Fréttablaðið - 11.11.2022, Qupperneq 36
Íslendingar eru duglegir
að nota unaðstæki ásta-
lífsins, en eru þeir að mestu
ófeimnir við að gera kaupin
við búðarborð unaðsvöru-
verslana eða vilja þeir frekar
sinna kaupunum í skjóli net-
verslunar?
thordisg@frettabladid.is
„Í fyrstu var fólk feimið við að
koma til okkar í búðina til skrafs
og ráðagerða um hvað skyldi nú
kaupa af unaðstækjum, og vildi
helst gera innkaupin í gegnum
netið eða heimakynningar, en í
dag hefur orðið mikil breyting á og
rúmlega 60 prósent viðskiptavina
koma til okkar á Dalveginn til að
versla. Ég verð þess líka áskynja að
fólk vill geta komið í verslunina til
að fá þjónustu og ráðgjöf um hvaða
tæki gæti hentað því og til að finna
kraftinn í tækjunum,“ segir Gerður
Huld Arinbjarnardóttir, eigandi
unaðsvöruverslunarinnar Blush.
Þar verður mikið um dýrðir í til-
efni Singles’ Day.
„Singles’ Day er einn af stærstu
dögunum okkar í Blush. Í ár ætlum
við að fara aðra leið en áður og
bjóða upp á Singles’ Day-afslátt í
fjóra daga, eða dagana 10. til 14.
nóvember, bæði í netversluninni og
líka í búðinni okkar á Dalvegi. Það
er okkar leið til að auka þjónustu
við viðskiptavini og koma til móts
við þá sem hafa ekki tök á að versla
á sjálfan Singles’ Day. Fólk getur
þá valið um hvort það vilji versla á
netinu eða koma á staðinn,“ segir
Gerður sem byrjar að undirbúa
stóra daginn Singles’ Day í byrjun
hvers árs.
„Þá höfum við opin augu fyrir
góðum tilboðum hjá okkar birgjum
og söfnum upp lager til að geta
boðið upp á sem bestu afslættina.
Fólk má því búast við frábærum
afslætti hjá Blush í ár, enda gera
margir reyfarakaup og í stórum stíl
á Singles’ Day.“
Sogtæki vinsælust
Í aðdraganda jóla eru fullorðins
jóladagatöl vinsælasta varan í
Blush.
„Árið um kring eru sogtæki
gríðarlega vinsæl og til gamans má
geta að við verðum með nokkrar
týpur af sogtækjum á allt að 50
prósenta afslætti í tilefni Singles’
Day. Vinsælasta vörumerkið í Blush
er hins vegar Reset-vörulínan, en
það eru vörur sem við hönnum
sjálf. Þær eru mjög vandaðar og
kraftmiklar en það virðist vera
eitthvað sem viðskiptavinir leita
eftir og sumir koma aftur og aftur
til að bæta Reset-vörum í safnið sitt.
Nýlega bættust við tvær nýjar vörur
í Reset, svo þeir sem eru búnir að
tryggja sér allar fjórar vörurnar sem
komu í sölu í fyrra geta nú bætt við
tveimur nýjum tækjum, en það er
staðreynd að sumir safna kynlífs-
tækjum eins og aðrir safna Múmín-
bollum,“ segir Gerður glettin.
Hún segist passa upp á að hafa
fjölbreyttar vörur á Singles’ Day-
afslætti svo allir finni eitthvað við
sitt hæfi, en alls verður veittur 20
til 60 prósenta afsláttur af völdum
vörum. „Við búum orðið að ágætri
reynslu frá fyrri árum, erum því
vel undirbúin og vonumst til að til-
boðin muni vekja athygli og áhuga
fólks.“
Íslendingar eru nýjungagjarnir
Spurð hvernig viðskiptavinahópur
íslenskrar unaðsverslunar sé sam-
settur, svarar Gerður:
„Fyrst þegar við byrjuðum hélt
ég að markhópurinn yrði konur
á aldrinum 18 til 25 ára en í dag
veit ég að svo er ekki. Það kemur
kannski mörgum á óvart að
markhópurinn eru einstaklingar
af öllum kynjum og svo pör á aldr-
inum 25 til 55 ára.“
Gerður segir misjafnt hversu fólk
er ófeimið og hispurslaust þegar
það gerir innkaup við búðarborðið.
„Langflestir eru mjög opnir og
finnst það ekkert tiltökumál á
meðan sumum þykir það enn svo-
lítið óþægilegt, bæði að ræða um
kynlíf almennt en líka að koma og
kaupa sér unaðstæki. Langoftast er
það bara skrýtið rétt á meðan fólk
er að leggja í bílastæði og labba
inn í verslunina, en um leið og það
kemur inn sér það hvað verslunin
er falleg og umhverfið notalegt
og þá verður þetta ekkert einasta
mál.“
Hún segir mikla þróun vera í
kynlífstækjaiðnaðinum nú.
„Við höfum vart undan að taka
upp ný tæki sem eru að koma á
markað. Framleiðendur eru líka
mjög duglegir að þróa nýja tækni,
eins og til dæmis sogtæki eða öpp
sem geta stjórnað tækjunum. Við
finnum alveg að margir fram-
leiðendur notuðu tímann vel í
Covid til að þróa og hanna nýjar
vörur, því það hefur svakalega
margt nýtt og spennandi bæst við í
vöruúrvalið hjá okkur undanfarna
mánuði.“
Íslendingar séu líka nýjunga-
gjarnir þegar kemur að unaðs-
tækjum ástarlífsins.
„Í samanburði við nágranna-
þjóðirnar erum við aðeins opnari
og oftast á undan, en þetta er allt
að koma hjá nágrönnum okkar og
þeir eru alltaf að opnast meira og
meira,“ segir Gerður sem er sjálf
dugleg að nýta sér Singles’ Day-til-
boð út um hvippinn og hvappinn.
„En það er svolítið svoleiðis að
á Singles’ Day vinnum við allan
sólarhringinn og þá gefst ekki tími
til að skoða og versla sjálfur. Því
kemur sér vel að sumar verslanir
eru farnar að taka upp á því að
framlengja Singles’ Day-afsláttinn
og þá næ ég oft að gera frábær
kaup, ekki síst á jólagjöfum.“ n
Sumir safna kynlífstækjum eins og Múmínbollum
Gerður Huld Arinbjarnardóttir er kaupkona í unaðsvöruversluninni Blush. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fyrst hélt ég að
markhópurinn
yrði konur á aldrinum
18 til 25 ára, en í dag veit
ég að svo er ekki. Það
kemur kannski mörgum
á óvart að markhópur-
inn er einstaklingar af
öllum kynjum og pör á
aldrinum 25 til 55 ára.
Gerður Huld Arinbjarnardóttir
elin@frettabladid.is
Þetta salat er ekki bara bragðgott
heldur einnig fallegt á litinn. Gott
er að strá smá tortillanasli yfir
salatið þegar það er tilbúið. Látið
kjúklinginn hvíla stutta stund eftir
eldun svo hann verði safaríkur.
Salat með kjúklingi og nasli
2 stórar kjúklingabringur
50 ml ólífuolía
1 msk. ferskt kóríander, smátt
skorið
2 hvítlauksrif
1 msk. chili-duft
Safi úr einni límónu
Gerið marineríngu með því að
hræra saman allt sem upp er talið.
Geymið 1/3 en hellið hinu yfir
kjúklinginn. Snúið kjúklinga-
bringunum þannig að marineríng-
in þeki þær allar. Setjið plast yfir og
geymið í ísskáp þar til eldun hefst.
Salat
300 g blandað salat eftir smekk
1 græn paprika
150 g kirsuberjatómatar, skornir til
helminga
3-4 vorlaukar, í sneiðum
Ein lúka steinlausar ólífur, skornar
í tvennt
1 lárpera, skorin í bita
Mexíkóostur
Tortillanasl
Salatdressing
4 msk. sýrður rjómi
2 msk. majónes
1/3 af marineríngunni
½ límóna, safinn
Salt
Steikið bringurnar aðeins á pönnu
og setjið í ofn við 200°C í 20
mínútur eða þar til fulleldaðar.
Setjið salat, papriku, tómata,
lárperu, vorlauk, ost í bitum og
ólífur á fat. Dreifið sítrónusafa
yfir lárperuna svo hún dökkni
ekki. Blandið öllu saman, skerið
kjúklinginn í sneiðar og raðið ofan
á salatið. Stráið tortillanasli yfir.
Berið fram með salatdressingu,
límónubitum og góðu brauði. n
Fallegt, hollt og ofsalega bragðgott
Kjúklingasalat getur verið margs-
konar en það er alltaf gott.
6 kynningarblað A L LT 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR