Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.11.2022, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 11.11.2022, Qupperneq 26
Tónlistarmaðurinn og fatahönnuðurinn Gunnar Hilmarsson, sem flestir þekkja undir nafninu Gunni Hilmars, gefur sér alltaf tíma til að sinna húð og hári og passar upp á mataræðið og hreyfingu með það fyrir augum að líta vel út og líða betur. gummih@frettabladid.is „Ég hugsa svakalega vel um hárið og húðina,“ segir Gunni. „Ég ætla nú bara að vitna í fótboltakapp- ann David Beckham. Strákarnir í Manchester United voru alltaf að gera grín að honum í klefanum vegna þess að hann var alltaf með fullt af „hárstöffi“, kremum og alls konar snyrtidóti. Þeim fannst hann eitthvað hégómlegur með þetta en Beckham sagði við félaga sína: „Strákar, við skulum bara hittast þegar við verðum orðnir sextugir og bera okkur saman þá.“ Ég hef alltaf passað upp á að eiga krem og stelst í þau hjá stelpunum sem ég bý með. Ég nota þessi krem á andlitið og er afar duglegur að drekka vatn sem ég tel lykilinn að til dæmis góðri húð. Þá er ég dug- legur að hreyfa mig og halda mér í góðu formi,“ segir Gunni, sem hefur um árabil starfað í tísku- og fatahönnunargeiranum. Hann stofnaði svo hljómsveitina Syca- more Tree fyrir nokkrum árum þar sem hann hefur slegið í gegn ásamt söngkonunni Ágústu Evu Erlends- dóttur. Þá er hann einnig yfir- hönnuður hjá Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar. Um umhirðu hársins sem flestir taka eftir þegar þeir rekast á Gunna segir hann: „Í fyrsta lagi passa ég upp á að taka mikið af vítamínum og ég tek kollagen. Eftir að ég byrjaði að taka inn kolla- genið reglulega finn ég rosalega mikinn mun. Hárið verður ein- hvern veginn betra. Það er líflegra og þykkara og ég mæli með því fyrir karlmenn að taka vítamín og kollagen. Ég nota líka alltaf góð efni til að setja í hárið og ég fer reglulega í klippingu. Þó svo að ég sé ekki að láta skerða mikið af hárinu þá er gott að opna endana í því og fjarlægja allt slit. Þegar maður er með sítt hár og er karlmaður þá er oft gert grín að mér heima þegar ég er að greiða hárið. Þá byrja ég alltaf efst og síðan ríf ég það niður. En ég er að reyna að læra það að byrja neðst og fara upp þannig að maður rífi ekki af sér allt hárið. Ég nota gel í hárið þar sem ég er með liðað og krullað hár og fæ góðar ráðleggingar hjá rakaranum vegna þess að það er mikil framþróun í öllu sem við- kemur hári,“ segir Gunni. Hann segist passa upp á hár- þvottinn. „Sjampó þurrkar hárið svakalega mikið svo það verður að fara sparlega með það og því þvæ ég hárið á þriggja daga fresti og nota þá hárnæringu. Ef hár er þvegið daglega verður það dautt og líflaust,“ segir Gunni sem af og til lætur setja lit í hárið. „Yfir sumar- tímann læt ég dekkja það því í sólinni á sumrin verður hárið afar ljóst á mér. Yfir vetrartímann læt ég svo lýsa það til þess að halda því jöfnu. Ég pæli ansi mikið í þessu,“ segir Gunni. Lífsstíll og mataræði Gunni segir að frá unglingsaldri hafi hann byrjað að nota andlits- krem. „Maður var kannski aðeins að læðupokast með þetta þegar ég var unglingur en núna hefur orðið breyting á. Menn eru að opna sig með þetta og umræðan er meiri. Í staðinn fyrir það að skella á sig rakspíra eða herrailmvötnum þá er maður farinn að nota meira af til dæmis skeggolíum. Olían er mjög góð fyrir húðina. Hún þarf að fá sína næringu en allt byrjar þetta og endar með lífsstíl og mataræði,“ segir Gunni. Spurður hvort hann fari á snyrti- stofur segir hann: „Nei, af því að ég er aldrei í neinum vandræðum með húðina. Ég fór á snyrtistofur sem unglingur þegar ég var með bólur. Þá lét ég hreinsa húðina Reynir að halda í unga og fríska útlitið Gunni segist hugsa svakalega vel um hárið og húðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK því ég vildi ekki enda með ör í andlitinu eftir unglingabólurnar. Mér var ráðlagt af snyrtifræðing- unum að drekka mikið vatn, borða hreinan og hollan mat og sneiða sem mest frá því að borða sykur og sætindi. Ég hef reynt að fylgja þessum ráðum en kannski það eina sem ég hef ekki fylgt er að vera ekki mikið úti í sólinni. Ég elska að vera í sól. Ég veit að það er ekki gott fyrir húðina en ég geri það nú samt en er duglegur að nota sólarvörnina. Maður reynir að halda í unga og fríska útlitið þrátt fyrir að vera orðinn 50 ára gamall. Ásamt því að drekka nóg af vatni, hreyfa sig reglulega og borða hollan mat þá er góður svefn stórt atriði í að halda góðri húð og minnka hrukkur og ellimörk,“ segir Gunni. n Ég hef alltaf passað upp á að eiga krem og stelst í þau hjá stelp- unum sem ég bý með. Gunnar Hilmarsson Heimkaup er framsækin íslensk netverslun og jafn- framt sú stærsta sem starfar hérlendis. Markmið Heim- kaupa er að auðvelda við- skiptavinum innkaupin fyrir heimilið og vinnustaðinn. Vöruúrvalið er fjölbreytt í matvöru, snyrtivöru, raftækjum, leikföngum, spilum og púslum, heimilisvörum, gæludýravörum, fatnaði og nú nýlega áfengi. „Í október 2021 hófum við sölu á snyrtivörum með áherslu á húð- vörur, förðunarvörur, hárvörur, ilmvötn og naglavörur. Slagorð herferðinnar var „Meikaðu það heima“. Móttökurnar hafa verið frá- bærar og við erum stöðugt að bæta við úrvalið hjá okkur,“ segir Jóna María Ásmundsdóttir, vörustjóri Heimkaupa. ,,Við teljum það mikil- vægt að bjóða upp á fjölbreytt úrval vörumerkja þannig að allir okkar viðskiptavinir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Meðal þeirra vörumerkja sem Heimkaup býður upp á eru L’oréal, Essie, Bobbi Brown, Maybelline, Marc Inbane, CeraVe, Thank You Farmer, Origins, Real Techniques, Elizabeth Arden, Grande Cosme- tics, The Ordinary og Nip+Fab. „Nú fyrir jólin erum við með fjölbreytt úrval af gjafaöskjum sem er alltaf vinsælar í jólapakkann,“ segir Jóna María. „Vinsælasta varan um þessar mundir er skemmtileg nýjung, StylPro-ísskápur fyrir snyrtivörur. Kaldar snyrtivörur hjálpa við að róa húðina, minnka sjáanlegar húðholur og hjálpa við þrota í húðinni. Singles’ Day er í fullum gangi hjá okkur og tilvalið að nýta tækifærið til jólagjafakaupa í dag,“ bætir hún við. Jóna María segir ávinninginn af Meikaðu það heima með Heimkaup Vöruhús Heim- kaupa eru troð- full af flottum snyrtivörum og tilvalið að nýta sér Singles’ Day- tilboðin til að gera góð kaup. Jóna María Ásmundsdóttir, vörustjóri Heimkaupa, segir úrvalið af snyrtivörum meira en nokkru sinni fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/vALLI Vörumerki á Heimkaup.is n L’oréal n The Ordinary n Wet Brush n Grande Cosmetics n Thank you farmer n StylPro n Gosh n Marc Inbane n Maybelline n CeraVe n Cosrx n Mario Badescu n Hairburst n Browgame n Glow Hub n St. Tropez n Bobbi Brown n Nip+Fab n Origins n Real Techniques n Briogeo n Garnier n Nanogen n John Frieda n Lee Stafford n Organix n Hask n Not your mother n Essie n OPI n Hawaiian Tropic n Bondi Sands n Childs Farm n Nivea n D:Fi Auk fjölda annara því að versla í netverslun felast að miklu leyti í auknum þægindum. ,,Viðskiptavinum okkar hefur fundist einfalt og þægilegt að panta snyrtivörur heim að dyrum, geta skoðað vöruúrvalið á vefnum og borið saman verð og lesið fróð- leik um vörurnar,“ segir Jóna María og nefnir einnig þann tímasparnað sem felst í því að komast hjá því að vera í umferð og bíða eftir afgreiðslu í troðfullum verslunum. „Ekki nóg með það, heldur koma innkaupapokarnir heim að dyrum, sem er náttúrulega algjör snilld, allt í einum smelli,“ segir hún og bætir við að pantanir séu afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og sendar út samdægurs með póst- inum á landsbyggðina. Einnig er hægt að sækja pantanir í afgreiðslu Heimkaupa, Smáratorgi 3. n Skoðaðu allt úrvalið á heimkaup.is 4 kynningarblað 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURSnyRtivöRuR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.