árinu 2000.
En hvar standa Íslendingar þá
þegar kemur að kaupum, endur-
nýtingu, og urðun fatnaðar? 76,8%
Íslendinga versluðu á netinu síðast-
liðið ár, samkvæmt könnun Gallup.
Meðal Íslendingurinn kaupir 17kg
af vefnaðarvöru ár hvert, þrefalt á
við meðaltal á heimsvísu. Árið 2021
henti hann svo 11,5 kg af textíl og
skófatnaði, en samkvæmt stefnu
Umhverfisráðuneytisins í úrgangs-
forvörnum er miðað við að talan
fari ekki yfir 10 kg á ári. Um 60%
þess sem er hent, endar svo í ann-
aðhvort urðun eða brennslu. Að
lengja líftíma fatnaðar skiptir því
sköpum til að draga úr neikvæðum
umhverfisáhrifum.
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið
Rebutia (CateCut) var stofnað með
þennan vanda í huga. Rebutia er
að þróa framúrskarandi hugbúnað
sem greinir bæði föt og notendur
ítarlega út frá líkamsbyggingu, lit-
greiningu, og stíl. Með því getur
notandinn auðveldlega fundið
fatnað sem hentar eigin líkama og
passar við fatnað sem hann á fyrir.
Nálgun verkefnisins er nýmæli á
heimsvísu og er það bæði mun ítar-
legra og nákvæmara en núverandi
lausnir á markaði. Sýnt hefur verið
fram á virkni hugbúnaðarins í not-
endaprófunum og mikil vinna verið
lögð í að finna bestu nálgunina til
að þróa sjálfvirka fatasamsetningu.
Sérstaða Rebutia felst í að hjálpa
viðskiptavinum að auka nýtni
núverandi fatnaðar, kaupa föt á net-
inu sem passa, draga úr skilum, og
minnka magn fatnaðar sem endar
í urðun.
Rebutia hlaut Sprotastyrk Rannís
2020, og hlaut aðalverðlaun Å Pitch
keppninnar sem haldin var í Finn-
landi fyrir nýsköpunarfyrirtæki
sem auka sjálfbærni. Fyrsta útgáfa
snallsímaforrits sem notast við
þessa tækni mun fara í loftið á fyrstu
mánuðum 2023 og er afrakstur 3 ára
rannsóknar- og þróunarvinnu. Full-
gert mun forritið geta valið fatasam-
setningar og fylgihluti sem henta
hverjum notanda fyrir sig, og eftir
því sem viðkomandi notar kerfið
og þróar eigin stíl, mun forritið læra
inn á breytta hegðun og laga sig að
þörfum notandans.
Ljóst er að þörf er á miklum breyt-
ingum til að snúa við neikvæðri
þróun undanfarinna ára í tísku-
iðnaðinum og stefnir Rebutia á að
draga úr urðun fatnaðar á Íslandi
um allt að 5 milljón kg yfir tíu ára
tímabil með beitingu gervigreindar.
Metnaðurinn er vissulega mikill, en
vandinn er mun stærri, og verðum
við því öll að leggja hönd á plóg. n
Framlenging á líftíma fatnaðar með notkun gervigreindar
Meðal Íslendingurinn
kaupir 17 kg af vefn-
aðarvöru ár hvert,
þrefalt á við meðaltal á
heimsvísu.
Anna
Gunnarsdóttir
stofnandi Rebutia
Heiðrún Ósk
Sigfúsdóttir
framkvæmda-
stjóri og stofnandi
Rebutia
Unnur H.
Jóhannsdóttir
blaðamaður
16 Skoðun 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFréttAblAðið