Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 32
Þannig fáum við upplýsingar um hvar húð viðkomandi stendur í samanburði við jafnaldra sína. Agnes Eva Sandholt Sigurðardóttir Í verslun BIOEFFECT við Hafnartorg er boðið upp á vandaða húðmælingu fyrir gesti og gangandi. Mælingin er hluti af persónulegu dekri sem boðið er upp á í verslun- inni og gefur viðskiptavinum upplýsingar um ástand húðar sinnar. Út frá niðurstöðunum er hægt að veita sérhæfða ráðgjöf um vörur sem henta þörfum hvers og eins. „BIOEFFECT er íslenskt hugvit frá A til Ö. Fyrirtækið var stofnað af þremur íslenskum vísinda- mönnum árið 2010 þegar þeir uppgötvuðu, eftir um áratug af rannsóknum, byltingarkennda aðferð til að framleiða EGF prótín í byggplöntu. EGF er virkt boð- skiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og gegnir meðal annars mikilvægu hlutverki við framleiðslu og virkni kollagens og elastíns. Með aldrinum dregur verulega úr náttúrulegu magni EGF í húðinni. Þetta sértæka boð- skiptaprótín er því afar eftirsótt í húðvörur,“ upplýsir Anita Brá Ingvadóttir, sölustjóri BIOEFFECT á Íslandi. „BIOEFFECT er eina fyrirtækið sem hefur tekist að framleiða EGF í byggplöntu og nýta í húðvöru- framleiðslu. Fjölmargar rann- sóknir hafa sýnt fram á góðan árangur EGF úr byggi enda þekkir húðin prótínið, tekur vel á móti því og greiðir fyrir virkni þess í húð- vörum BIOEFFECT. Þetta er okkar sérstaða,“ segir Anita og bætir við: „Fyrsta varan okkar, EGF Serum, kom á markað árið 2010 og hefur verið í óbreyttri mynd síðan. Hún er margverðlaunuð og enn í dag okkar vinsælasta vara. Síðan hafa aðrar frábærar vörur bæst í vöru- línuna og við erum sannarlega stolt af þeim öllum. Við erum ekki síður stolt af þeirri staðreynd að BIOEFFECT vörurnar eru fram- leiddar á Íslandi og innihalda meðal annars hreint, íslenskt vatn.“ Eina verslun sinnar tegundar Í dag starfar BIOEFFECT á 28 mörkuðum víðs vegar um heim- inn, en eina BIOEFFECT verslunin er á Íslandi. „Við erum virkilega hreykin af fallegu versluninni okkar. Þar gefst okkur tækifæri til að veita gestum framúrskarandi þjónustu og þessa einstöku upplifun sem við viljum að allir viðskiptavinir BIOEFFECT fái. Í versluninni starfa sérfræð- ingar undir leiðsögn Agnesar Evu, verslunarstjóra. Þetta sérhæfða teymi sér til þess að hver og einn fái einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu, enda þykir okkur ekkert skemmtilegra en að dekra við þá sem kíkja til okkar,“ segir Anita. Nákvæm húðmæling forsenda faglegrar ráðgjafar Hluti af þeirri þjónustu sem viðskiptavinir njóta í verslun BIOEFFECT á Hafnartorgi er húðmæling með sérstöku VISIA- mælingartæki. „Tækið gefur ítarlegar upp- lýsingar um ástand húðarinnar. Við notum sambærilegt tæki til að rannsaka virkni og gæði nýrra vörutegunda áður en þær koma á markað. Með því að bjóða við- skiptavinum upp á svo nákvæmar mælingar getum við betur skil- greint það sem betur má fara í húð- rútínunni og veitt enn sérhæfðari þjónustu og ráðgjöf um hvað húðin virkilega þarf og hvaða vörur henta hverjum og einum,“ segir Anita. Þegar húðin er mæld í VISIA- tækinu eru háskerpuljósmyndir teknar af báðum hliðum and- litsins með tvenns konar ljósi. Mælingin tekur um tvær mínútur. Ekkert skemmtilegra en að dekra við kúnnann Þær Aníta Brá Ingvadóttir sölustjóri og Agnes Eva Sandholt Sigurðardóttir verslunarstjóri taka vel á móti viðskiptavinum í BIOEFFECT á Hafnartorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Glæsileg gjafasett með öllu því besta frá BIOEFFECT, fást