Fréttablaðið - 11.11.2022, Síða 20
Verkið Nýr heimur er fjórða sería
af röð óhefðbundinna örverka
sýninga sem saman kallast: Ég
býð mig fram. Unnur Elísabet er
hugmyndasmiðurinn og leikstjóri
verkanna. Í þessari fjórðu seríu
býður Elísabet sjö ólíkum lista
mönnum í dúett á móti sér þar sem
þau tvinna saman ólík listform
eins og leiklist, myndlist, tónlist og
sirkuslistir.
„Ég býð mig fram er örverkahá
tíð sem ég er að halda núna í fjórða
sinn. Í þetta sinn bauð ég frábæru
listafólki til samstarfs. Við sýnum
sjö ólíka tíu mínútna dúetta sem
saman mynda heildstætt verk. En
ég bæði leikstýri og er partur af
öllum dúettunum,“ útskýrir Unnur
Elísabet.
Annalísa Hermannsdóttir sér
um hljóðheiminn í sýningunni
og situr fyrir svörum með Unni
Elísabetu.
„Annalísa skapar heildræna sýn
með tónlistinni. Svo syngur hún
líka eins og engill,“ segir Unnur
Elísabet.
„Annalísa er mjög áberandi í
sýningunni og birtist í mörgum
senum. Fólk má alls ekki missa af
þessari englarödd,“ bætir hún við
og Annalísa hlær.
„Ég tengi saman þessi örverk
með tónlistinni,“ segir Annalísa.
„En svo er ég líka hluti af einum
dúett. Við erum með tónlistar
dúett á sýningunni. Við gáfum út
tónlistarmyndband fyrir mánuði
síðan við lag sem heitir Nýr heim
ur. Þetta er rosalegt popppartílag
sem fjallar um tilgang lífsins og við
flytjum það í sýningunni.“
Annalísa og Unnur Elísabet
segja að sameiginlegur þráður í
öllum dúettunum sé þemað nýr
heimur. En þaðan kemur nafnið á
sýningunni.
„Verkin tengjast öll þessu þema.
Bæði á persónulegum skala en líka
á hnattrænum skala, eða í stærra
samhengi,“ segir Annalísa og
Unnur Elísabet tekur við:
„Við erum að fjalla um nýjan
heim út frá ýmsum sjónarhornum.
Til dæmis hvað heimurinn breytist
mikið þegar þú eignast barn. Við
fjöllum um ástina og hvað allt
breytist við skilnað. Við erum að
tala um framandi slóðir …“
„Og hvernig hægt er að skapa
nýjan heim með öðrum sam
skiptamynstrum,“ skýtur Annalísa
inn.
„Já, nákvæmlega. Við erum líka
að tala um heimsenda, bókstaf
legan heimsenda,“ segir Unnur
Elísabet og þær hlæja báðar.
Smáréttahlaðborð
„Þetta verk er ein allsherjarveisla.
Fyrir áhorfendur er þetta eins
og að mæta á smáréttahlaðborð.
Þér leiðist ekki í eina sekúndu því
þú færð alltaf eitthvað nýtt. Þú
mætir bókstaflega í afmælisveislu
þegar þú mætir á svæðið, og það er
ýmislegt sem gerist. En ég vil ekki
segja frá öllu því eitthvað verður
að koma á óvart. Það er nefnilega
ýmislegt sem kemur á óvart í þess
ari sýningu,“ segir Unnur Elísabet
dularfull.
„En þarna má heyra afmælis
söngva og sjá óperusöngkonur
hoppa upp úr köku, þarna eru
óléttir karlmenn og tár úr speglum
og svífandi fólk. Sem sagt alls
konar skemmtilegt.“
Unnur Elísabet segir að hug
myndin að þemanu hafi sprottið
út frá öllu því skrýtna sem er að
gerast í heiminum í dag.
„Það er mikil undirliggjandi ólga
í heiminum núna og stríð. Þessi
hugmynd spratt fram í heimsfar
aldrinum. Ég fór að hugsa um hvað
væri að gerast í heiminum og hvað
ég myndi óska að heimurinn væri
fallegri og betri. Það er mikil von
og fegurð í þessu verki. Markmiðið
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Þær Unnur og Annalísa eru spenntar fyrir frumsýningunni í kvöld og vona að áhorfendur fari heim með gleði í hjarta. FRéttABLAðið/ERniR
Hópurinn sem tekur þátt í sýningunni ásamt þeim Unni Elísabetu og Önnulísu, en í heild vinna 13 manns að sýningunni.
er að senda fólkið út með gleði i
hjarta.“
Eins og fram hefur komið hefur
Unnur Elísabet fengið sjö lista
menn til að flytja dúetta á móti
sér á sýningunni. Hún auglýsti
eftir listafólki til að taka þátt í
verkinu með sér og varð að velja úr
umsóknunum.
„Ég fékk fjöldann allan af
umsóknum og það var mjög erfitt
að velja. En ég valdi náttúrulega
bara „crème de la crème“,“ segir
hún og Annalísa og Unnur Elísabet
skella báðar upp úr.
