Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 28

Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 28
 Það er gaman að segja frá því að við erum að taka þátt í fyrsta sinn í vinsælum net- dögum. Við segjum loksins og hlökkum til að vera með í Singles’ day, Black Friday og Cyber Monday. Rakel og Lilja Hagkaup er með eitt mesta úrval snyrtivara hér á landi og stöðugt er unnið að upp- byggingu á deildunum. Hag- kaup býður yfir 25 þúsund vöruliði í snyrtivörudeildum og í vefverslun. Meðal þeirra eru nokkur merki sem ein- göngu eru seld í Hagkaup. Rakel Ósk Hreinsdóttir, vörustjóri snyrtivara í Hagkaup, segir að kappkostað sé að bjóða upp á gott úrval af snyrtivörum í verslun- unum. „Við bjóðum upp á snyrti- vörur í öllum Hagkaupsverslunum, misjafnt úrval þó eftir stærð verslunarinnar. Stærstu snyrti- vörudeildirnar eru í Hagkaup Smáralind og Kringlunni. Skeifan, Garðabær og Akureyri koma þar á eftir,“ segir hún. „Hagkaup er með stærstu snyrti- vöruverslun á Íslandi og við getum boðið viðskiptavinum allt frá grunnvöru eins og tannkremi og sjampó yfir í hágæða snyrtivörur og ilmi frá vinsælustu merkjum heims. Einnig eru nokkur snyrti- vörumerki sem eru eingöngu seld í Hagkaup eins og til dæmis Kiehl‘s og IT Cosmetics. Við erum með mjög fjölbreytt vöruúrval í húðumhirðu, förðunarvörum og ilmum. Við erum ávallt á tánum varðandi ný og spennandi vöru- merki og viljum bjóða viðskipta- vinum upp á það besta sem til er á markaðnum hverju sinni,“ upplýsir Rakel. Ný vefverslun Lilja Gísladóttir, sérfræðingur á markaðssviði Hagkaups, segir að starfsmenn séu ákaflega stoltir af nýrri vefverslun með snyrtivörur. „Viðskiptavinir kunna sannarlega vel að meta að geta verslað bæði í verslunum okkar og í vefverslun- inni. Það tók sinn tíma að byggja upp vefsíðuna og stöðugt verið að vinna að betrumbótum. Þetta er bara byrjunin á þeirri vegferð okkar,“ segir hún. Rakel bætir við að Hagkaup bjóði yfir 25 þúsund vöruliði í snyrtivöru. „Það er stöðugt púsluspil að koma öllum þessum spennandi vörum fyrir á þeim fermetrum sem við höfum úr að spila,“ segir hún. „Viðskiptavinir okkar ættu nánast í öllum tilfellum að finna vöru sem hentar þeim. Við erum að stofna og taka inn um það bil 4.000-5.000 vöruliði á hverju ári í snyrtivörudeildunum og á móti eru svo vörur að detta út við endurnýjun en nýjungar eru gríðarlega stór partur af upplifun hjá okkur.“ Fallegar jólavörur Nú er annasamur verslunartími að hefjast og Rakel og Lilja eru afar spenntar fyrir komandi vikum. „Jólin eru ótrúlega skemmtilegur tími og þá fáum við ógrynni af flottum gjafaöskjum í þeim vöru- merkjum sem við erum með í sölu allan ársins hring. Öskjurnar eru mjög veglegar og fanga augað. Það má segja að þær verða flottari með hverju árinu og viðskiptavinurinn fær aðeins meira fyrir peninginn með þessum kaupum. Það fylgir yfirleitt aðeins meira með þessum öskjum en ef þú værir að kaupa staka vöru,“ segja þær og bæta við að öskjurnar séu gríðarlega vinsælar. „Við sjáum að viðskipta- vinir kaupa jólaöskjur einnig fyrir sig því eins og fyrr hefur verið sagt þá eru þær mjög veglegar og fólk er yfirleitt að græða eitthvað auka með því að kaupa öskjuna.“ Afsláttardagar fram undan Hagkaup hefur alltaf verið með risa tax free daga í nóvember þar sem öll snyrtivara, leikföng og önnur sérvara fer á sérstakan afslátt. „Það er gaman að segja frá því að við erum að taka þátt í fyrsta sinn í vinsælum netdögum. Við segjum loksins og hlökkum til að vera með í Singles‘ day, Black Friday og Cyber Monday. Við erum svakalega spennt að taka þátt í þessum dögum og það er bara einn liður í uppbyggingunni á vefnum okkar,“ segir Lilja. Herrarnir meðvitaðir um umhirðu Rakel segir að það séu ekki bara konur sem komi í snyrtivörudeild- irnar því kauphegðun herranna hafi breyst á undanförnum árum. „Við sjáum miklar breytingar og karlar eru orðnir miklu meðvitaðri um húð- og skeggumhirðu heldur en áður. Þeir þora í dag að nota vörur eins og hyljara eða ljóma- krem til að draga úr baugum, blettum og gefa frískara yfirbragð. Karlmenn hafa alltaf verið dug- legir að kaupa sér góða ilmi en eru kannski núna farnir að prófa fleiri tegundir og vilja eiga fleiri en bara þennan gamla góða,“ segir hún. Rakel segir að það sé tilfinning starfsmanna í Hagkaup að við- skiptavinir séu mun meðvitaðri um vöruval en áður. „Þeir vita hvaða vörur henta þeim auk þess sem viðskiptavinir eru upplýstari um þau innihaldsefni sem eru í vörunum. Við tökum eftir því að nú eru það ekki endilega ákveðin merki sem eru vinsælli en áður heldur eru viðskiptavinir að fylgja straumum er varða innihaldsefni. Nú er til dæmis hýalúrónsýra og C-vítamín sérstaklega vinsæl innihaldsefni og snyrtivörufram- leiðendur eru með puttann á púls- inum með því að fylgja þessum straumum og margar förðunar- vörur innihalda þessi efni. Það má því segja að vitundarvakning hafi orðið gagnvart húðumhirðu og sé að skila sínu. Viðskiptavinir okkar kjósa að velja vörur sem henta þeirra húð og byggja svo ofan á þeirra grunni með öðrum förð- unarvörum enda skiptir húðum- hirðan lykilmáli.“ Fjölbreytt tíska Þegar þær eru spurðar hvort það séu tískusveiflur í snyrtivörum og hvað sé „heitast“ þessa daga, svara þær: „Tískan fer svo sannarlega í hringi í snyrtivörum eins og í öðru. Hún er gífurlega fjölbreytt og við sjáum innblástur af 90’s tískunni sem er mjög skemmtilegt. Það er mikið um krem, förðunarvörur, kinnaliti og eyeliner í alls kyns formi að koma sterkt inn. Það sem er kannski best við þessa tísku sem er ríkjandi er að það er ekkert eitt ákveðið í gangi heldur er í tísku að vera bara eins og maður er, mála sig mikið eða ekki neitt. Það sem er heitast ef svo má að orði komast er að vera þú sjálfur eða fara út fyrir kassann ef það hentar.“ Rakel segir það vera styrkleika Hagkaups hversu gott starfsfólk sé þar starfandi og bætir við: „Við reynum eftir fremsta megni að vera með starfsfólk sem er annað hvort menntað í snyrtifræði og/ eða förðun. Einnig erum við í miklu samstarfi við birgja sem margir hverja leggja okkur lið og eru með sérþjálfaða starfsmenn í þeirra vörumerkjum sem standa vaktina með okkur á gólfinu og gefa ráðleggingar. Það skiptir okkur öllu máli að veita framúr- skarandi þjónustu og lykillinn er starfsfólkið okkar.“ Umhverfið skiptir máli Mikið er lagt upp úr fallegu umhverfi í snyrtivörudeildum Hagkaups og unnið hefur verið að breytingum á þeim. „Það er rétt, við höfum staðið í tals- verðum breytingum, til dæmis í Skeifunni. Við leggjum mikinn metnað í umhverfið okkar og höfum undanfarið ár unnið að miklum breytingum í verslunum. Við höfum unnið náið með dönsku ráðgjafarfyrirtæki og erum þessa dagana að hrinda í framkvæmd ýmsum breytingum sem snúa að upplifun viðskiptavinarins. Þar skiptir umhverfið miklu máli og við erum spennt að frumsýna þær breytingar sem við höfum staðið í, má þar nefna snyrtivörudeildina í Hagkaup á Akureyri og í Skeifunni. Þar má sjá hvert við erum að stefna. Okkar markmið er að við- skiptavinir njóti sín í verslunum, upplifi eitthvað einstakt sem þeir gera ekki í öðrum verslunum og umfram allt að sú upplifun sé jákvæð.“ n Snyrtivörur eru góðar gjafir Rakel Ósk og Lilja hlakka til annasamra daga fram undan og sérstaklega stóru tilboðsdaganna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Strákar í dag vilja vera vel snyrtir og ilma vel. Ilmvatn er því kærkomið. Gjafakassar fyrir dömur og herra sem koma sér alltaf vel. Hvergi er meira úrval en hjá Hagkaup. Æðislegar jólagjafir fyrir stúlkur og konur fást í Hagkaup í mörgum gerðum. Í snyrtivörudeildum Hagkaups er mikið úrval ilmvatna fyrir dömur og herra. 6 kynningarblað 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURSnyrtivörur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.