í versluninni, myndskreytt af Kristjönu S. Williams. Verslunin á Hafnartorgi er eina sinnar tegundar í heim- inum en BIOEFFECT starfar á 28 stöðum um veröld víða. Lesið í niðurstöður VISIA-húðmælingar. Viðskiptavinum BIOEFFECT á Hafnartorgi býðst að fara í VISIA-húðmælinga- tæki sem veitir ítarlegar upplýsingar um ástand húðarinnar. Því næst eru myndirnar greindar og sérfræðingur les úr þeim með viðskiptavinum. „Tækið mælir fjóra þætti á yfir- borði húðar: roða, hrukkur og fínar línur, áferð og húðholur,“ útskýrir Agnes Eva Sandholt Sigurðardóttir, verslunarstjóri BIOEFFECT. Forritið ber svo niður- stöður hvers og eins saman við stóran gagnagrunn. „Þannig fáum við eins konar stöðumat húðarinnar og upplýs- ingar um hvar viðkomandi stendur í samanburði við jafnaldra sína. Eftir mælinguna förum við saman yfir niðurstöðurnar og mælum með vörum sem henta þörfum hvers og eins. Við erum nefnilega öll svo misjöfn og með svo ólíka húð,“ segir Agnes og bendir á að mælingin henti öllum sem vilja læra betur á húðina og raunveru- lega áhrifaríka húðumhirðu. „Við erum mjög stolt af að geta veitt svo faglega og persónulega þjónustu,“ segir Agnes. Litlar breytur gera gæfumuninn Í húðmælingarferlinu kemur ýmis- legt í ljós, þar af margt sem kemur fólki á óvart. „Mörgum kemur á óvart hversu mikilvægt er að þrífa húðina vel. Hreinsivörur fjarlægja ekki bara farða og augnmálningu af húðinni heldur líka yfirborðsóhreinindi, mengun, dauðar húðfrumur og húðfitu. Sé húðin ekki þrifin vel næst heldur ekki besta virknin í húðvörunum. Þá hefur þurrkur, oft í kringum augnsvæðið, komið einna mest á óvart, og það hversu mikilvægt er að halda húðinni vel nærðri,“ útskýrir Agnes. Hún bendir á að sólböð og ljósa- bekkir valdi hvað mestum skaða á húðinni en að sá skaði verði oft ekki sýnilegur fyrr en mörgum árum síðar. „Ég mæli því alltaf með sólar- vörn í útivist og ferðalög, helst daglega. Húðin er stærsta líffærið og mikilvægt að hugsa vel um hana, bæði með því að drekka nóg vatn og borða næringarríkan mat, en einnig að nota rakagefandi, hreinar og nærandi húðvörur. Svo má ekki gleyma góðri hreinsun,“ segir Agnes og bætir við: „Það kemur iðulega í ljós að smá- vægilegar viðbætur eða breytingar á húðrútínu geta gert gæfumuninn og hámarkað árangur af þeim húð- vörum sem fólk notar. Þess vegna mælum við með að allir líti við hjá okkur á Hafnartorgi. Það er til mikils að vinna.“ Vinsælustu vörurnar í glæsi- legum gjafasettum Í aðdraganda jóla fást glæsileg gjafasett sem innihalda úrval alls þess besta frá BIOEFFECT. „Í ár eru gjafasettin okkar mynd- skreytt af listakonunni Kristjönu S. Williams. Verkin eru innblásin af íslenskri náttúru og hvert og eitt þeirra skapar sjálfstæðan heim, fullan af framandi jurtum og töfrandi íslenskum kynjaverum. Listaverkin voru hönnuð sérstak- lega fyrir BIOEFFECT og sameina sérkenni listakonunnar og nátt- úruna, hreinleikann og virknina sem einkennir hugmyndafræði okkar í BIOEFFECT. Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna og vonum að sem flestir finni þessi fallegu sett undir jóla- trénu um hátíðarnar,“ segir Anita að lokum. n Hægt er að panta húðmælingu á bioeffect.is og í Noona-app- inu. Húðmæling er framkvæmd fimmtudaga og föstudaga á milli kl. 14-17.30. Greiddar eru 4.000 krónur fyrir húðmælingu og gildir upphæðin upp í vöruúttekt í verslun BIOEFFECT á Hafnartorgi. 10 kynningarblað 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURSnyrtivörur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.