Þannig að verkið er þá eitthvað
alveg stórfenglegt sem fólk má alls
ekki missa af?
„Ég myndi segja það. Þetta er
öðruvísi leikhúsupplifun. Það er
annað form að sjá svona örverka
sýningu, það er enginn annar að
gera það. Þú slærð nokkrar flugur
í einu höggi með því að mæta á
þetta verk því þarna færðu að sjá
sirkuslistaverk, myndlistarverk,
dansverk og leikverk. Þú færð svo
margt á einni kvöldstund,“ segir
Unnur Elísabet.
„Þetta er eins og árskort,“ segir
Annalísa.
„Já, þetta er eins og árskort í
leikhús á einni kvöldstund,“ segir
Unnur Elísabet.
„Já, þú getur bara klárað þetta á
einu bretti,“ bætir Annalísa við og
hlær.
Svo ef fólk fer á þessa sýningu
þá þarf það ekkert að fara oftar í
leikhús á árinu?
Þær hlæja báðar og Unnur Elísa
bet segir: „Jú, jú, ég vil alltaf hvetja
fólk til að fara í leikhús.“
Fyndin og hjartnæm
„Ég gerði beinagrind að sýning
unni áður en ég hitti fólk. Svo
mæti ég mismunandi listafólki,
leikurum, myndlistarfólki, döns
urum, sirkusfólki og tónlistar
fólki og þá byrjar samsköpunin.
Boltinn kastast á milli og fólk er
að skrifa saman og pæla saman,“
segir Unnur Elísabet spurð að því
hvernig verkin voru samin.
„Ég náði að vera mikið með í
sköpuninni þannig að tónlistin
varð til á sama tíma og verkin en
ekki eftir á. Það var mjög næs að
gera það þannig,“ segir Annalísa.
Unnur útskýrir að dúettarnir
séu mjög ólíkir innbyrðis. „Sum
verkin eru mjög fyndin, önnur
mjög hjartnæm og ljóðræn og svo
er sirkuslistaverkið mjög ólíkt því
sem hefur sést áður.“
Þar sem Unnur Elísabet leik
stýrir sýningunni og er líka í öllum
dúettunum segist hún vera fegin
að vera með aðstoðarleikstjóra úti
í sal, en Ellen Margrét Bæhrenz er
aðstoðarleikstjóri sýningarinnar.
„Ég er rosalega mikið í hraða
skiptingum. Ég þarf að hoppa úr
einu í annað. Ég er stundum alveg
sveitt að reyna að troða mér í ein
hverjar leðurbuxur á milli atriða,“
segir Unnur Elísabet hlæjandi.
„Þess vegna er frábært að hafa
Ellen Margréti úti í sal og að hafa
Önnulísu með mér í þessu. Þetta
er frábær hópur, ég gæti ekki verið
þakklátari fyrir hópinn sem er
með mér í þessu.“
Eins og áður kom fram er
sýningin Nýr heimur fjórði hluti
af röð örverkasýninga sem Unnur
Elísabet hefur sett upp. En hún
segir að þetta verði líklega ekki sú
síðasta.
„Planið er að vera með „grand
finale“. Þetta verður eiginlega að
enda í fimmu. Það er svo asnalegt
að rétt upp hönd og vera með fjóra
fingur á lofti. Þeir verða eigin
lega að vera fimm,“ segir hún. Þær
Annalísa hlæja báðar og eru sam
mála um að fimm sé miklu flottari
tala en fjórir.
Góður kvíði
Unnur Elísabet og Annalísa eru
báðar spenntar fyrir frumsýning
unni sem verður í Tjarnarbíói í
kvöld en að baki liggja langar og
strangar æfingar og langt sköp
unarferli.
„Það er kominn smá kvíði í
magann, en góður kvíði,“ segir
Unnur Elísabet.
„Það er kominn algjör frumsýn
ingargalsi í mig, ég er bara hopp
andi glöð,“ skýtur Annalísa inn í og
Unnur Elísabet heldur áfram:
„Þetta er svo stór sýning. Þetta
eru svo mörg verk og mikið af
hraðaskiptingum. Það er mikið
af tæknilegum hlutum sem þurfa
að ganga upp þannig að það er
svona smá hnútur í maganum,
en ég hugsa að þetta smelli allt að
lokum.“
Að lokum bæta þær við að hægt
sé að nálgast miða á sýninguna á
Tix.is og finna nánari upplýsingar
á bæði Facebook og Instagram
síðu sýningarinnar. n
Við gáfum út
tónlistarmynband
fyrir mánuði síðan við
lag sem heitir Nýr heim-
ur. Þetta er rosalegt
popp-partílag sem fjallar
um tilgang lífsins.
Annalísa Hermannsdóttir
Þarna nærðu að sjá
sirkuslistaverk,
myndlistarverk, dans-
verk og leikverk. Þú færð
svo margt á einni kvöld-
stund.
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
2 kynningarblað A L LT 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR